Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Page 57

Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Page 57
Margrét Guðrún Lútersdóttir Fædd 9. september 1934 Dáin 18. jlini 1976. Kveðja frá ættingjum. Blésu sólvindar sumar þiðir, græddu gróandi lif, er þú varst fyrir vina sjónum falin foldar skauti. Allt er lif að láni fengið. vSkylt er að gjalda skuld. Virðist oft óvart koma Alvalds skuldaskil. Hljóð urðu systkin þá helfregn barst. Gleymdist allt nema æskan þegar lifsglöð léku saman frjáls i föðurhúsum. Aldraðri móður aukast harmar. Hlaðast sár á sár. Vita sitt eigið viðnámsþrek fæstir, uns fullreynt er. bó varð börnum þyngstur kveð- inn harmur að hjartarótum Verður ungum viðkvæm minning örðug æsku fylgd. Varir söknuður, siðla fyrnist móðurminning barns. bó er huggun ef horft er fram. Lif er þó lokist brá. Kveða laufvindar ljúfum rómi, falla lauf á fold. Biða blaðvana bjarkargreinar vors að liðnum vetri. Far þú haustþeyr hægt um jörð, dveldu við leiði lágt, Hvi'sla hljóðlátur hinztu kveðju, milli bliknaðra blóma. F.G. t Hún fæddist9. september 1934 á Akureyri. Foreldrar hennar voru hjónin Eymundur Lúter Jóhanns- son rafvirkjameistari, sem lézt 16. des. 1951, og Lára Pálsdóttir, sem býr i Lundargötu 17 á Akur- éyri. Margrét var næstelzt af börnum þeirra. Lúter faðir Mar- grétar var fæddurTUtha i Banda- rikjunum, og foreldrar hans gáfu honum Lúters-nafnið til þess að undirstrika trú sina og kirkju, sem kennd er við siðbótarmann- inn Martein Lúter. Eitt þeirra verka, sem Lúter vann, var að leggja rafmagn i Akureyrar- kirkju. Margrét ólst upp á Akureyri. Hún var tvigift. Fyrri maður hennar var Hörður Magnússon. bau eignuðust þrjú börn Lúter, Láru, sem dó 1970, og Herborgu. Seinni maður Margrétar var As- mundur borláksson. beirra börn eru Andrés bór og Guðrún bór- laug. Margrét gekk i húsmæðraskól- ann á Hallormsstað og lauk þaðan prófi eftir tveggja vetra nám. Hún átti ætið heima á Akureyri i Lundargötu 17, með börnum sin- um og móður mörg hin siðari ár. — Margrét varö að þola miklar sjúkdómsþrautir áður en lifi hennar lauk, og hún vissi að hverju dró. „Ég á að deyja, ég er að deyja,” — sagði hún daginn áður en hún dó á Landspitalanum i Reykjavik 18. júni s.l. Við bless- um minningu móður okkar. Mar- grét var ástrik móðir. Hún elsk- aði börnin sin, þótt hún gæti ekki alltaf verið þeim það, sem hún. vildi. Margrét var tilfinningarik kona. 1 bliðu og striðu fundum við, hvað henni þótti vænt um okkur. Við þökkum henni móður- ástina, og minnumst hennar með þakklæti. Ommu okkar viljum við einnig þakka það, sem hún hefur gert fyrir okkur i gegnum árin, og eigum við henni mikið að þakka. Jarðarför Margrétar Lútersdótt- ur fór fram frá Akureyrarkirkju 28. júni s.l. Guð blessi þig mamma, þar sem þú ert, heima hjá Guði, og minningu þina. Frá börnum. Islendingaþættir 57

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.