Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Side 63

Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Side 63
vinnuvegana voru samþykkt 1965. Pálmi annaðist auk aðalstarts síns, bókhald fyrir verktakafyrir- tækið E. Phil & Sön og fleiri verktaka. Með vaxandi rannsóknarstarfsemi, fjölgun rannsóknarstofnana og eflingu Rannsóknarráðs rikisins uxu við- fangsefnin gifurlega, enda hafði Pálmi allfjölmennt starfslið undir sinni stjórn siðustu árin. Er Pálmi réðst til Atvinnudeildar Háskólans 1946, var sá er þetta ritar, yfirmaður Landbúnaðardeildar þeirr- ar stofnunar og gegndi þvi starfi til ársloka 1962. Attum við Pálmi þvi náið samstarf i 17 ár. Samstarf okkar var ágætt frá upphafi, enda var Pálmi ágætlega fær I starfi, hamhleypa dug- legur og skyldurækinn og samvizku- samur svo að af bar. Hann var örgeðja og tilfinningarfkur. Átti hann þvi stundum örðugt með að stilla skap sitt, þegar honum mislikaði við þá eða þann, sem hann átti samskipti við, einkum ef um vanrækslu eða kæru- leysi, að hans dómi var að ræða hjá viðkomandi. Þeir, sem ekki þekktu Pálma kunnu þessu stundum illa i svipinn, en jafnan var sá ágreiningur skjótt úr sögunni, af þvi að Pálmi var I senn sáttfús, drengur góður og hafði ó- venju hlýtt hjartaþel. Pálmi kvæntist 1940 Láru Gunnarsdóttur frá Botnastöðum i Húnavatnssýslu. Þau skildu barnlaus. Hinn 22. marz 1952 kvæntist Pálmi öðru sinni sænskri konu, Anna-Lisa, fædd Berndtsson. Hún átti tvö börn frá fyrra hjónabandi, stúlku að nafni Guð- rúnu og dreng, er Guðmundur heitir. Pálmi unni þessum börnum hugástum og gekk þeim i föðurstað. Ekki eignuð- ust þau hjónin börn saman, en voru samhent um að veita börnum Önnu-Lisu hið betta uppeldi. Frá þvi Guðmundur var smádrengur og til unglingsára var hann á hverju sumri á Hesti i Borgarfirði. Geðfelldari og betri ungling er vart hægt aö hugsa sér, og fáir eða enginn þekkja betur hverja laut og hæð I Hestlandi en Guð- mundur Pálmason, sem smádrengur reikaði þar um haga, með sinn hvita koll f leit að kúm eða hestum, en er nú húsasmiðameistari, kvæntur og bú- settur i Reykjavik. Systir hans, Guð- rún, er hjúkrunarkona hér i borg, ógift. Jónas Kristjánsson ritstjóri, systur- sonur Pálma, var fyrstu árin I fóstri hjá ömmu sinni, Þórönnu, en eftir það til 15 ára aldurs hjá Pálma og konu hans, sem reyndust honum hinir beztu fósturforeldrar. Pálmi Pétursson var glæsimenni að islendingaþættir vallarsýn, innhverfur i skapgerð og þvi seinn til fyllstu kynna, en vinfastur og traustur. Hann skilaði þjóð sinni miklu starfi og reyndist skylduliöi sinu öllu frábær drengur og hjálparhella i hverri raun. Hans er sárt saknaö. Votta ég konu hans, fósturbörnum og öllum öðrum aðstandendum innilegustu samúð. Halldór Pálsson Magnús Framhald af bls. 6 4 Helgason 35 ár i hreppsnefnd Lýtings- staðahrepps og eins og gengur og ger- ist voru ýmsir óánægöir með geröir hreppsn. á hverjum tima og átti Magnús sinn hlut i þvi, sem misgert hafði verið, að þvi er talið var, en þeg- ar kom að þvi, að fólk gerði hug sinn upp við kosningar, var hann endurkos- inn og oftast með flestum atkvæðum. Slíkar voru vinsældir hans. Hann var lika hjálpsamur, þegar til hans var leitað og vildi hvers manns vandræði leysa. Einn af nágrönnum hans lét svo ummælt, að þvi betur reyndist hann sem meira lægi við. Gamli maðurinn, sem sagt er frá f bókinni „Land og synir” hafði búið f 40 ár og þegar hann féll frá var kindum hans slátrað, en þær gerðu ekki nema fyrir helmingnum af skuldinni i kaup- félaginu. Þessi saga gerist á kreppu- árunum að þvi er virðist, og á að vera dæmi um það, hvað sumir bændur bera skarðan hlut á langri ævi, vinna hörðum höndum, en eiga aldrei nema til hnifs og skeiðar, þó þeir séu ekki eyðslu- eða óreglumenn. Fjármunir tolla ekki við suma menn, en öðrum verður flest að fé og kemur margt til, svo sem hagsýni, dugur, fjármálavit, höpp og óhöpp og fleira. Magnús Helason fór ekki meö fjár- muni úr föðurgarði, byrjaði með tvær hendur tómar, já, hann hefur kannski byrjað með tveggja krónu pening, eins og Ellert i Holtsmúla, en alla sina búskapartið var hann með efnuðustu bændum ihreppnum, nema fyrstu ár- in. Honum er sýnt um fjármal, hvort sem hann vinnur fyrir sjálfan sig eða aðra, hagsýnn dugur og þrek er honum i blóð borið. Þegar Magnús hætti búskap á siðastliðnu ári, var f járhagur hans ólikt betri en gamla mannsins i „Land og synir”. Ég veit ekki hvort hann hefur nokkurn tima skuldað i kaupfélaginu, en hann seldi jörðina fyrir 10 milljónir, sauöfé fyrir 2 milljónir, svo átti hann búið á Sauöár- króki, sem hann flutti i og meiri munu fjármunir hans vera. Magnús i Héraðsdal hefur verið stuðningsmaður Framsóknarflokksins alla tið, en ýmsir hafa látið svo um- mælt að hann væri ihaldsmaður innan flokksins. Andstæðingar Framsóknar- flokksins hafa löngum haldið þvi fram aö innan hans væru bæði ihaldsmenn og kommúnistar og reiknaö til miska og meinlæta. Misskilningur er það, að ihaldsmaður eða kommúnisti séu skammaryrði. Kommon þýðir sam- eiginlegur og öll mannskepna er lýður drottins, sem á að una i bandi friðar og réttlætis, þó misjafnlega gangi að framkvæma hugsjóúir jafnaöarstefnu. íhaldsmaður er sá, sem vill halda i það, sem lengi hefur staðið og vel hef- ur reynzt og það er virðulegt hlutverk að vilja varðveita ýmis menningar- verðmæti i ólgusjó á breytingatimum. Innan Framsóknarflokksinser svo vitt til veggja að sauðir til hægri og vinstri geta verið þar i góðu samlyndi. Magnús Helgason er bæði sósialisti og einstaklingshyggjumaöur. Hann hefur stutt með ráðum og dáð hvers konarlýðhjálp, sem komizthefur á um hans daga og hvers konar umbætur I sveitinni svo sem byggingu barna skóla ogfélagsheimilis, og hann vill að hver einstaklingur hafi ráðrúm til og fái að njóta þess sem i honum býr. Þau Magnús og Jónina eignuðust tvö börn sem upp komust. Dóttir þeirra, Margrét Selma, er gift og búsett á Sauðárkr. Sonur þeirra Helgi Guö- mundur, mikill efnis piltur, andaöist 15 ára gamall. Magnús bar sonarmissi með karlmennsku, enda er hann garp- ur i hverri raun. Fósturbörn voru hjá þeim hjónum lengur eða skemur, Vor- ið 1920 kom til þeirra 8 ára gamall drengur, Marteinn Jónsson. Hann missti móður sina þá um veturinn og var umkomulaus. Marteinn hafði miklar námsgáfur og var i Mennta- skólanum I Reykjavik, en andaðiSt á Vifilstööum tvitugur að aldri. Miklir kærleikar voru með Marteini og fóst- urforeldrum hans. Magnús Helgason er sem fyrr gest- risinn, glaður og reifur. Hann minnist samstarfs og samtiðarmanna hlýlega hvort sem það voru skoðanabræður eða ekki. Hann talar um hvað það hafi verið gaman að lifa og þá sérstaklega þegar hann var ungur á fyrstu tugum aldarinnar. Ég fæ ekki betur séð en Magnús hafi verið lukkunnar pamfill. Hann hefur búið I góðu hjónabandi, starf og strit langrar ævi hefur verið honum lifs- nautn og hann hefur notið mikillar mannhylli, sem var betra en flest ann- að. Það fer ekki hjá þvi, að menn eins og Magnús i Héraðsdal setja svip á um- hverfi sitt um sina daga og sjónar- sviptir verður, þegar þeir hverfa á braut. Ég flyt honum beztu afmælis- óskir með þökk fyrir liönu árin. 11. marz 1977 Björn Egilsson 63

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.