Íslendingaþættir Tímans - 26.01.1980, Page 5
Björn Bessason
F. 5/3. 1916.
D. 9/7. 1979.
Þaö hefir margsinnis hvarflaö aö mér
aö skrifa fáein minningarorö um fornvin
minn Björn Bessason frá Kýrholti i Viö-
vikursveit, Skagafiröi, sem lézt þann 9.
júli sl. Vildi ég meö þvi reyna aö bregöa
ljósi yfir einn þátt I lifi þess mæta manns.
Viö vorum samtiöa i Menntaskólanum á
Akureyri. Var Björn hvers manns hug-
ljúfi i skóla sakir prúömennsku og dreng-
skapar. Sérstaka athygli vakti frábær
þekking hans á náttúrufræðum. Hún var
með slikum ágætum, aö hann skar-
aöi langt fram Ur öörum nemendum og
gekk jafnan frá prófboröi meö hæstu eink-
unnir. Mér er minnisstætt, aö i 4. bekk,
þegar viö hinir námum ögn i jaröfræöi og
veðurfræöi hjá Steindóri Steindórssyni frá
Hlööum, varð Björn sér jafnframt úti um
1200 siöna bók um bakteriufræöi, sem
hann las spjaldanna á milli.
Sumarið eftir (1935) vorum viö báöir i
atvinnuleit á Siglufiröi. Þaö var raunar
sildarleysisár, litiö að gera og enn minna
um peninga. En Björn lét sér ekki verk úr
hendi falla. Hann grannskoðaði gróöurinn F
á staðnum. Dag nokkurn kom hann til min
og kvaöst hafa fundiö jurt, sem hann
kynni ekki aö greina. Mun þaö hafa verið
harla sjaldgæft. Hann taldi sig vita um
hollenzka konu þar á Siglufiröi, er væri
hálærö i plöntufræöi og myndi liklega geta
leyst úr vanda hans. Væri hún gift Snæ-
fellingi, sem ég bæri e.t.v. kennsl á.
Þetta reyndist rétt vera. Maöurinn var
Þorsteinn Loftsson, ættaöur úr Dölum
vestur, siöar garöyrkjumaöur og bóndi aö
Reykholti i Biskupstungum, þar sem hann
reisti nýbýli. Hann haföi nokkrum árum
áöur gengiö aö eiga unga konu, sem kom
hingaö meö nemendahóp frá Hollandi.
Heitir hún Vilhelmina Theodora Tymstra
og var þá þegar orðin doktor i náttúruvis-
indum meö plöntufræöi aö sérgrein.
Viö Björn drápum á dyr hjá þessum
hjónum, sem bjuggu nefnt sumar á Siglu-
firði. Þau tóku okkur vel og buðu til stofu.
Brátt var rjúkandi kaffi á boröum. Björn
og frú Vilhelmina hófu óöar samtaliö og
ræddu langa-lengi. Umræöuefniö fór aö
mestu fyrir ofan garö og neöan hjá mér.
Þegar upp var staöiö, fylgdi frúin okkur
til dyra og kvaddi Björn meö þessum orö-
um: „Verið þér sælir dr. Bessason.”
Af orðum dr. Vilhelminu mátti ráöa, aö
hún hafi álitiö Björn Bessason, þá 19 ára
aö aldri, vera jafningja sinn i fræöigrein-
1 2. tbl. islendingaþátta var birt grein um Gisla Þórarinsson aö Neörabæ i
Borgarhöfn. Meö greininni fylgdi mynd af Gisla og tveim bræörum hans en
nöfn þeirra fylgdu ekki meö myndinni, en þeir eru taliö frá vinstri, Jón, Stefán
og GIsli Þórarinssynir.
inni, nema hún hafi talið hann eiga opna
leið aö hennar menntagráðu og mælt svo
þess vegna. Segir þetta sina sögu um
kunnáttu hans þegar á unglingsárum.
Sannleikurinn er sá, aö Björn var búinn
kostum til mikilla afreka á þessu sviði.
Fyrir undarlegan leik örlaganna átti þó
ekki fyrirhonum aö liggja aö halda áfram
á braut náttúrufræöi. Hann kvæntist eftir-
lifandi konu sinni Þyri Eydal. Réöst hann
til endurskoöunarstarfa hjá Kaupfélagi
Eyfiröinga á Akureyri og kann fátækt aö
hafa valdiö ákvörðun hans. Þau störf ann-
aöist hann til æviloka af þeirri skyldu-
rækni, samvizkusemi og tryggö, sem hon-
um var I blóð borin.
Vinir hans, sem þekktu hann gjörla,
harma, aö honum gafst ekki tækifæri til
aö veröa vlsindamaöur og nýtast meö
þeim hætti landi og lýö eins og bezt var á
kosiö.
Ég vænti þess, aö hann stefni 1 hinum
nýju heimkynnum á þau miö, sem hugur-
inn stóö til. Aöstandendum Björns votta
ég djúpa samúö, og sjálfum honuni bið ég
allrar blessunar.
Islendingaþættir
Magni Guömundsson.