Íslendingaþættir Tímans - 26.01.1980, Síða 5

Íslendingaþættir Tímans - 26.01.1980, Síða 5
Björn Bessason F. 5/3. 1916. D. 9/7. 1979. Þaö hefir margsinnis hvarflaö aö mér aö skrifa fáein minningarorö um fornvin minn Björn Bessason frá Kýrholti i Viö- vikursveit, Skagafiröi, sem lézt þann 9. júli sl. Vildi ég meö þvi reyna aö bregöa ljósi yfir einn þátt I lifi þess mæta manns. Viö vorum samtiöa i Menntaskólanum á Akureyri. Var Björn hvers manns hug- ljúfi i skóla sakir prúömennsku og dreng- skapar. Sérstaka athygli vakti frábær þekking hans á náttúrufræðum. Hún var með slikum ágætum, aö hann skar- aöi langt fram Ur öörum nemendum og gekk jafnan frá prófboröi meö hæstu eink- unnir. Mér er minnisstætt, aö i 4. bekk, þegar viö hinir námum ögn i jaröfræöi og veðurfræöi hjá Steindóri Steindórssyni frá Hlööum, varð Björn sér jafnframt úti um 1200 siöna bók um bakteriufræöi, sem hann las spjaldanna á milli. Sumarið eftir (1935) vorum viö báöir i atvinnuleit á Siglufiröi. Þaö var raunar sildarleysisár, litiö að gera og enn minna um peninga. En Björn lét sér ekki verk úr hendi falla. Hann grannskoðaði gróöurinn F á staðnum. Dag nokkurn kom hann til min og kvaöst hafa fundiö jurt, sem hann kynni ekki aö greina. Mun þaö hafa verið harla sjaldgæft. Hann taldi sig vita um hollenzka konu þar á Siglufiröi, er væri hálærö i plöntufræöi og myndi liklega geta leyst úr vanda hans. Væri hún gift Snæ- fellingi, sem ég bæri e.t.v. kennsl á. Þetta reyndist rétt vera. Maöurinn var Þorsteinn Loftsson, ættaöur úr Dölum vestur, siöar garöyrkjumaöur og bóndi aö Reykholti i Biskupstungum, þar sem hann reisti nýbýli. Hann haföi nokkrum árum áöur gengiö aö eiga unga konu, sem kom hingaö meö nemendahóp frá Hollandi. Heitir hún Vilhelmina Theodora Tymstra og var þá þegar orðin doktor i náttúruvis- indum meö plöntufræöi aö sérgrein. Viö Björn drápum á dyr hjá þessum hjónum, sem bjuggu nefnt sumar á Siglu- firði. Þau tóku okkur vel og buðu til stofu. Brátt var rjúkandi kaffi á boröum. Björn og frú Vilhelmina hófu óöar samtaliö og ræddu langa-lengi. Umræöuefniö fór aö mestu fyrir ofan garö og neöan hjá mér. Þegar upp var staöiö, fylgdi frúin okkur til dyra og kvaddi Björn meö þessum orö- um: „Verið þér sælir dr. Bessason.” Af orðum dr. Vilhelminu mátti ráöa, aö hún hafi álitiö Björn Bessason, þá 19 ára aö aldri, vera jafningja sinn i fræöigrein- 1 2. tbl. islendingaþátta var birt grein um Gisla Þórarinsson aö Neörabæ i Borgarhöfn. Meö greininni fylgdi mynd af Gisla og tveim bræörum hans en nöfn þeirra fylgdu ekki meö myndinni, en þeir eru taliö frá vinstri, Jón, Stefán og GIsli Þórarinssynir. inni, nema hún hafi talið hann eiga opna leið aö hennar menntagráðu og mælt svo þess vegna. Segir þetta sina sögu um kunnáttu hans þegar á unglingsárum. Sannleikurinn er sá, aö Björn var búinn kostum til mikilla afreka á þessu sviði. Fyrir undarlegan leik örlaganna átti þó ekki fyrirhonum aö liggja aö halda áfram á braut náttúrufræöi. Hann kvæntist eftir- lifandi konu sinni Þyri Eydal. Réöst hann til endurskoöunarstarfa hjá Kaupfélagi Eyfiröinga á Akureyri og kann fátækt aö hafa valdiö ákvörðun hans. Þau störf ann- aöist hann til æviloka af þeirri skyldu- rækni, samvizkusemi og tryggö, sem hon- um var I blóð borin. Vinir hans, sem þekktu hann gjörla, harma, aö honum gafst ekki tækifæri til aö veröa vlsindamaöur og nýtast meö þeim hætti landi og lýö eins og bezt var á kosiö. Ég vænti þess, aö hann stefni 1 hinum nýju heimkynnum á þau miö, sem hugur- inn stóö til. Aöstandendum Björns votta ég djúpa samúö, og sjálfum honuni bið ég allrar blessunar. Islendingaþættir Magni Guömundsson.

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.