Heimilistíminn - 28.04.1977, Blaðsíða 6
Um Elizabeth Bretadrottningu:
Fataval drottningarinnar
skiptir miklu máli
Hún er líka mjög smekkleg, segja tízkuteiknararnir
þrír, sem teikna fötin hennar
Teikning Ian Thomas af krepsilkikjóin-
um, sem drottningin nota&i viO móttöku I
þinghúsinu I Canberra.
Trúlega þykir mörgum
klæðnaður drottningar vera
slíkt smámál, að ekki ætti að
fjalla um hann á opinberum
vettvangi. Bretar hafa þó
komizt að raun um, að svo er
ekki. Þeir segja, að fátt sé
þýðingarmeira, þegar drottn-
ing leggur upp í opinbera
heimsókn svipaða þeirri, sem
hún fór nýlega í til Ástraliu og
Nýja Sjálands, en að velja
klæðnað hennar vel.
Elizabeth Bretadrottning hefur löngum
gert sér grein fyrir þvi, aö almenningur
hefur meira gaman af aö viröa fyrir sér
fötin, sem hún klæöist, heldur en aö hlusta
á langa og leiöinlega ræöu.
Miklum tima er eytt i aö velja drottn-
ingunni föt, og kostna&urinn sem fór I
fatakaupin, skilaöi sér rikulega hvaö viö
kemur Astraliuferöinni, sem drottningin
fór 11 tilefni af þvi, a& hún haföi veriö viö
völd I Englandi I 25 ár.
Hvorki mótmælaóp né mótmælaspjöld
og fánar andstæöinga gátu dregiö athygli
fólksins frá drottningunni sjálfri, útliti
hennar og framkomu. Drottningin er nú
51 árs gömul, og margir segja, aö hún
veröi glæsilegri meö hverjum deginum
sem liöur. Hún gætir sin vel aö fitna ekki,
og enn á hún auövelt meö meö aö fá fatnaö
I stærö 12, og meira aö segja kemst hún I
10.
Þrír tizkuteiknarar.
Þrlr tízkuteiknarar eru haföir meö I
ráöum, þegar drottningin fær sér ný föt.
Þaö eru Sir Norman Hartnell, sem sér um
hátlöaklæönaöinn og Hardy Amies og Ian
Thomas sem velja hversdagsklæönaö
drottningarinnar. Drottningin heldur sjálf
fundimeöþessum tizkuteiknurum, og hún
lætur engan innan konungsfjölskyldunnar
hafa áhrif á klæðaval sitt.
Hún neitar algjörlega aö ganga I nokkru
þvl, sem er allt of nýtlzkulegt eöa
áberandi. Ekki vill hún heldur ganga I
mjög ibúröarmiklum fötum, sem gætu
valdiö öfund meöal kvenna almennt, sem
sjá hana og fylgjast meö henni, þar sem
hún fer.
Hversdagslega þykir henni gott aö vera
I fremur vlöum fötum, sem ekki falla þétt
aö, og eru meö nokkuö viöum ermum.
Hvaö viökemur fatnaðinum, sem valinn
hefur veriö vegna 25 ára rlkisstjóra-
afmælis hennar, þá má segja þaö, aö hann
fylgir I einu og öllu ströngustu kröfum,
sem hún sjálf gerir til klæönaöar slns.
Hattar eru ekki látnir slúta fram yfir
enniöeöa skyggja á andlitiö, og kjólasldd-
in er ætiöhinsama, og alltaf nokkuö niöur
fyrir hné. — Þarna sjáiö þiö. Þaö var rétt
hjá mér aö vera ekki að stytta kjólana
mlna, sagöi drottningin, þegar mini-tlzk-
an komst aftur á undanhald.
Slöir kjólar veröa aö vera eftir settum
regluin. Þaö mega ekki vera á þeim
slóöar, sem geta oröiö til þess aö tauga-
óstyrkir stjórnarerindrekar eiga á hættu
aö stlga ofan á þá. Svartir og ljósrauöir
litir eru algjörlega bannaöir.
— Mér líður vel I þessum fötum. Ég get
gleymt þeim um leiðog ég er komin I þau,
segir drottningin um fötin, sem Ian
Thomas hefur valiö henni. Hann, sem og
hinir tlzkuteiknararnir tveir, flettir dag-
blöðunum af miklum áhuga á meöan
drottningin er á feröalögum til þess aö sjá
föt hvers þeirra koma oftast fram, ef svo
má segja.
Augljóst var, aö unglegu dagkjólarnir
hans — úr köflóttu silki og meö rósa-
mynstrum.eðstuttum ermum og ofurlitið
felldum pilsum — nutu mestra vinsælda
hjá drottningunni.
Skærir litir
Þaö hefur lengi veriö skoöun þeirra Sir
Normans Hartnell og Thomas, sem eitt
sinn unnu saman, aö kjólar drottningar-
innar eigi aö vera i skærum litum, og
glæsilegir. Jan Thomas á litla verzlun á
Motcomb Street, Knightsbridge i London,
þar sem viðskiptavinir á borö við
hertogafrúna af Westminster og Katy
Boyle greiöa gjarnan 145 pund fyrir dag-
kjól, eöa um 50 þúsund krónur.
Thomas var sérlega ánægöur meö,
6