Heimilistíminn - 28.04.1977, Blaðsíða 27
Egner er ekki aöeins rithöfundur. Hann
er málari, teiknari, grafiker og bóka-
skreytingamaöur. Hann semur einnig lög
og hefur unniö bæöi silfur-, gull- og
demantsplötur. Hann er eiginlega nokk-
urs konar þúsund þjala smiöur. Ariö 1972
fékk hann St. Olafs-viöurkenninguna og I
skjalinu sem fylgdi stóö, aö hann hlyti
hana fyrir framlag sitt til menningar-
mála. Var þar átt viö allt þaö, sem hann
hefur gert fyrir börn og unglinga, og þá
ekki sfzt meö lestrarbókunum — 16 aö
tölu, sem hann hefur samiö.
—Égersvoheppinn, aðéghefnær alltaf
fengiöaö gera þaö, sem ég hef helzt viljaö
gera sjálfur, segir Egner. — Þaö er aö
mála og teikna, yrkja ljóö og semja lög,
vinna aö barnatfmum f útvarpi og sjón-
varpi semja leikrit og bækur fyrir börn og
unglinga. Alls staöar hefur mætt mér vel-
vild og skilningur, bæöi hjá bókaútgefend-
um, norska útvarpinu og f leikhúsunum.
Ég hef lfka fengiö aö taka þátt f uppsetn-
ingu leikrita minna. Ég hef gert búninga-
teikningarnar, og teiknaö leiktjöld og sitt-
hvaö fleira, ekki aöeins hér heima i
Noregi, heldur einnig annars staöar á
Noröurlöndunum.
— Ég minnist þess til dæmis, þegar
Kardemommubærinn var sýndur i Stokk-
hólmi. Viö Anna kona min vorum þar bæöi
og ég vann aö uppsetningu leikritsins. Þaö
var sannarlega skemmtilegt aö heyra
Hér sjáiö þiö myndina utan af sýningar-
skránni, þegar Kardemommu bærinn var
sýndur I Japan.
ræningjasönginn og Kardemommu-söng-
inn sunginn af mörgum beztu söngmönn-
um Stokkhómsóperunnar. Syversen spor-
vagnsstjóri var leikinn og sunginn af
manni, sem áriö eftir kom sem gestur og
söng Fígaró f Osló!
— Er ekki erfitt aö fá leikara til þess aö
leika f barnaleikritum?
— Sumir vilja það mjög gjarnan, en
aörir gera þaöef til vill ekki jafn fúsir. En
margir af okkar beztu leikurum hafa far-
iö meö hlutverk ræningjanna og bæjar-
fógetans í Kardemommubænum og leikið
dýrin f Hálsaskógi. Ef til vill ætti oftar aö
y' u '-áwií
Þaö hefur alltaf mikið veriö lesiö upphátt
á heimili Egners. Nú er iesiö fyrir barna-
börnin. Frá vinstri Espen, Harald, Anna
amma meö Halvor I fanginu, öystein,
Egner afi, Hannibal, Berit, og Marit snýr
bakinu I ijósmyndarann.
setja á sviö leikrit fyrir börn á stóru leik-
sviöunum I leikhúsunum. Ég held þaö sé
einstaklega þýöingarmikiö fyrir allt leik-
húslff framtíðarinnar.
Ég erhérna meö úrklippu, þar sem Ing-
27