Heimilistíminn - 28.04.1977, Blaðsíða 23

Heimilistíminn - 28.04.1977, Blaðsíða 23
„Þarna... þarna... þarna er það,” stamaði hann. Og nú sá Tóti það lika, næstum samtimis. Það hafði komið fram undan hæðinni, hægra megin, og virtist nú skyndilega miklu nær en þeir höfðu haldið. Þetta var stórt, þrekvaxið og dökkbrúnt dýr, sem gekk jöfnum, ákveðnum skrefum beint i á( tina til þeirra. Það laut höfði til jarðar likt o; þ. ð væri að leita að einhverju. Þetta var bjorninn, — skógarbjörninn. í fyrstu urðu báðir drengirnir alveg utan við sig af hræðslu og gátu ekki hreyft legg né lið. En þegar þeir komu til sjálfra sin á ný, tóku þeir strax til fótanna, svo sem mest þeir máttu. En rétt á eftir námu þeir staðar. Þeir höfðu gleymt kálfinum. Þeir þutu strax til baka, án þess að segja neitt, þrifu kálfinn upp á milli sin og hlupu með hann eins hratt og þeir gátu, beinustu leið í átt- ina til selsins. Og þeir skeyttu þvi engu, þó að þeir rifu fætur sina á feyskjum og lyngi, hugs- uðu aðeins um að nálgast selið sem fyrst. ,,Ég vildi bara, að amma væri komin út i mýrina,” sagði Tóti við sjálfan sig, ....hún verður að vera komin þangað. Hann leit til baka. Björninn nálgaðist óðum. Hann virtist miklu nær þeim en fyrr. Nú sást mjög greinilega, hvað hann var stór og þrek- vaxinn. „Reyndu að flýta þér meira, Jón,” stamaði hann. En það var hreint ekki auðvelt fyrir þá að fara hratt yfir, með kálfinn á milli sin. Tóta fannst, að lyngið væri helmingi hærra og erfið- ara yfirferðar en fyrr, og leiðin upp hæðina helmingi lengri en niðureftir. Hann mátti ekki hugsa til þess, að björninn næði þeim. Þá yrðu þeir að skilja kálfinn eftir. Nei, það mátti alls ekkikoma fyrir. Þeir urðu að geta komizt undan honum. Þá heyrðu þeir loksins að amma kallaði skammt frá þeim. Þeir gáfu sér ekki tima til að svara, hlupu aðeins, eins og mest þeir máttu. En örstuttu seinna komust þeir efst upp á hæð- ina og flugu þá beint i fangið á ömmu, sem hafði gengið upp hæðina með Barð litla, hinum megin frá. ,,En ..blessaðir drengirnir.” sagði amma mjög undrandi og horfði ýmist á þá eða kálf- inn,... ,,hvað er hér eiginlega um að vera?” ,,Bjö... bjö... björninn.” stamaði Tóti... ,,Hann er hérna rétt á eftir okkur.” Amma hrökk við. En svo spurði hún rólega: ,,Hvar er björn- inn?” ,,Hann er þarna!” sögðu drengirnir báðir samtimis og sneru sér við til að benda á hann. En ... hvað var orðið af birninum?... Þeir horfðu og horfðu en sáu hann hvergi, — og þó hafði hann áreiðanlega verið þarna fyrir stuttri stundu. Amma hló lágt. ,, Jú, það er alveg rétt, drengir minir, hann er þarna,” sagði hún og benti. ,,Það er vist áreiðanlega hann. En ég held, að við þurfum ekkert að flýta okkur.” Drengirnir störðu ákaft þangað, sem amma benti, og komu auga á hann innan skamms. Hann lá á bakinu á grasbala nokkrum og bað- aði út öllum öngum, eins og hann væri að leika sér að löppum sinum. Hann var miklu fjær en þeir höfðu haldið, og nú fannst þeim hann alls ekki eins hrollvekjandi og fyrr. ,,Hann ... hann... hann er að leika sér,” stamaði Tóti. Hann ætlaði tæpast að trúa sin- um eigin augum. ,,Já, hann er vissulega að leika sér,” sagði amma og brosti... ,,og nú virðist hann ekki lengur mjög hættulegur, eða finnst ykkur það nokkuð?” ,,Nei,” sagði Jón og kom nú loks upp orði. ,,Ég vissi ekki, að birnir léku sér eins og krakkar.” „Jú, það gera þeir einmitt,” sagði amma, — „jafnvel rándýrin leika sér, þegar þeim liður vel. „Heldurðu, að hann hafi séð okkur?”spurð f Tóti. Hann var enn ekki grunlaus um, að björninn gæti komið á móti þeim með gapandi gin. „Nei, hann hefur áreiðanlega ekki séð okk- ur,” sagði amma. Birnir eru nærsýnir, og vind- urinn kemur úr þeirri átt, þar sem hann er, svo að hann getur ekki heldur fundið neinn þef af okkur. En ef til vill veit hann um mýrina okkar með multuberjunum”. „Og þá kemur hann hingað”, sagði Jón. „Já, það er vel hugsanlegt,” sagði amma, „og þess vegna skulum við halda sem fyrst heim að selinu. „En þegar ég sé björninn þann- ig, þá er ég ekki næstum þvi eins hrædd við hann og þegar ég sé aðeins sporin hans,” bætti hún við hlæjandi. Þau horfðu stundarkorn á þetta stóra dýr, þar sem það lá og lék sér á grundinní grænu. Þvi næst sneru þau sér að hreindýrskálfinum, 23 J

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.