Heimilistíminn - 28.04.1977, Page 34

Heimilistíminn - 28.04.1977, Page 34
mig. Þú ættir að vera honum þakklátur, því einmitt það hef ur þig langað til að gera árum saman, ekki satt? Andartak óttaðist Mary að Desmond f engi tilf elli. David virtist óttast hið sama, því hann f lýtti sér að segja: — Get ég náð í drykk? — Til f jandans með alla drykki, þrumaði Des- mond.— Eigiðþér við góði maður... hann sneri sér að Judson... að þér hafið vogað yður að slá dóttur mína opinberlega? 8. kafli Það varð afar óþæegileg þögn. Pearl hvítnaði í framan, beit saman tönnunum og hálsvöðvarnir titruðu. Mary hafði aldrei áður séð hana svo reiða. — Jæja, jæja, sagði hún loks og sneri sér að hin- um. — Erum við tilbúin? Desmond leit alls ekki út fyrir að vera tilbúinn. Einhver undarleg hljóð komu upp úr hálsi hans. — Ja hérna, ég verð að segja...ég veit ekki... — Vitleysa, pabbi! hrópaði Pearl hvössum rómi. — Komdu inn að borða. Sendu tvo bakka hingað inn, Perkins. Hún sneri sér að David og brosti sínu blíð- asta. — Réttu mér arminn, David. Pabbi, getum við ekki fengið svolitið kampavín? Þetta kom illa við David. Ekki aðeins koma Jud- sons...satt að segja hafði það glatt hann að hitta hann svona óformlega... en lýsing Pearl á því, sem gerzt hafði á fundinum hafði gert hann reiðan og auðmýkt hann. Hann vissi ekki hvort hann átti að reiðast Pearl f rekar fyrir að hafa komið sér í þessa aðstöðu, eða Judson fyrir að hafa notað sér aðstöð- una. Ofan á allt saman komu síðan vandræðin með matinn. Hannóskaði þess að Desmond-hjónin hefðu boðið Mary að borða með þeim. Hún hafði alltaf borðað með móður hans og honum, þegar hún var að vinna frameftir heima hjá þeim. Þetta hafði komið illa við hann, en hann hafði ekki vitað, hvort hann ætti að skipta sér af því. En hann þóttist viss um að Mary mundi skilja þetta, hún var skynsöm stúlka. En svo hafði Judson þurft að efna til vand- ræða aftur. Hann hafði valdið því að David fannst hann líta út eins og höfðingjasleikja. Bara að hann gæti f undið upp á einhverju til að minnka spennuna í andrúmsloftinu, en þess í stað gekk hann með Pearl við arm sér inn í matsalinn. Hún brosti upp til hans, en samt hafði hann á tilfinningunni, að hún væri alls ekki að hugsa um hann, heldur það sem gerzt hafði í dagstofunni, samt talaði hún og hló mikið undir borðum. Desmond gerði aðeins eina at- hugasemd um viðburðinn. — Þarna sérðu, hvað getur gerzt, þegar þú kemur með svona fólk heim, Pearl. Frú Desmond sagði i lágum kvörtunartón: — Ég vona bara að lafði Preston frétti þetta ekki. Hún er afar ströng. Lafði Preston var formaður íhalds- félagsins á staðnum. — Það skiptir ekki nokkru máli þó hún f rétti það, sagði Pearl þrákelknislega. — Hún lætur bara eins og ekkert sé. Hún er enn að vona, að ég gif tist þess- um kjánalega syni hennar. Hann hefur þegar eytt milljónum og vill nú endilega krækja í mínar. 34 — Almáttugur, hvað þér getur dottið í hug að segja, Pearl, sagði frú Desmond. Dvaid hló og virtist vera að endurheimta eitthvað af góða skapinu. Þegar dyrnar lokuðust á hæla Desmond- f jölskyldunnar og Davids, stóðu Mary og Judson og horfðu hvort á annað. — Þér hefðuð ekki átt að gera þett, sagði hún í áhyggjutón. Það mátti meira að segja segja greina tár í augum hennar. — Hvers vegna ekki? spurði hann herskár. — Þessir bannsettir snobbar eiga það skilið að einhver segi þeim til syndanna öðru hverju. Því skyldi þeim leyfast að flokka fólk svona niður í bása? Hvers vegna skyldu þau fara brosandi inn í boðsalinn, en þú að f á matinn hingað á bakka? Það gerði mig svo bálreiðan...svo spurði hann snöggt: — Var þér bara sama? — Nei, ekki alveg, viðurkenndi hún. — En þegar allt kemur til alls, er þetta heimili þeirra og ef þau óska ekki eftir að ég borði kvöldverð með þeim, hafa þau fullan rétt til að hafa það þannig. Ég er ekki hérna sem gestur og þess vegna vildi ég óska, að þér hefðuð ekki gert þetta. Mér er alveg sama hvað þau hugsa, en David getur orðið órólegur út af því, sérstaklega vegna þess sem þér gerðuð við ungfrú Desmond i dag. — Heldurðu að henni sé sama? spurði hann skyndilega. ÁAary neri saman höndunum. — Ég held að henni haf i verið minna sama um að þér vilduð ekki borða með þeim, en hitt. Henni gæti meira að segja hafa þótt hittskemmtilegt, sem gerðist í dag. Skiljið þér, ég þekki hana ekki eins vel og áður. Hann spurði snöggt: — Hvað eigið þér við með ekki eins og áður? Þekktuð þér hana áður? Mary eldroðnaði. — Ég...ég átti ekki við neitt sér- stakt. Ég var bara að reyna að segja, að ég hefði ekki kynnzt henni fyrr en nýlega.. Hann leit rannsakandi á hana. — Það er einkenni- legt, að þú virðist vita margt um hana, eða að þér yfirleitt verður hugsað til tilfinninga hennar og hugsana. Líttu bara á allt, sem hún hef ur fengið um ævina. Peningar, góð aðstaða....ef einhver hefur einhverntíma verið dekurbarn, þá er það hún. Hvers vegna skyldi einmitt hún fá að njóta alls þessa: Hann gekk um gólf og baðaði út höndunum og hækkaði ósjálfrátt róminn. Skyndilega fór Mary að hlæja. — Freeman, þér eruð ekki að halda ræðu núna. Hann þagnaði snögglega og sneri sér að henni, strauk hendinni gegnum þykkt hárið og roðnaði vandræðalegur. — Ah, fyrirgefðu. Ég býst við að þetta sé orðinn vani hjá mér að tala. Bráðum fer ég líklega að halda ræður yfir sjálfum mér í baðinu. Hvar vorum við? — Ég var að segja, að það væri indælt af yður að vilja borða með mér, þó ég vildi, að þér hefðuð ekki gert það. — Ég vil að minnsta kosti heldur vera hérna, sagði hann ákveðinn. — Ég er ekki ennþá búinn að innprenta þér skoðanir mínar, og er að hugsa um að Jeggja áherzlu á það núna, meðan við n jótum mol-

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.