Heimilistíminn - 02.04.1978, Side 3

Heimilistíminn - 02.04.1978, Side 3
Kæri Alvitur! Mig langar til aö fá svör viö nokkrum spurningum. X. Verö ég aö fara til útlanda ef mig langar til aö veröa stjörnufræöingur? 2. i hvaöa skóla get ég fariö? 3. Hvaö tekur námiö langan tima? 4. Hvaöa möguleikar eru á þvf hér á landi eöa erlendis aö starfa sem stjörnufræöingur? Aö lokum vil ég svo þakka allt gamalt og nýtt i Heimilis-TImanum. Meö kveöju Kristin Þú þarft vist áreiöanlega aö fara til útlanda til þess aö hljóta fullnaöar- menntun i stjörnufræöi. Um marga skóla er trúlega aö ræöa og bezt aö fá leiöbeiningar hjá einhverjum stjarn- fróöum manni um þaö eöa ef til vill getur kennarinn þinn i náttúrufræöi i skólanum bent þér á beztu leiöirnar til þess aö fá upplýsingar um þessa menntun hversu langt námiö er o.s.frv. Þaö er trúlega undir nemend- um sjálfum nokkuö komiö og auk þess hverjum skóla fyrir sig. Heldur litlir atvinnumöguleikar held ég séu fyrir stjarnfræöinga hér á landi aö minnsta kosti viö aö fylgjast meö gangi himintunglanna. En auövitaö geta menn meö þá menntum komizt aö sem kennarar i ýmsum raunvisinda- fögum viö hinar ýmsu menntastofn- anir landsins en þá fer stjarnfræöin nú fyrir heldur litiö. Kæri Alvitur. Vona aö ruslakarfan sé full. Þaö sem ég ætlaöi aö spyrja þig um var þaö hvort I laginu sem heitir Vert’ekki aö horfa svona alltaf á mig sé sungiö alltaf eöa aftan á mig. Siöan þakka ég gott blaö og biö aö heilsa ruslakörf- unni. x 800+0 Ég held alveg áreiöanlega aö þeir hljóti aö segja alltaf en ekki aftan á mig. Annars héti lagiö þetta ekki. Komdu sæll Alvitur! Ég þakka Heimilis-TImanum fyrir mjög gott blaö og þó sérstaklega fyrir Kóngulóarmanninn, mér finnst hann alveg frábær. Jæja, mig langar til aö fá svar viö nokkrum spurningum. 1. Hafiö þiö birt klausu um hljóm- sveitina Queen I poppinu? 2. Hver er happalitur og steinar þess sem er fæddur 19. júni? Stina Þvi miöur man ekki sá Alvitur sem nú er viö völd lengra aftur en til april- mánaöar I fyrra og á þeim tima höfum viö vist ekki fjallað um Queen eftir þvi sem ég bezt man. Ég get þvi litlu svaraö af þvi sem þú vilt vita um þessa hljómsveit i bili aö minnsta kosti. Hver veit nema úr þvi rætist. Happalitirnir eru gulur, appelsinu- gulur og grænn litur og steinninn er agat. Kæri Alvitur! Þetta erifyrsta skipti, sem ég skrifa þér, og ég vona, aö þessi blaösnepil! lendi ekki i hinni viöfrægu ruslakörfu. Mig langar til aö fræöast svolitiö um nokkuö, sem ég er ekki alveg viss um. 1. Hvaö gengur kötturinn lengi meö? 2. Ég var aö lesa kvæöi eftir Jón Thoroddsen. Kvæöiö heitir tsland. Ég vil nú ekki lengja bréf þetta meö þvl aö skrifa allt kvæöiö, en I þvl stendur, ,,um strindi huliö svellum.” Mér finnst eins og þetta eigi aö vera stirndi. Hvort er rétt? 3. Eftir hvern er sálmurinn Heims um ból, og hvenær og hvar er hann ort- ur? Meö fyrir fram þökk 5216-0316 1. Kötturinn ku ganga meö i átta vikur, eftir þvi sem ég bezt veit. 2. Strindi mun nú vera rétt i kvæö- inu, en það þýöir eins og þú eflaust veizt, land. 3. Ég reikna meö aö þú sért aö spyrja um þaö, eftir hvaöa Islending sálmurinn Heims um ból er. Svein- björn Egilsson orti sálminn, en hann var uppi á árunum 1791 til 1852. Meðal efnis í þessu blaói: bls. Sitthvað um demanta og demantshringa.....4 Nick Nolte og Kate Jackson vinkona hans .'. 6 Söngfuglar Evrópu íhættu.................8 Chicago i Pophorninu....................13 Tréskór eru ekki alltaf heilsusamlegir......14 Flytja má stór tré..........................15 Diana ætlar þú að giftast Dreka?............26 Reiöskírteini fyrir reiðmenn................37

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.