Heimilistíminn - 02.04.1978, Síða 13

Heimilistíminn - 02.04.1978, Síða 13
Popp-kornið \ C hicago - menn hugsa ekki sjálfir um f jármálin í senn tiu ár hefur banda- riska hljómsveitin Chicago veriðbýsna vinsæl, og hvers vegna skyldi það vera? Einn hljómsveitarmann- anna svarar þessari spurn- ingu og segir: — Ætli það sé ekki vegna þess að við höf- um farið okkar eigin leiðir, og ekki haldið okkur ein- göngu við það sem verið hefur i tizku hverju sinni. Við höfum skapað ýmislegt sjálfir, og sumir halda þvi meira að segja fram, að við séum hluti af bandariskri menningu. Ekki neita ég þvi, enda er menning mjög viðtækt orð. Chicago hefur alltaf reynt aö halda peningamálunum aðskildum frá tón- listinni sjálfri, enda vita hljómsveitar- mennirnir, að peningarnir geta eyði- lagt mikið. Þeir láta aðra annast þá hliö málanna algjörlega. — Við erum tónlistarmenn, og við viljum spila, segir einn úr hljómsveit- inni. — Aðrir verða að annast peninga- málin. $tundum vinnum við að plötu- gerö, til þess að hafa eitthvað til að selja. Við viljum afla eins mikils fjár og mögulegt er, og við spiluðum 350 daga á sfðasta ári. Þá vorum viö að niöurlotum komnir. Það hefur aldrei veriö skipt um menn i Chicago i þessi tiu ár. Hvers vegna ekki? — Okkur finnst við eigin- lega verabræður. Ef einhverhættir, er ekki svo gott að fá annan i hans stað. Chicago hefur eiginlega sál, og hUn er sameiginleg öllum hljómlistarmönn- unum i hljómsveitinni. Stundum kemur þó fyrir, að þeir félagar eru ekki sérlega ánægðir hver með annan, ensvo jafnarallt sigaftur. 1 Chicago eru átta menn. Hljóm- sveitin er vel þekkt fyrir blásarasveit- ina, og er hiín ef til vill það eftirtektar- verðasta við hljómsveitina. Fyrir fjór- um, fimm árum,lá við að hljómsveitin hefði algjörlega staðnaö, en þá sömdu I aðeins tveir eða þrir félaganna lögin, sem flutt voru. Nú taka allir til höndunum á þvi sviði, og hefur þvi mikil breyting orðið þar á. Arangurinn af þessari nýjusamvinnu er svo platan If You Leave Me Now. Félagarnir i Chicago heita Peter Cetera, Robert Lamm, Walter Para- zaider, Danny Seraphine, Lee Loughn- ane, James Pankow, Terry Kath og Laudir de Oloviera. Siöustu fréttir herma að einn þeirra félaga hafi fram- iösjálfsmorö eða látiztaf slysaskoti og erþviframtiö hljómsveitarinnar óráð- in gáta. u>\

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.