Heimilistíminn - 02.04.1978, Page 15
Blómin okkar
Það er mikið um það bæði hér á
landi og annars staðar, að gömui hús
séu rifin og ný byggð i staðinn. Viö
gömul ibúðarhús eru oft grónir og
gamlir garðar, og þaö er sorglegt aö
sjá gróðurinn, sem tekið hefur langan
tima að rækta upp, verða að engu á
einni nóttu. Fólk ættiaö gera meira aö
þvi að reyna að flytja þessi gömlu tré.
Með natni er hægt að halda i þeim lifi
og þá eru þau sannarlega góð búbót i
nýjum og enn gróðursnauðum hverf-
um.
Bezti timinn til þess að gróðursetja
tré og færa þau er á vorin þegar klaki
er farinn úr jörð, og tféð i þann veginn
að byrja að laufgast. Harðgerðar teg-
undir má þó einnig færa úr stað á
haustin, en hvenær svo sem unnið er
við gróðursetningu eða flutning trjáa
veröur að gera það af mikilli natni.
Það er venjulega timinn frá þvi tréð
er tekiö upp, og þar til það er aftur
komið i jörðina, sm er þvi hættulegast-
ur. Þegar tré er tekið upp verður aö
gæta þess, aö eins mikið af rótum þess
fylgi með og frekast er kostur. Látið
jaröveginn einnig sitja fast að rótun-
um,og verið ekki að losa hann frá. Sól
má alls ekki skina á ræturnar, og vind-
ur gerir þeim heldur ekki gott, svo
ekki sé meira sagt. Bezt er svo að
vefja ræturnar inn i rakan striga, eða
stinga þeim niður i plastpoka.
fA\i) / W/1 tiWíll.
Gróöursetjið svo tréð i létta, góöa
jörð. Holan, sem tréð er sett i þarf aö
vera rúmgóð ca 60 cm djúp og svo viö
að nægilegt rúm sé fyrir rætur og þá
mold, sem þeim fylgir. Gróöursetjið
tréð á sömu dýpt, og þaö var á sinum
upprunalega stað.
Mjög nauðsynlegt er að styöja viö
tré, sem flutt er milli staöa. Bezt er að
binda það upp á þann hátt sem sýnt
erhér á teikningunni. Gætið þess vel,
að böndin, sem eru látin halda trénu
uppi, skerist ekki inn i stofninn. Gott er
aðhafa gúmmipjötlu undir böndunum,
Hún kemur i veg fyrir að börkurinn
særist. Vel getur verið nauösynlegt, aö
þessi stuðnigur sé við trén I nokkur ár.
Bezt er að stinga staurunum niður i
jörðina áður en tréð er sett niður ihol-
una, þvi annars geta þeir særsært ræt-
urnar.
Þegarfarið er að setja mold i holuna
er rétt að hreyfa tréð litillega til, og
lyfta þvi upp til þess að ræturnar falli
eölilega i holuna. Fylliö holuna ekki al-
veg, heldur er rétt að hafa 2-3 senti-
metra borö á henni, þar sem vatniö
getur safnazt fyrir. Mjög nauðsynlegt
er að vökva tréð vel fyrst eftir
flutninginn Þorni það getur það haft
slæmar afleiðingar fyrir tréð. Það
verður aö gæta þess vel allt fyrsta
vaxtartimabiliö, að tréð þorni ekki
upp, siöar nægir svo að vökva einu
sinni i viku og þá rösklega. Ekki er
þörf á að bera áburö aö nýgróöursettu
tré.
Sé farið eftir þessum ráðleggingum
segja þeir, sem vit hafa á, að ekki sé
nein ástæða til þess aö óttast að tréö
deyi, þótt það sé flutt milli staða.
fb.
15