Heimilistíminn - 20.09.1979, Síða 3
ALvitur. ,
svatarbrélum
Viö ætlum aö byrja á þvl aö þakka
þér fyrir ágætt blaö, og viö vonum, aö
þetta bréf okkar lendi ekki i ruslakörf-
unni.
Geturöu sagt okkur, hvaö stelpur,
sem eru 146 cm og 154 cm á hæö eiga
aö vera þungar?
Tvær vitlausar
Sú minni ætti liklega aö vera
eitthvaö innan viö 40 kg, ef hún á aö
lita sæmilega út, oghinþar af leiöandi
aö vera eitthvaö innan viö 50 kg. 38 og
45 kg gæti ég Imyndaö mér aö væri þol-
anlegt, án þess þó aö geta nokkuö full-
yrt um þaö, þar sem ég hef ekki séö
ykkur sjálfar.
Kæri Alvitur,
Ég hef einhvers staöar heyrt um
þaö, aö þýzkar húsmæöur hafi samein-
azt og stofnað meö sér samtök, eins
konar stéttarfélag. Er þetta rétt hjá
mér? Hvaö geturöu sagt mér um mál-
iö meira? Hefuröu heyrt um álika
félagsksap hér á íslandi?
Krakkarnir minir eru heldur öhress-
ir þessa stundina, vegna þess, aö ekki
keraur nema ein síöa af Kóngulóar-
manninum. Hvernig stendur eiginlega
á þessu?
Húsmóöir.
Þú munt hafa á réttu að standa meö
húsmæðurnar I býzkalandi. Húsmóöir
ein I Kiel hefur beitt sér fyrir stofnun
stéttarfélags húsmæðra I landinu. Þær
munu vera 14 milljo'nir talsins, svo
fámennt verður ekki þetta félag, ef
það tekur til starfa, og endist eitthvaö.
Húsmæöur á Islandi hafa ekki stofnaö
meö sér stéttarfélag, en Húsmæöra-
félag Reykjavikur er til, en þaö hefur
liklega ekki sömu markmið, og ætlum
in er aö félagið I Þýzkalandi hafi. Þar
á að berjast fyrir bættum kjörum
húsmæöra. Kannski Islenzkar
húsmæður ættu að sameinast. Ef þú
hefur áhuga gætir þú oröið sú, sem
hefur baráttuna hérlendis. Hvers
vegna ekki?
Svo er það þetta með Kóngurlóar-
manninn. Heimilis-TIminn hefur um
sinn verið minnkaður úr 40 siöum I 32.
Af þvi leiðir aö sjálfsögðu, aö minnka
verður efniö I blaöinu. Það er alltaf
matsatriði, hverju á að sleppa og hvað
á aö hafa áfram. Aldrei hefur veriö
gerð skoðanakönnun, sem gæti sagt
okkur, hvaöa efni er vinsælast. Gaman
væri að heyra frá lesendum Heimilis-
Timans, þar sem þeir m.a. kæmu meö
uppástungur og segðu til um það, hvað
þeim fyndist mætti missa sig helzt.
Kæri Alvitur,
Ég er búin aö vera gift i hart nær
tuttugu ár og á þrjú börn, þar af eitt
innan við fcrmingu. Maðurinn minn
drekkur mikiö, og ég er oröin dauö-
þreytt á þessu öllu saman. Hann fer
Ut kvöld eftir k völd og drekkur, og svo
er hann oft I burtu mestan hluta helg-
anna. Hann vill ekki að viö skiljum, en
mér finnst ekki hægt aö standa I þessu
lengur. Finnst þérégekki bara ætti aö
skilja og fara að lifa mlnu eigin lífi,
hvað sem ööru liður?
Kona drykkjumannsins.
Mér þykir ekkert skrýtiö að þú skul-
irvera orðin þreyttá þessari sambúö,
sér I lagi ekki, ef maðurinn hefur
drukkið í áraraöir. Kannski gætir þú
reynt að fá hjálp einhverra, sem taka
að sér að hjálpa drykkjumönnum, og
sjá svohvort hjónabandiö gæti batnaö,
ef maöurinn hætti aö drekka.
Sumir vilja ekki skilja barnanna
vegna, en hver og einn verður aö meta
stööuna hjá sjálfum sér. Kannski það
séalveg einsslæmt fyrir börnin aö búa
viö sifelldleiöindiog striö auk drykkju-
skaparins. Kannski gæti veriö betra
fyrir þau að vera ein meö móöur sinni
einhvers staöar fjarri fööurnum. Þau
gætu aö sjálfsögöu haldiö áfram aö
hafa samband við hann, eftir þvl sem
hægt er.
Það breytir engu, þótt maöurinn
vilji ekki skilja, þú getur fengið skiln-
að fyrir þaö, en áöur en þú gerir nokk-
uðalvarlegt i málinu, held ég þú ættir
að reyna aö tala við prest eöa félags-
ráðgjafa og sjá, hvaöþeir geta ráðlagt
þér.
Meðal efnis í þessu blaði:
Anna Frankværi fimmtug.............bls. 4
Pabbi Olympiubangsans..............bls. 8
Fátt hættulegra en hjólreiðar..... bls. 10
Rósir úr blóöi eða sjávarlöðri ....bls. 11
Ensku postulínshundarnir...........bls. 12
Stefnir Haig i Hvita húsiö..........bls. 14
Bláber i kistuna og i baksturinn....bls. 14
Fornbílar seldir á óheyrilegu veröi .... bls. 16
LowellGeorge .......................bls. 21
Kertastjaki ........................bls. 29
Vi
3