Heimilistíminn - 20.09.1979, Qupperneq 15
Sigtið saman hveiti, lyftidufti og
salti. Þeytið eggjahvlturnar og setjið
til hliðar. Hrærið þar til létt smjörlikið
og sykurinn og eggjarauðurnar. Bætið
þurrefnunum út í og mjólkinni til
skiptis vib þau. Að lokum er eggjahvlt-
unum blandað saman við og sitrónu-
safanum. Síðast eru bláberin sett út I
deigið. Stráið sykri yfir. Bakib kökuna
i 30 mlnútur I hringformi í heitum ofni.
Bláberja-eplapæ
1 1/2 bolli bláber, 4 stór epli, 1/2
bolli strásykur, 1/4 tesk. salt, 2 matsk.
hveiti, 2 msk. smjör, 2 tesk. sitrónu-
safi, 2 msk flórsykur.
Auk þess er venjuleg pæuppskrift,
en þær hafa verið af og til I Heimil-
is-Timanum að undanförnu og verða
þvi ekki endurteknar hér.
Hitið ofninn upp I 250 st. Þvoið blá-
berin ogþurrkið þau á bréfþurrku. Bú-
ið til pædeigið og setjið það innani
eldfasta mótið. Hreinsið nú eplin og
takið utan af þeim og kjarnahúsið inn-
an úr þeim. Skerið þau niður i átta
parta hvert. Leggið þau yfir pædeigið I
botninum á mótinu. Stráið bláberjun-
um yfir eplabitana. Næst er sítrónu-
safanum hellt yfir ávextina. Þá er
blandað saman sykri, salti, hveiti og
þessu stráð yfir ávextina. Setjið svo
smásmjörklumpa hér og þar. Setjið nú
lokið yf ir pæið. Bakið i 15 minútur. Þá
á að lækka hitann i ofninum niður I 200
stig og baka pæið I 30 minútur til við-
bótar, eða þangaö til pæskelin er ljós-
brún. Þá er gott að strá flórsykrinum
yfir hana, eða rétt áður en pæið er bor-
ið fram.
Gott getur verið að hafa þeyttan
rjóma eða þá einhverja istegund með
bláberjapæi þessu.
15