NT - 24.04.1984, Síða 8
Stutt - einfalt
en ekkert meir
■ Matreiðslunámskeiöið.
Sjónvarpsleikrit eftir Kjartan
Ragnarsson. Leikstjóri: Kjart-
an Ragnarsson. Aðalhlutverk:
Gísli Halldórsson, Guðrún
Ásmundsdóttir, Guðmundur
Pálsson, Valur Gíslason,
Steindór Hjörleifsson, Valdi-
mar Helgason, Jón O. Orms-
son og Órn Árnason. Leik-
mynd: Snorri Sveinn Friðriks-
son. Myndataka: Ómar Magn-
ússon. Hljóð: Baldur Már
Arngrímsson. Lýsing: Ingvi
Hjörleifsson. Tónlist: Sigurður
Rúnar Jónsson. Stjórn upp-
töku: Viðar Víkingsson.
Neyðin kennir víst naktri
konu að spinna, en fáar sögur
fara af því, að hún kenni
miðaldra karlmönnum að
kokka. Eina ráðið er því að
drífa sig á matreiðslunám-
skeið.
Leikrit Kjartans Ragnars-
sonar, sem sjónvarpið sýndi í
gærkvöldi greinir frá sex full-
orðnum karlmönnum, sem
hafa hver sína ástæðu fyrir
því að fara á námskeið í
eldamennsku. Sumir eru ein-
stæðingar, aðrir vilja komast í
takt við tímann og geta hjálpað
eiginkonunni í eldhúsinu.
Námskeiðinu stjórnar svo
matreiðslukennarinn Magnea.
Matreiðslunámskeiðið mun
vera eitt þriggja leikrita, sem
sjónvarpið valdi úr hópi 20,
Þriðjudagur 24. apríl 1984 j
■
^SÖLUl yfHHM BOÐ
LENI ELDI RULI nús- LUR
<&► IVA frígg ÞVOTTAI :FNI 2,3 kg
<>.<> ÞVO frigg ÞVOTTALl L Í)GUR 1/2 f I
1ATSÓSA gr
siNr slEP 500 gr
KORNIHRÖI 250 (KBRAUÐ gr
...vöruverð í lágmarki
Osvikin kátína
og hlátrasköll
- þegar rætt var um kjarnorku-
árás á íslandá föstudaginn langa
■ Kjarnorkuvetur,
geislavirkt úrfelli, hör-
undsbruni, dauði og skelf-
ing voru á dagskrá friðar-
viku ’84 á föstudaginn
langa í Norræna húsinu.
Samkoman sem hér um
ræðir var haldin á vegum
Samtaka lækna gegn
kjarnorkuvá og Samtaka
eðlisfræðinga gegn kjarn-
orkuvá. Asmundur
Brekkan var fundarstjóri
og hóf dagskrána með því
að ræða nokkuð um alvöru
þessa dags, lýsti því síðan
yfir að þetta yrði engin
skemmtisamkoma. Raun-
in varð líka sú að alvöru-
svipurinn á andlitum sam-
kornugesta var í full-
komnusamræmi viðum-
ræðuefni daesins.
Eina undantekningin
var erindi Guðjóns
Magnússonar, aðstoðar
landlæknis, en lýsing hans
á því hvaða nefndir og ráð
þyrfti að kalla saman á
u.þ.b. 5-10 mínútum í
upphafi kjarnorkustyrj-
aldar, vakti ósvikna ká-
tínu samkomugesta. Kvað
svo rammt að hlátrasköll-
unum undir erindi Guð-
jóns að Ásmundur sá sig
tilknúinn að „þakka Óm-
ari Ragnarssyni" fyrir
skemmtunina að því
loknu.
Þaö sem virtist þó vekja
mesta athygli á dagskrá
þessari voru lýsingar
nokkurra ræðumanna,
einkum Páls Bergþórsson-
ar á fimbulvetri þeim hin-
um mikla sem fylgja
myndi í kjölfar kjarn-
orkustyrjaldar. Kjarn-
orkuvetur þessi skapast af
gífurlegum reykjarmekki
sem hylja mun allt norður-
hvel jarðarinnar fyrstu
mánuðina eftir sprenging-
arnar og alla þá vítisbruna
sem þeim fylgja. Reykjar-
mökkinn kvað Páll myndi
verða svo mikinn að vöxt-
um að hann myndi útiloka
stóran hluta sólarljóssins
og þannig valda vetrar-
■hörkum, engu síður þótt
kjarnorkustyrjöldin yrði
að sumarlagi.
í NT á morgun verður
nánar sagt frá Friðarviku
’84.
■ Þorsteinn Vilhjálmsson útskýrir hlutföll efnis og orku. NT-mynd Róbert
Gekk glimrandi vel
Ferðaklúbburinn 4x4 fór norður
fyrir Hofsjökul á jeppum
■ Ferðaklúbburinn 4x4
braut blað í jeppaferðum
um hálendi landsins yfir
páskahátíðina. Um 25
manna hópur fór á 12
jeppum frá Hvera-
völlum, norður fyrir Hofs-
jökul, inn á Sprengisands-
leið við Tungnafellsjökul,
í Nýjadal og þaðan
Sprengisand niður í Sig-
öldu, alls um 600 km leið.
Var það í fyrsta sinn, sem
slíkt liefur verið gert.
„Ferðin heppnaðist
glimrandi vel," sagði Haf-
þór Ferdinandsson, einn
leiðangursmanna, við NT.
Hafþór sagði, að engir
óvæntir erfiðleikar hefðu
komið upp. Veður hefði
verið gott, nema hvað
snjókoma og dimmviðri
hefðu verið á Sprengi-
sandsleið. Þá hefðu menn
bara keyrt eftir kompás og
loran-C. „Við erum þaö
vanir svona ferðum, að
það kemur okkur ekkert
á óvart,“ sagði Hafþór.