NT - 24.04.1984, Síða 29
it I íþróttir
Skíðaþing:
Landsliðsmálin
efst á baugi
Hreggviður Jónsson endurkjörinn
formaður Skíðasambandsins
■ Árni Þór Árnason frá Reykjavík í sviginu en þar tryggði hann sér gullverðlaun.
„Sigurinn kom mér
ekkert á óvart“
- sagði Árni Þór Árnason frá Reykjavík
■ „Það má segja að aðalmál
þessa þings hafí verið umræður
um landsliðsmálin almennt, og
uppbyggingu á . liðum
Skíðasambandsins" sagði
Hreggviður Jónsson formaður
Skíðasambands íslands er við
ræddum við hann að afloknu
Skíðaþingi sl. föstudag. Þar var
Hreggviður endurkjörinn
formaður SKÍ og fjórir nýir
menn kosnir í stjórn.
Það voru Trausti Ríkharðs-
son. Sigurður Einarsson, Jón
Ásgeir Jónsson og Hans Kris-
tjánsson. Fyrir voru í stjórn -
kosnir til tveggja ára í fyrra -
Ingólfur Jónsson, Ottó Leifs-
son, Guðný Aradóttir og Her-
mann Sigtryggsson.
Þingið á Akureyri var gott
vinnuþing og víst er að meira
logn er nú innan SKI en oft
áður. „Það er ekki algjört logn,
það viljum við ekki“ sagði
Hreggviður og bætti við að
andinn innan skíðaforustunnar
væri mjög góður núna og allir
væru tilbúnir að leggja sitt að
mörkum til þess að gera veg
íþróttarinnar sem mestan.
Eins og Hreggviður sagði
hér að framan voru landsliðs-
málin ofarlega á baugi. Lagðar
voru fram tillögur um tilhögun
æfinga landsliðanna næsta vet-
ur og er ljóst að kostnaður við
að halda þeim úti verður geysi-
legur. Rætt var um að kostnað-
ur á hvern keppanda yrði á
bilinu 160-180 þúsund krónur
og stefnt er að því að sá
kostnaður skiptist að jöfnu á
milli Skíðasambandsins, kepp-
andans, og þess Hér-
aðssambands sem hann keppir
fyrir.
gk-Akureyri
■ Svigið er mín sérgrein og
því kom það mér ekkert á óvart
að vinna sigur í þeirri grein
hér“ sagði Arni Þór Árnason
frá Reykjavík eftir að hann
hafði sigrað í sviginu á Lands-
mótinu. Árni hafði forustu eftir
fyrri ferðina sem farin var í
glampandi sól og blíðu á laugar-
dagsmorgun og hann sýndi að
það var engin tilviljun með því
að ná langbesta tímanum í
síðari ferðinni.
„Það miðaðist allt við að
vera í sem bestri æfingu fyrir
Olympíuleikana þannig að ég
var í bestri æfingu í lok janúar“
sagði Árni. „Eftir leikana fór
ég í nokkra lægð, en síðan
hefur verið góður stígandi í
þessu og nú var ég í góðu formi
á Landsmótinu."
- Áttir þú von á svona auð-
veldum sigri hérna?
„Nei, ég átti von á harðri
keppni eins og var í fyrri ferð-
inni. Ég reiknaði með að Dan-
íel Hilmarsson frá Dalvík sem
hefur verið mjög sterkur að
undanförnu yrði erfiður, en
það gekk ekkert upp hjá hon-
um núna.“
- Árni Þór vann sinn fjórða
íslandsmeistaratitil í karla-
flokki á Landsmótinu. Hann
vann stórsvig 1982 og svig og
alpatvíkeppnina í fyrra. Árni
er 23 ára og við spurðum hann
hvort hann ætti ekki mörg góð
ár eftir á skíðunum.
„Við verðum að reikna með
því, ég vona að ég verði með í
baráttunni í svona 4-5 ár í
viðbót“.
- Árni sagði að framkvæmd
mótsins á Akureyri hefði verið
mjög góð. „Þetta hefur verið
fínt mót, allar tímasetningar
staðist og allt varðandi fram-
kvæmdina eins og best hefur
verið gert hér á landi.“ - gk
judagur 24. apríl 1984 29
Óvæntur
árangur
Atla
■ Atli Einarsson frá ísafírði
kom mjög á óvart á Landsmót-
,inu á Akureyri. Hann var að
keppa í fyrsta skipti í karla-
flokki eftir að hann varð nógu
gamali til þess, en hefur reynd-
ar keppt í karlaflokki tvö
undanfarin ár sem unglingur.
Uppskeran hjá þessurn 17 ára
pilti var ekki slorleg. Hann
varð í 2 sæti í sviginu, í þriðja
sæti í stórsvigi og í 2 sæti í
alpatvíkeppninni.
„Ég er mjög ánægður með
þetta, þessi árangur er framar
öllum þeim vonum sem ég
gerði mér þegar ég kom
hingað" sagði Atli er við rædd-
um við hann. „Það kom mér
sérstaklega á óvart að ég skyldi
ná 2 sætinu í sviginu, ég reikn-
aði frekar með góðum árangri
í stórsviginu þar sem ég varð
þriðji, þar hefði ég viljað ná 2
sætinu líka. Það er herslu-
munurinn sem vantar, en hann
kemur hugsanlega næst".
- Þessi ungi framtíðarmaður
sagðist hafa farið að keppa á
skíðum 5-6 ára og hafa keppt
síðan. „Þetta er mjög gaman
og sérstaklega þegar vel gengur
eins og núna. Eg æfði mjög vel
fyrir þetta mót og er á toppnum
núna. Það er að koma í Ijós
árangur af því erfiði sem maður
hefur lagt á sig í vetur. Ég hef
æft 3-4 tíma á dag alla daga
nema mánudaga" sagði Atli
Einarsson, hinn stórefnilegi
skíðamaður sem svo sannar-
lega kom manna mest á óvart á
Landsmótinu. - gk-Akureyri
Allarskrúíur, múríestingar, draghnoð og skotnaglar
WWF
J-x— ---------------------------------.............
...........................■
SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRUR
SUÐURLANDSBRAUT 32 - SIMI 82033