NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 25.04.1984, Qupperneq 1

NT - 25.04.1984, Qupperneq 1
Reagan bjartsýnn ■ Reagan segist vera bjartsýnn um árangur af heimsókn sinni til Kína sem hefst á morgun. Hann kom fyrst við í Honolulu þar sem hann hvfldi sig og undirbjó sig undir Kínaferð sína. Hér sést hann baða sig í Kyrrahafinu við strendur Honolulu ásamt eiginkonu sinni Nancy. Símamynd - POLFOTO Sjá erlendar fréttir bls. 23-25. Fersningamar fylla upp I fjórðung fjár- lagagatsins - kosta þjóð- félagið 400 milljónir króna NT - sló ígegn —sjá bls. 12-13 ■ Ritstjórí og fram- kvæmdastjóri NT hampa fyrsta blaðinu í prent- smiðjunni í gærmorgun. NT-mynd Róbert Háspennulinur Landsvirkjunar við Minni Núp í Gnúpverjahreppi: Valda fósturláti í 70% búpenings! Fullvíst er talið að 220 þúsund volta háspennulína Landsvirkjunar, sem liggur yfír land Minna Núps í Gnúp- verjahreppi hafi valdið því að fíestar ær þar á bæ létu lömb- um sínura löngu fyrir burð. Háspennulma liggur í 12 metra hæð yfir grasbarði sem sauðféð sótti í að liggja á. Kristján Guðmundsson bóndi á Minna Núpi og Gunnlaugur Skúlason héraðsdýralæknir á Laugaási telja báðir öruggt að rafsegulsvið sem myndast um- hverfis línuna hafi valdið þess- um óeðlilegu fósturlátum hjá ánum. Háspennulínan liggur einnig að mati bóndans hættulega nærri bæjarhúsunum þó starfs- maður Landsvirkjunar hafi fullyrt að hún sé löglega staðsett: „En ef lína fellur á jörðina án þess að rafmagnið dytti út áður þyrfti enginn að binda um sárin sín hér á bænum" hefur Kristján Guð- jmundsson eftir þessum starfs- m^nni. Sjá nánar bls. 2. ■ „Með 220 þúsund volta spennu yfír höfði sér“. Kristján Guðmundsson bóndi á Minna Núpi en þar á bænum liggtir háspennulína frá Landsvirkjun svo nærri bænum að þar þyrfti enginn að binda um sárin sín ef lína félli niður, eins og einn stafsmaður Landsvirkjunar orðaði það. -NT-mynd Árni Sæberg ■ Jarðskjálfti, sem mæld- ist a.m.k. 6 stig á Richter- skala skók borgina San Fransisco og stóran hluta Norður Kaliforníu í gær. Háar byggingar skulfu og húsgögn hreyfðust úr stað en samkvæmt fyrstu frétt- um var ekki vitað til að skjálftin hafí valdið skaða á fólki eða byggingum í borginni. Jarðskjálftinn, sem stóð yfir í 15 sekúndur átti upp- tök sín nálægt borginni San Fransisco, stöðvaði járnbrautarkerfi borgarinn- ar og lögregla og slökkvilið höfðu ekki undan að svara símhringingum frá áhyggjufullum borgarbú- um. í síðustu viku voru ná- kvæmlega 78 ár liðin frá því j arðskj álftinn mikli varð í San Fransisco en þá biðu a.m.k. 500 manns bana. Alls er talið að um 50.000 jarðskjálftar hafi orðið í Kalíforníu það sem af er þessari öld.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.