NT - 25.04.1984, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 25. apríl 1984 ' 3
Þyrlukaup gæslunnar á Alþlngi
Þingmaður biður um nýja
menn í þyrlukaupanefnd!
„Hafa ekkert vit á málinu“, segir Garðar Sigurðsson
tíma að fjalla um málið. Af'"
hverju? Jú, vegna, þess að hann
segir að nefndarmenn hafi ekk-
ert vit á því sem þeir eigi að
fjalla um. Þetta kom fram í
umræðum um fyrirhuguð kaup
á Landhelgisgæsluþyrlu í Sam-
einuðu Alþingi í gær. Sérstak-
lega fannst Garðari slæmt að
Þórður Yngvi Guðmundsson
deildastjóri í Stjórnarráðinu,
■ Garðar Sigurðsson alþing-
ismaður vill að þyrlukaup Land-
helgisgæslunnar verði tekin úr
höndum nefndarinnar sem
dómsmálaráðherra fól á sínum,
skyldi vera formaður nefndar-
innar, því hann hefði sannarlega
ekkert vit á flugi. Garðar sagði
að jafnvel hjá starfsmönnum
Landhelgisgæslunnar hefði kom
ið fram mikil vanþekking á
málinu og vitnaði í því sam-
bandi til blaðagreinar eftir einn
þeirra sem ekki hefði verið heil
brú í. Bað Garðar Jón Helgason
dómsmálaráðherra þess
lengstra orða að fela verkið
mönnum sem vit hefðu á því.
Annars kom það fram hjá
Garðari Sigurðssyni að hann
vill að keypt verði ein þyrla.
Segir tvær þyrlur ónauðsynleg-
ar, því Bandaríkjamenn geti vel
haldið áfram að bjarga okkur
þegar þyrlan er í skoðun eða úr
leik, alveg eins og við myndum
bjarga þeim ef svo bæri undir.
-NT-mynd Ámi Sæberg
■ Samúel Örn og Ásta meö dótturina á fæðingardeild
Landspítalans skömmu eftir að hún kom í heiminn.
-NT-mynd Árni Sæberg
NT-barn
fæðist
■ Samúel Örn Erlingsson, in er ein fremsta knattspyrnu-
íþróttafréttamaður NT, átti kona landsins. Og nýju stelpunni
annasaman dag annan í kippir greinilega í kynið því
páskum, því auk þess að fylgja hún valdi að koma í heiminn
íþróttaþætti nýja blaðsins úr með fæturna á undan. Þrátt
hlaði eignaðist hann og sam- fyrir það gekk fæðingin vel,
býliskona hans, Ásta B. Gunn- klukkan 15.30 heilsaði stúlkan
laugsdóttir litla stúlku. upp á foreldra sína, á fæðingar-
deild Landspítalans. Hún var
Þrátt fyrir ungan aldur hefur 14 merkur og 50 sentimetrar.
sú litla reynt ýmislegt, m.a. NT óskar þeim Ástu og
leikið þrjá landsleiki kvenna Samúel Erni til hamingju með
að vísu í móðurkviði en móðir- dótturina.
Egilsstaðir:
Fangageymslurn*
ar voru rifnar
- „Gæti skapað alvarlegt
ástand í sumar“, segir
lögregluvarðstjórinn
■ Fangageymslulaust er nú á Egilsstöðum,
þar sem fangageymslan þar var rifin rétt
fyrir páskana og enn hefur ekki verið hafist
handa við að innrétta bráðabirgðafanga-
geymslu í kjallara lögreglustöðvarinnar.
Utlit er jafnvel fyrir að lögreglan á Egils-
stöðum þurfi að notast við fangageymslur í
nágrannakauptúnum og kaupstöðum í sum-
ar en slíkir flutningar eru bæði tímafrekir og
kostnaðarsamir.
„Það gæti skapast alvarlegt ástand hér í
sumar“ sagði Björn Halldórsson lögreglu-
varðstjóri á Egilsstöðum í samtali við NT í
gær. „Hér eru haldnir fjölmennustu dans-
leikir á Austfjörðum á sumrin og miðað við
fyrri reynslu þarf að geyma milli 1/2 og 1%
samkomugesta á hverjum dansleik, og sá
ffjöldi getur verið milli 8-10 manns. Og þó
það sé ef til vill hægt að leysa málið með
öðrum hætti hefur lögreglan ekki alltaf tíma
til að ræða við menn og lempa þá til.“
Lögreglan á Egilsstöðum er nú í leigu-
húsnæði í eigu Sýslusjóðs Suður- og Norður-
Múlasýslna. Björn sagði að nú lægi fyrir
heimild á fjádögum til að kaupa húsið en
ekki væri búið að ganga frá þeim kaupum
og fyrr verður ekki komið upp varanlegri
fangageymslu á Egilsstöðum.
Danskur
vísnasöngur
■ Dönsku listamennirnir Benny Andersen
og Poul Dissing munu koma fram á sam-
komu sem Norrænu félögin efna til á
Gaflinum í Hafnarfirði í kvöld kl. 20.30.
Benny Andersen er með ástsælli skáldum
Dana og Poul Dissing er kunnur vísnasöngv-
ari.
Sunny þýðir sólríkur og þess vegna köllum við hjá
Ingvari Helgasyni. Nissan Sunny sólskinsbíl-
inn. Sólskinsbíllinn á líka ríkulega skilið svo fal-
legt nafn. Ekki bara af því að hann er óumdeilan-
lega mjög fallegur bíll, heldur líka vegna þess að
hann er tæknilega einhver fullkomnasti bíll sem
almenningur á völ á að eignast. Sólskinsbíllinn er
framhjóladrifinn, 5-gíra með 1500 cc ohc vél sem
vakið hefur mikla undrun og aðdáun fyrir snerpu
(84 hestöfl) og sparneytni (4,8 1 á hundraðið á 90
km hraða).
Bíllinn er með fullkominni sjálfstæðri gorma-
fjöðrun á öllum hjólum og 17,5 cm undir lægsta
punkt, sem gerir bæði skíðaferðirnar og sumar-
ferðalögin skemmtileg og pottþétt. Láttu þitt
eigið ímyndunarafl ráða ferðinni við að velja þér
bíl nákvæmlega samkvæmt þínum eigin óskum
því að sólskinsbíllinn er til í 14 gerðum.
Við tökum allar gerðir eldri bíla upp í nýja.
1— ——— Þú kemst í sólskinsskap þegar þú sérð verðið á sðlskinsbflnum.
B □ INGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.
SÓLSKINSBÍLLINN