NT - 25.04.1984, Page 5

NT - 25.04.1984, Page 5
Miðvikudagur 25. apríl 1984 5 Seyðisfjörður: Árlegt inn- brot í útibú kaupfélagsins ■ Innbrot var framið í úti- bú Kaupfélags Héraðsbúa á Seyðisfirði um páskahelg- ina. Par var brotinn upp nýlegur peningaskápur og greinilegt er að þjófurinn hefur búið sig vel út því m.a. voru notuð logsuðutæki til að opna skápinn. Þjófurinn hafði þó ekki erindi sem erfiði því skápurinn var tóm- ur og ekkert mun hafa horfið fémætt úr búðinni. Að sögn lögreglunnar á Seyðisfirði er þetta í þriðja skipti sem brotist er inn í kaupfélagið þar, síðast um páskana árið 1982. Öll inn- brotin eru óupplýst, og ekk- ert sérstakt bendir til að sami maðurinn hafi verið að verki í öll skiptin. Fjárlagagatið: Túkalls hækkun á bensínverði? - vefst fyrir stjórnarþingmönnum ■ Hugmyndin um að afla auk- inna tekna með hækkuðu ben- sínverði var meðal þess sem stjórnarþingmönnum gekk hvað erflðast að sætta sig við í gær þegar þeim voru kynntar þær leiðir sem nú er áformað að fara til að loka fjárlagagatinu. Ef ná á þeim 140 til 150 milljón- um króna með þessum hætti eins og ráðgert er þýðir það að hækka þarf verðið á bensínlítr- anum um 2 krónur. Framsóknarmenn vilja frekar setja á veggjald, eða svokallað- an kílótoll sem myndi gefa svip- aða upphæð. Sjálfstæðismenn eru ekki tilbúnir til þess enda lögðust þeir mjög eindregið gegn því á Alþingi fyrir ári síðan þegar frumvarp þess efnis var lagt fram í þinginu. Sömu skoðunar voru reyndar vöru- bílstjórar sem umkringdu al- þingishúsið mcð trukkum sínum og þeyttu lúðra, eins og frægt var. Líklegast er því að fallið verði frá þessu gjaldi og upp- hæðinni sem þarna átti að ná inn gleymt í bili en tekið viðbót- arlán sem því nemur. Ef þetta atriði og fáein önnur eru frá talin virðist sem stjórnarsinnar séu almennt á því að afgreiða málið í meginatriðum eftir þeim leiðum sem lagðar hafa verið fram. Því verður væntanlega lokið á fundum þingflokkanna í dag og ráðherrum gefið umboð til að Ijúka málinu á ríkisstjórn- arfundi á morgun. Sauðárkrókur: Mesti afli sem borist hefur á einum sólarhring Mesta afla sem borist hefur á land á Sauðárkróki á einum degi var landað þar á 2. páskadag. Tveir af tog- urum Útgerðarfélags Skagafjarðar lönduðu þá tæpum 400 tonnum af fiski. Þar af landaði Hegranesið um 230 tonnum, af öllum tegundum fiskjar allt frá smákarfa og upp í stórlúður sem viktuðu á annað hundr- að kíló, auk þess sem togar- inn var með um 90 tonn af þorski. Aílinn skiptist á milli tveggja frystihúsa á Sauðár- króki auk þess sem hluta af honum var ekið til Hofsóss. Mjög mikil vinna er því í frystihúsunum á Sauðár- króki og Hofsósi núna m.a. fyrir skólafólkið sem fengið hefur verið til starfa í páska- fríinu og reynt er að halda í þar til skólinn kallar á ný.. Arnarflug áfram í sólar- landaflugi fyrir Belga ■ Arnarflug hefur gert samning við belgíska flugfé- lagið Trans European Airw- ays um leigu á Boeing 737 flugvél Arnarflugs allar helgar í maí. Flugvélin verður notuð til að flytja belgíska fcrða- langa til sólarlanda, Aþenu, Túnis og Spánar og verða farnar fjórar ferðir um hverja helgi. Samningur þessi er gerður til að auka nýtingu á flugvél Arnarflugs og í þessum mán- uði hefur hliðstæður samning- ur verið í gildi við annað belgískt félag, Sobel Air. Tvær bjórstofur opnaáAkureyri ■ Tvær bjórstofur voru opnaðar á Akureyri síð- asta vetrardag. Þessar stofur voru inréttaðar í veitingahúsunum H.100 og Sjallanum og heita Baukurinn og bikarinn. Þarna er selt svokallað bjórlíki, hliðstætt því sem se!t er á bjórstofun- um í Reykjavík. Bjórstofurnar fengu góðar viðtökur og var komin biðröð fyrir utan báða staðina áður en þeir voru opnaðir. ■ Væntanlegir bjórstofu- gestir Bikarsins • H-100 bíða eftir að staðurinn opni að kvöldi síðasta vetrar,- dags. Heimsmeistarinn öruggur sigurvegari í Osló: Karpov tefldi af nán- ast óhugnanlegu öryggi Frá Kristjáni Jóhanni Jóns- syni í Osló ■ Afmælismóti taflfélags Oslóar er nú lokið. Heims- meistarinn Karpov sigraði, hlaut 6 vinninga og tapaði engri skák. Næstir urðu þeir Miles og Makaritchev með 5 'h vinning. í 4.-6. sæti urðu Nick deFirmian, Simen Agdestein og Ungverjinn Adorjan, sem gerði jafntefli í öllum skákunum, oftast eftir 14 til 16 leiki. í 7. sæti varð Hubner með 4 vinn- inga, og í neðsta sæti urðu Wedberg, Jón L. Árnason og Hort með 3 !ó vinning. Það sem mesta athygli vekur í þessum úrslitum er annars vegar einkar slæmur árangur hjá Hort og raunar hjá Hubner líka, og hinsveg- ar stjörnutaflmennska Agdesteins sem er yngstur keppenda og lægstur á skák- stigum. Agdestein er ein- stakur keppnismaður og tefl- ir hverja skák í botn og er alls óhræddur við andstæð- ingana, þó þeir séu heims- meistarar. Hitt er svo annað mál að í svona sterku móti getur það orðið mönnum til gagns að andstæðingarnir hafa ekki sérlega mikið álit á þeim. Ég gat ekki betur séð en þeir Hort, Jón L. og Wedberg kollsigldu allir í vinningstilraunum á móti Agdestein. Ekki er ég þó með þessu að gera iítið úr taflmennsku hans heldur aðeins að benda á að hann þurfti ekki að kljást við þá þraut að vinna andstæðinga sem gerðu sig ánægða með jafntefli. Þetta er í raun skiljanlegt alltsaman. Munurinn á efsta og neðsta manni í mótinu er ekki nema 2 !ó vinningur svo að ein vinningsskák skiptir sköpum. Annars er að vissu leyti gaman að þessum norska unglingi. Hann virtist ekki beinlínis hafa hugsað útí að hinir náungarnir í mótinu kynnu að vera betri í skák en hann. Eftir að hann tapaði fyrir Karpov, sagði hann í viðtali við Aftenposten, stærsta dagblað hér í Osló, að Karpov væri ótrúlega góður. Hann sagðist vera alveg steinhissa á hvað heimsmeistarinn væri flinkur að reikna út afbrigði. Okkar maður hér í Osló, Jón L. Árnason, tefldi ekki sérlega vel. Veiki bletturinn í taflmennsku Jóns var tví- mælalaust undirbúningur- inn. Það þýðir ekkert að mæta á mót af þessu tagi nema með beittar nýjungar í ermum. Þær vantaði hjá Jóni. Gangurinn í skákum hans var alltof oft þannig að hann þurfti að nota óratíma vegna þess að andstæðing- arnir komu honum á óvart snemma í taflinu. Ef tekið er dæmi af skákinni við Agde- stein þá fór sú skák fljótlega að renna eftir slóðum sem voru Jóni með öllu ókunnar. Hann hugsaði sig lengi um, - fann góðan leik sem reyndist vera fræðileg nýjung og fékk mikið betri stöðu. Skák- klukkufjandinn hafði þá reiknað með því að hann væri betur undirbúinn og þegár tímahrakið nálgaðist lagði Jón í sókn sem reyndist illa grunduð og féll síðan á tíma í tapaðri stöðu. Ég held að Jón hefði unnið þá skák ef hann hefði verið svona háiftíma fljótari með að af- greiða byrjunina. Og svo var um fleiri skákir. Vert er þó að geta að lokum að eiginlega er þetta ekkert stórslys hjá Jóni. Hann er einn af þrem stiga- lægstu keppendunum og 3 'h vinningur á móti af þessari styrkleikagráðu er alþjóð- legur meistaraárangur. Karpov tefldi af nánast óhugnanlegu öryggi í þessu móti. Nú nálgast óðfluga ein- vígi hans við skáksnillinginn Kasparov og margir hafa spáð að honum muni takast að velta heimsmeistaranum úr sessi. Ég ætla hinsvegar að ljúka þessu spjalli á því að biðja menn um að gleyma ekki umsögn norska skák- meistarans Agdestein: Heimsmeistarinn erótrúlega flínkur að reikna út atriði í skák. 1984 1985 Nýtt happdrættísár með gölda stórra vínnínga Verum því með í Happdrætti DAS Jafnframt er hver MIÐIMÖGULEIKI til stór-vinnings Búum öldruðum áhyggjulaust ævíkvöld Á rúmum þrem síðustu áratugum hefur Sjómanna- dagsráð unnið þrekvirki í velferðarmálum aldraðra með byggingu Hrafnistu í Reykjavík fyrir um 400 vist- menn og Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir 190 vistmenn. Þökk sé viðskiptavinum Happdrættis DAS svo þetta hafi áorkast. Þrátt fyrir þennan góða árangur eru langir biðlistar er bíða úrlausnar og ástand víða hörmulegt, sérlega í hjúkrunarmálum aldraðra. Sjó- mannasamtökin vinna jafnt og þétt að þessum málum eftir megni og veittri aðstoð ykkar. En þau eru heldur ekki ein um það og ber þar fyrst að minnast hins merka brautryðjendastarfs Gísla Sig- urbjörnssonar á elliheimilunum Grund í Reykjavík og Áss í Hveragerði. Og á seinustu árum ýmissa félaga, margra bæjar- og sveitafélaga og Reykjavíkurborgar og Akureyrar. En málefni aldraðra eru svo stór í sniðum að allir að lecraia beim lið, svo sæmandi sé. % I Happdrætti^^. 1 m QG Happdrættí '84-B5 1

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.