NT - 25.04.1984, Page 7
því að fólk er hætt að koma,
þótt ekki vanti snjó. Um hvíta-
sunnuna í fyrra var t.d. gott
skíðafæri en fátt fólk. í vetur
hefur verið eindæma ótíð, ég
held að dagurinn í dag sé annar
í röðinni af góðum dögum. Jú,
reyndar var ein vika sem var
svona sæmileg. Við opnum á
mismunandi tímum, stundum
um miðjan nóvember, og stund-
um ekki fyrr en í endaðan
janúar."
- Nú er mikið umferðaröng-
þveiti hér. Eru einhver áform
um að bæta aðstöðuna?
„Nei, ekki annað en að Ijúka
við veginn til Hafnarfjarðar. En
hann leysir ekki nema hluta af
vandamálinu. Erfiðast er að
halda bílastæðunum opnum,
sem sagt moka af þeim. Svo
vantar hérna hringakstur. Ann-
ars er búið að gera mikið hér á
tiltölulega stuttum tíma. Ég
held að þetta sé eina íþrótta-
greinin sem ekki hefur verið
ágreiningur um að styðja við.“
Við gengum útfyrir að þessu
viðtali loknu og hittum þar fyrir
Ingibjörgu Árnadóttur. Hún
hefur verið lengi á skíðum, og
sonur hennar Bárður er' nú
orðinn skíðakennari og vár ein-
mitt að kenna þarna þennan
dag.
„Ég var mikið á skíöum i
gamla daga. Þá voru engar lyft-
ur og maður gekk bara upp, og
~"’*v
engir snjójroðarar heldur, en
mjög gaman samt sem áður. Nú
eru líka skíðin og allur búnaður-
inn orðinn miklu betri, komnar
fínar bindingar og skór.“
- Ferðu oft hingað?
„ Alltaf þegar hefur verið fært
uppeftir. Ég er búin að vera
hérna síðan staðurinn opnaði.
Hérna er alveg eins hægt að
vera á gönguskíðum og svig-
skíðum. Ég var á svigskíðum í
morgun, var núna að koma úr
gönguferð á gönguskíðum og er
að fara á svigskíði aftur.“
Eftir að hafa talað við Ingi-
björgu lituðumst við ljósmynd-
arinn um í skjannabirtunni,
tókum myndir af skíðasvæði
barnanna, sem kallast Dýra-
garðurinn, og fórum síðan upp
í stólalyftunni. Uppi á fjallinu
sér vítt og breitt yfir íandið,
bæði niður til Reykjavíkur-
svæðisins og einnig austur á
Suðurlandsundirlendi. Súfyrsta
sem við hittum þar var Hulda
Filippusdóttir, sem reyndar
sagðist vera að leita að Ingi-
björgu. Hún sagðist alltaf koma
þegar fært væri, eins og Ingi-
björg, og í dag væri hér öll
fjölskyldan, börn hennar og
barnabörn, alls 10 manns.
„Það yngsta var að byrja í
dag. Það er tveggja ára.“
- Hvenær byrjaðir þú sjálf á
skíðum?
„Þegar ég var unglingur. Þá
■ Öm Almarsson úr Hafnarfirði.
J i fi
Miðvikudagur 25. apríl 1984 7
vorum við í Jósepsdal á
skíðum.“
í lokin upplýsti Hulda okkur
um það að Árni Þór Árnason
íslandsmeistari í svigi væri
sonur hennar. Síðan var hún
horfin án þess að okkur tækist
að ná mynd.
Næstur varð á vegi okkar 17
ára strákur úr Hafnarfirði, Örn
Almarsson, sem sagðist hafa
verið á skíðum síðan hann var
10 ára.
- Hvað ertu búinn að koma
hér oft í vetur?
„Svona fjórum eða fimm
sinnum, og ég ætla að reyna að
koma oftar um helgina. Við
erum hér öll fjölskyldan, en þau
eru aðallega á gönguskíðum
núna í dag. Ég hef sjálfur aldrei
prufað gönguskíði."
Skömmu síðar komum við
auga á tvær ungar stúlkur, sem
báðar voru staflausar. Þetta
voru þær Linda Hrönn Gylfa-
dóttir og Sigrún Ólafsdóttir,
báðar 14 ára og úr Breiðholtinu.
- Af hverju eruð þið ekki
með stafi?
„Það er betra að skíða niður
brekkuna með enga stafi. Mað-
ur er mikið frjálsari.“
- Dettiði ekki?
„Stundum".
- Eruð þið alltaf staflausar?
„Yfirleitt. En það eru sumir
sem ekki geta haldið sér uppi
staflausir.“
Skammt frá stelpunum tveim-
ur var hópur manna. Þetta
reyndust vera skíðanemendur
og kennarinn þeirra, Einar
Ulfsson. Einar er yfirkennari í
skíðaskóla Ármanns og var
þarna með 5 nemendur.
„Þetta er úrvalshópurinn í
dag, sérstakur púðurskíða-
flokkur.“
- Er fólk lengi að læra á
skíðum?
„Það tekur fimm tíma þangað
til menn geta farið í auðvelda
lyftu, ef menn koma í skíða-
skóla. Það er ekkert mál að
verða útlærður yfir páskana,
það er meira en nógur tími fyrir
fólk til að ná undirstöðuat-
riðum. Fyrir lengra komna
erum við með austurrískan
skíðakennara sem heitir Hel-
muth og er búinn að kenna í
Kerlingarfjöllum síðustu 6
árin.“
- Hvað kostar?
„100 kall á tímann."
Við fengum Einar til að renna
sér niður brekkuna á meðan
Árni tók myndir. Síðan röltum
við skíðalausir blaðamenn niður
brekkuna og fengum ýmsar
glósur frá skíðafólkinu fyrir
skíðaléysið. En fegurð dagsins
var slík að við fengumst ekki
um það og fórum niður í skála
til að fá hressingu. Skömmu
síðar vorum við á leið heim, en
skíðafólkið átti enn eftir einn
tíma í paradísinni sinni.
■ Þorsteinn Hjaltason, stjórnandinn á svæðinu.
DUNI — kaffistofa í hverjum krók!
STANDBERG H.F.
Sogavegi 108 Símar 35240 - 35242.
Á DUNI kaffibarnum eru 80 bollar sem aldrei þarf
að þvo upp. Sterk hulstur (í ýmsum litum) og að
sjálfsögðu hólf fyrir teskeiðar og sykur.
DUNI kaffibarinn getur staðið á borði eða
hangið á vegg, þannig að ekki standa þrengsli
honum fyrirþrifum.
Sérfræðingar í
einnota vörum.
Besti bar í bænum!
AÐUR KR.12.700
KR. 10.652
SINGER 7146
Vegna hagstæðra samninga við SINGER verksmiðjurnar bjóðum við nú
SINGER SAUMAVÉLAR gerð 7146 á um 2000 kr. lægra verði en áður.
• FRÍARMUR + SJÁLFVIRKUR HNAPPAGATASAUMUR
• STYRKTUR TEYGJUSAUMUR (OVERLOCK)
• EINFÖLD í NOTKUN + SPÓLA SETT í OFANFRÁ
• SKIPTING Á SAUMAFÓTUM AUÐVELD (SMELLTIR)
• ALLUR HELSTI NYTJASAUMUR
SINGER ER ALLTAF
SPORI FRAMAR.
smm
SAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3 SÍMAR 38 900 - 38 903
SINGER 7146 ER MEST SELDA SAUMAVÉLIN í EVRÓPU í DAG.