NT


NT - 25.04.1984, Síða 19

NT - 25.04.1984, Síða 19
Miðvikudagur 25. apríl 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn Á virkum degi. 7.25 Leikfimi 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Bjarni Guðráðsson, Nesi, Reykholtsdal talar. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna: „Elvis Karlsson" eftir Maríu Gripe Þýð- andi: Torfey Steinsdóttir. Sigurlaug M. Jónasdóttir lýkur lestrinum (I8). 9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar. Tón- leikar. 9.45 Þingfréttir. 10.10 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 íslenskir einsöngvarar og kór- ar syngja 11.15 Úr ævi og starfi íslenskra kvenna Umsjón: Björg Einarsdóttir 11.45 íslenskt mál Endurt. þáttur Ás- geirs Blöndals Magnússonar frá laugard. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttif. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 „fslenskar dægurlagasöng- konur Erla Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Þorbergs, Ellý Vilhjálms o.fl. syngja. 14.00 Ferðaminningar Sveinbjarnar Egilssonar; seinni hluti Þorsteinn Hannesson les (10). 14.30 Miðdegistónleikar Zdenek Bru- derhans og Pavel Stephan leika Flautusónötu nr. 8 í G-dur eftir Joseph Haydn. 14.45 Popphólfið - Jón Gústafsson. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar Sinfóniu- hljómsveit sænska útvarpsins leikur Sinfóníu nr. 2 eftir Wilhelm Peter- son-Berger; Stig Westeberg stj. 17.10 Síðdegisvakan 18.00 Snerting Þáttur Arnþórs og Gísla Helgasona. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Mar- grét Ölafsdóttir og Jórunn Sigurðar- dóttir 20.00 Bamalög 20.10 Ungir pennar Stjórnandi: Hildur Hermóðsdóttir 20.20 Útvarpssaga barnanna: „Vesl- ings Krummi" eftir Thöger Birke- land Þýðandi: Skúli Jensson. Einar M. Guðmundsson les (5). 20.40 Kvöldvaka a. Á Siglufirði Er- lingur Davíðsson flytur fyrri hluta frásagnar sinnar. (Síðari hlutinn verður fluttur á sama tíma n.k. föstudag). b. Skemmtanir í sveit- um í lok 19. aldar Eggerf Þór Bernharðsson heldur áfram að lesa úr fyrirlestri Bríetar Bjamhéðinsdótt- ur „Sveitalífið og Reykjavíkurlífið" er hún flutti 1894. 21.10 Hugo Wolf - 4. þáttur: „Spánska Ijóðabókin" Umsjón: Sigurður Þór Guðjónsson. Lesari: Guðrún Svava Svavarsdóttir. 21.40 Útvarpssagan: „Þúsund og ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir les valdar sögur úr safninu í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar (1). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 I útlöndum Þáttur i umsjá Emils Bóassonar og Ragnars Baldursson- ar. 23.15 Islensk tonlist Gisli Magnús- son leikur tvö píanólög, Rapsódíu og Barkarole eftir Sveinbjöm Svein- björnsson / Elín Sigurvinsdóttir syngur lög eftir Siguringa E. Hjör- leifsson. Guðrún A. Kristinsdóttir leikur með á pianó / Sinfóniuhljóm- sveit íslands leikur lög eftir íslensk tónskáld; Ragnar Björnsson stj. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok Miðvikudagur 25. apríl 10.00 - 12.00 Morgunþáttur Stjórn- endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir Tómasson og Jón Ólafsson. 14.00 - 16.00 Allrahanda Stjórnandi: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir 16.00 - 17.00 Rythma blús Stjórn- andi: Jónatan Garðarsson 17.00 - 18.00 Konur í rokkmúsík Stjórnandi: Andrea Jónsdóttir. Miðviicudagur 25. apríl 18.00 Söguhornið. Blástakkur - ævintýri eftir Sigurbjörn Sveinsson. Sögumaður Kristjana Emma Guð- mundsdóttir. Umsjónarmaður Hrafn- hildur Hreinsdóttir. 18.10 Tveir litlir froskar 3. þáttur Teiknimyndaflokkur frá Tékkó- slóvakiu. Þýðandi Jón Gunnarsson. Sögumaður Sigrún Edda Björnsdótt- ir. 18.25 Svona verður baðmullarefni til Þáttur úr dönskum myndaflokki sem lýsir því hvernig algengir hlutir eru búnir til. Þýðandi Bogi Arnar Finnborgason. (Nordvision Danska sjónvarpið). 18.45 Hlé 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður ; 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 EPCOT - Miljarðadraumurinn Þýskur sjónvarpsþáttur um EPCOT- skemmtigarðinn í Flórída þar sem Disney-fyrirtækið gefur gestum kost á að skyggnast inn i heim framtíðar- innar. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir. Þulur Guðni Kolbeinsson. 21.35 Synir og elskhugar. Fimmti þáttur. Framhaldsmyndaflokkur í sjö þáttum frá breska sjónvarpinu, sem gerður er eftir samnefndri sögu eftir D.H. Lawrence. Þýðandi Veturliði Guðnason. 22.30 Fiðrildin víðförlu Bresk frétta- mynd um kóngafiðrildi og ferðir þeirra um meginland Ameríku. Þýð- andi Bogi Arnar Finnbogason. 22.40 Eiturefnafaraldur í Dyflinni Bresk fréttamynd um geigvænlega útbreiðslu heróínneyslu í höfuðborg Irlands síðustu ár. Þýðandi Bogi Arnar Finnbogason. 22.55 Fréttir í dagskrárlok Otvaipkl. 11.15: „Úr ævi og starf i íslenskra kvenna“ ■ Björg Einarsdóttir var beðin að segja svolítið frá út- varpsþætti sínum kl. 11.15 Úr ævi og starfi íslenskra kvenna, en þetta verður síðasti þátturinn um þetta efni að sinni sem hún flytur. Þessir þættir hafa vakið mikla athygli hiustenda. Björgu segist svo frá um þennan þátt: „Þáttur minn Úr ævi og starfi íslenskra kvenna, sem fluttur verður að þessu sinni, er 29. þátturinn um þetta efni og sá 31. sem útvarpað er, því tveir eldri þættir hafa verið endur- fluttir. Þessi þáttur er síðasti þátturinn að þessu sinni. Ég hóf þessa þáttaröð um íslenskar konur sl. haust. Fyrir mér vakir fyrst og fremst að vekja athygli á fjölþættu starfi kvenna og að þær eigi sér sögu, þó að lítið fari fyrir henni í hinni almennu söguritun. Að þessu sinni mun ég fjalla um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, brauðryðjanda í réttindabaráttu íslenskra kvenna um áratugi. Hún fæddist 27. sept. 1856 og lést 16. mars 1940. Fyrsta blaðagrein eftir konu hér á landi, sem vitað er um, birtist í Fjallkonunni 5. júní 1885, var eftir Bríetu og bar yfirskriftina: Nokkur orð um frelsi og menntun kvenna. Fyrirlestur er hún hélt í Reykja- vík 30. des. 1887 nefndist: Fyrir- lestur um hagi og réttindi kvenna. Kom hann út sérprent- aður og á titilblaðinu stendur m.a.: Fyrsti fyrirlestur kven- manns á íslandi. Bríet stofnaði 1895 Kvenna- blaðið og gaf það út í 25 ár. Hún var frumkvöðull að stofnun Kvenréttindafélags íslands 27. jan. 1907, formaður þess frá stofnun og óslitið til 1926. Af Bríeti Bjarnhéðinsdóttur er mikil saga sem ekki hefur verið rituð til fulls ennþá. Nú er verið að undirbúa söguritun Kven- ■ Björg Einarsdóttir hefur flutt um 30 þætti um líf og starf íslenskra kvenna, sem vakið hafa mikla athygli hlustcnda. Ráðgert er að þeir komi bráð- lega út í bók og verður hffn gott innlcgg í íslenska söguritun. NT-mynd Róbert réttindafélags íslands og þar hlýtur hennar þáttur að verða stór. Aðalbjörg Sigurðardóttir lýs- ir Bríeti svo í grein um hana jog lífsstarf hennar 1947: Frú Bríet var gunnreifbardagakona, enda sóttu fæstir gull í greipar henni í vopnaviðskiptum. Hnyttin og hárbeitt tilsvör hennar, er hún var að verja áhugamál sín, lifa enn í minningu margra“. Sjónvarp kl. 20.40: Framtíðarheimur? „EPCOT - Milljarðadraumur" ■ Á dagskrá sjónvarps kl. 20.40 er þýskur sjónvarpsþátt- ur, EPCOT - Milljarðardraum- urinn. Fjallar hann um EPCOT- skemmtigarðinn í Florida, en þar gefst gestum kostur á að skyggnast inn í framtíðina, eins og skapendur garðsins gera sér hana í hugarlund. Með opnun EPCOT-garðsins í nágrenni Orlando í Florida í október 1982 gekk í uppfyllingu síðasti stórdraumur loftkastala- smiðsins Walts Disney. Þessi draumur var dýru verði keyptur, kostaði alls einn mill- jarð dollara, og er ekki enn séð fyrir endann á kostnaðinum, þar sem draumurinn verður sí- fellt að endurnýjast.Hannfjallar nefnilega um framtíðina, og hver getur séð framtíðina fyrir alveg fullskapaða? Ætlunin er að þarna standi stöðug heims- sýning, þar sem tekið verður tilllit til hugsanlegrar framþró- unar. Ellert Sigurbjörnsson hjá Sjónvarpinu tjáði okkur, að þetta væri afskaplega spennandi ■ Söngkonan SADE verður kynnt í þætti Jónatans Garðarssonar „Rythma blús“. SADE er söngkona frá Nígeríu, sem varð þekkt á árinu 1983 fyrir mjúkar jasballöður, sem hæfa vel í næturklúbbum. Eitt af þekktari lögum hennar er “Smooth Operator“. „Léttjassað popp“ í „Rythma blús“- þætti Jónatans Garðarssonar ■ Jónatan Garðarsson byrjaói með sína þætti þegar Rás 2 hóf starfsemi. Hann hefur kynnt „Rythma blús“ að undanförnu. Nú ætlar Jónatan að skipta yfir í aðra tegund tónlistar, sem er að koma fram í Bretlandi um þesar mundir, en það er létt blanda af jássi og poppi, eða „léttjassað popp“ eins og hann kallar það. í dag milli kl. 16.00 og 17.00 kynnir hann þá tegund tónlistar, og aðallega þó söngkonuna SADE, sem er afrísk í aðra ættina. Faðir hennar er frá ■ Verður þetta algeng framtíðarsýn? Nigeríu en móðir hennar ensk. Hún er sögð hafa ekki ólíka rödd og Billie Hollyday. Jafnframt ætlar Jónatan að leika lög með öðrum poppur- um, t.d. mun hann leika eitt gamalt lag með Bítlunum, þar sem þeir fara aðeins út í jassinn. Síðan tekur hann fyrir ýmsa þekkta listamenn, sem hafa að- eins leikið sér með jassinn, svo sem hljómsveitina Clash, sem kom hér á Listahátíð 1978. Jónatan hefur í sínum þáttum mikið kynnt Afríkutónlist, svo sem frá Nigcríu, Zaire, Kenya, Kongó, Suður-Afríku o.fl. löndum. Aðspurður sagðist hann ekki hafa verið í Afríku sjálfur, en alltaf reynt að kynna sér afríska músík er hann hafi verið á ferð í útlöndum, þar sem afrískir tónlistarmenn voru á ferð eða höfðu aðsetur. þáttur. Þar er reynt að gefa mynd af heimi framtíðarinnar í ýmsum sýningaskálum og á opn- um svæðum. Gestunum þykir t.d. spennandi að sjá t.d. sam- göngutæki framtíðarinnar og tölvubúnað alls konar. Annan hluta af þessum skemmtigarði segir Ellert Sigur- björnsson vera eins konar heimssýningu, þ.e.a.s. kynning á ýmsum þjóðum heimsins. Þá er reynt að móta sýningarsvæðið eftir hverju landi, t.d. eru bjór- stofur, Týrólardans o.þ.h. á þýska svæðinu. I sjónvarpsmyndinni erleitast við að sýna, hvernig þessi fram- tíðardraumur átti upptök sín og viðbrögð gesta garðsins við út- færslu Disney-draumsins. Þýðandi er Kristrún Þórðar- dóttir og þulur Guðni Kolbeins- son. Útvarp kl. 22.35: Heilsu Þjóðverja hrakar vegna mengaðs andrúms- lofts ■ Á dagskrá útvarps í kvöld kl. 22.35 er þátturinn f út- löndum í umsjá Emils Bóas- sonar og Ragnars Baldursson- ar. Efni þáttarins er fjölbreytt að venju. M.a. verður að sögn Ragnars Baldurssonar fjallað um áætlanir Kínverja um skógrækt, sem ætlað er að stöðva landeyðingu og minnka flóðahættu. Þá verður sagt frá áætlunum pakistanskra yfir- valda um að minnka ólæsi. Fornleifafundir í Norð-vestur Kína eru líka á dagskrá, en þeir sýna vel hvað silkivefnað- ur er gömul listgrein í Kína. Mengað andrúmsloft í Evrópu hefur verið talsvert til umræðu að undanförnu, ekki síst í sambandi við „súrt regn“, sem er á góðri leið með að eyðileggja skóga á meginland- inu. En mengað andrúmsloft hefur vond áhrif á heilsu fleiri lifandi vera en trjánna. Þannig hefur komið í ljós, að heilsufar Þjóðverja fer versnandi af sömu orsökum. í þættinum verður einnig fjallað urn fjármálaerfiðleika Filippseyinga og, til mótvægis, bjartsýni Thailendinga vegna hækkandi heinismarkaðsverðs á hrísgrjónum, en þeir eru stærstu útflytjendur hrísgrjóna í heiminum. Og í Búrma er mikill hagvöxtur. ■ Ragnar Baldursson er um- sjónarmaður þáttaríns í út- löndum ásamt Emil Bóassyni. í þáttunum eru sérstaklega teknar fyrir fréttir úr þriðja heiminum, sem vilja yerða út- undan í almennum fréttum. NT-mynd Róbert

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.