NT


NT - 25.04.1984, Side 28

NT - 25.04.1984, Side 28
HRINGDU ÞÁI SÍMA 8-65-38 Við tökum við ábendingum um fréttir allara sólartiriraginn. Greiddar verða 1000 krönur fyrir hverja áberadingu sem leiðir til fráttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fráttar mánaðarins. Fullrar nafraleyndar er gaett En þetta mót var nánast upp- hitun fyrir skákmótið sem hófst í New York í gær. Þar tefla 60 skákmenn í opnum flokki sem er takmarkaður við þá sem, hafa 2400 skákstig og þar yfir. 30 stórmeistarar taka þátt í mótinu m.a. Bent Larsen, Laios Portish, Brown, Christiansen og Georghiu. Þar verða tefldar 9 umferðir eftir Monrad-kerfi. Jóhann og Helgi verða báðir meðal þátttakenda. ■ Silungapollur var reisulegthússemvissulegamargir munu sakna. Ástæðan fyrír niðurrifinu er hættan á að byggð á þessu svæði geti valdið mengun á vatnsbóium Reykvíkinga. -NT-mynd Ámi Sæberg Til tryggra áskrifenda ■ Eins og áskrifendur taka eftir fylgir blaðinu í dag síð- degisútgáfan af NT í gær, sem kemur út á fyrsta degi hverrar nýrrar viku, þ.e. yfirleitt á mánudögum. NTbiðst velvirð- ingar á þessari töf, en unnið er' að því að síðdegisblaðið berist til fastra áskrifenda á réttum tíma frá og með næsta eða þar næsta mánudegi. Eins og les- endur gera sér áreiðanlega grein fyrir, þýðir þetta mikla uppstokkun á núverandi dreif- ingakerfi blaðsins og slíkt tekur því miður alltaf sinn tíma. Silungapollur rifinn niður -hlutihússinsreist- ur annars staðar Gleypti krónu og var send í uppskurð suður - sex sjúkraflug hjá Örnum ■ Þessi unga barnapía á ísafirði er greinilega þeim góða kosti búin að „deyja ekki ráðalaus.“ Þegar fólkið hópaðist i fjóllin í hundraðatali í þvi blíðskaparveðrí sem ríkti á ísafirði um páskana þótti henni eðlilega súrt í broti að sitja heima - svo því ekki að taka bara „litla manninn1' með i fjaliið. -NT-mynd Finnbogi ■ Silungapollur, sem til skamms tíma var ein af afvötn- unarstöðvum SÁÁ en þar áður sumardvalarheimili fyrir börn, er nú að hverfa af sjónarsviðinu. Flokkur manna hefur að undan- förnu unnið við að rífa húsið niður en til stendur að reisa að minnsta kosti hluta þess á nýjum stað. Að sögn Leifs Blumenstein, byggingafræðings hjá Reykja- víkurborg, var húsið í sjálfu sér í mjög góðu lagi, að minnsta kosti allir innviðir þess. Ástæð- an fyrir niðurrifinu mun hins vegar vera sú, að Hólmsland, sem húsið stendur á, er raun- verulega friðað fyrir allri byggð vegna vatnsverndunarsjónar- miða, en vatn af svæðinu rennur í vatnsból höfuðborgarbúa og getur mengun þess því orðið afdrifarík. Silungapollur var byggður árið 1927 eftir teikningum Sig- urðar Guðmundssonar, arki- tekts. ■ Flugfélagið Ernir á ísafirði þurfti að fara í 6 sjúkraflug um páskahelgina. Fyrsta flugið var á skírdag frá Flateyri til ísa- fjarðar með barn sem fengið hafði botnlangakast. Aftur þurfti að fljúga frá Flateyri að- faranótt föstudags með sjúkling á Sjúkrahúsið á Isafirði. Áðfaranótt laugardagsins var beðið um vél frá Örnum til Króksfjarðarness til að flytja mann sem fengið hafði hjartaá- fall til Reykjavíkur. Kl. 9 á laugardagsmorguninn þurfti síðan að fljúga með barn frá Bolungarvík, sem gleypt hafði krónupening og þurfti aðfara í uppskurð á sjúkrahúsi í Reykja- vík. Á 2. páskadag flugu Ernir til Reykjavíkur með mann frá Reykhólum sem fengið hafði þungt höfuðhögg og sama dag með mann frá Bíldudal sem slasast hafði á fæti og þurfti að komast á sjúkrahús á Isafirði. Vopnahlé í Kókó mjólkurdeilunni Nefnd fjögurra ráðherra sett í að leysa málið ■ Á fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorgun var samið vopnahlé í deilunni um verðlagningu Kókómjólkur og fleiri drykkja. Nefnd fjögurra ráðherra var til- nefnd til að fara í málið og reyna að finna lausn á þessari deilu. í nefndinni eiga sæti Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra, Jón Helgason landbúnaðarráð- herra, Albert Guðmundsson fjármálaráðherra og Matthías A. Mathiesen viðskiptaráð- herra. Nefndin kom saman strax í gærdag og fékk þá í hendur skýrslu um verðmyndun Kókó- mjólkurinnar og hinna drykkj- anna tveggja sem stríðið stendur um, Mangósopa og Jóka. Þessi skýrsla er nú til skoðunar. Steingrímur Hermannsson sagði í gærkvöldi að þarna kæmi fram að aðalskýringin á háu verði Kókómjólkur væri sú að í hana væri notuð geymsluþolin mjólk, svokölluð G-mjólk. Einnig væri smásöluálagning á geymslu- þolna mjólk helmingi hærri í prósentum en á venjulega mjólk vegna þess að kaupmenn þurfa að geyma hana lengur. Þá sagði hann að fram kæmi að hagnaður af þessari framleiðslu væri ætíð tekinn með í útreikningi á afkomu mjólkurstöðva og kæmi því til lækkunar á venjuiegri mjólkur- vöru. Hann sagði að það væri spurning hvort rétt væri að láta þessar vörur greiða mjólkina niður. f gærdag var iagt fram á Alþingi áður boðað frumvarp Páls Péturssonar og fleiri fram- sóknarmanna um að nýmjólk og aðrar mjólkurvörur skuli undan- þegnar söluskatti. Helgi og Jóhann íNewYork: Mættu of seint og misstu af verðlaunasæti ■ Helga Ólafssyni og Jóhanni Hjartarsyni lókst ekki að ná verðlaunasæti á New York Open skákmótinu sem lauk um helgina. Sigurvegari varð Bandaríkjamaðurinn Kevin Spragget sem hlaut 7 vinninga af 8 mögulcgum. Jóhann og Helgi fengu 5 vinninga hvor. Alls tefldu 175 keppendur í opnum flokki. í samtali við NT sagði Helgi Ólafsson að möguleikar þeirra Jóhanns á verðlaunasæti í mót- inu hefðu orðið að engu þegar þeir mættu of seint í eina um- ferðina vegna misskilnings og töpuðu skákum sínum.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.