NT - 28.04.1984, Qupperneq 28
Náði tindin
irniog dó
■ Búlgarskur fjallgöngu-
garpur, Prodanov að nafni,
setti met er hann gekk einn og
án súrefnisbirgða upp á fjallið
Everest á 33 dögum. En hann
komst ekki niður aftur.
Þegar Prodanov hafði náð
tindinum, sem er 8848 metra
yfir sjávarmáli, náðist tal-
stöðvarsamband við hann og
kvartaði hann yfir að við erfið-
leika væri að stríða. Leit
hófst þegar að fjallgöngugarp-
inum og hefur hún engan ár-
angur borið, og er hann nu
talinn af.
Dýnur og sængurföt björguöu lífi hans.
wntin
Frá viðræöum Maos og Nixons 1972. Kissinger er til hægri við Nixon, en Chou En-lai til vinstri við Mao. Túlkurinn er á milli þeirra.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
Verður Kínaferðin eins
hagstæð Reagan og Nixon?
Kínaför Nixons varð sögulegur atburður
■ ÞÆR SPÁR hafa rætzt, að
mikil athygli myndi beinast að
heimsókn Ronalds Reagan til
Kt'na, en hún stenduryfirþessa
dagana.
Fjölmiðlar hafa ekki minnst
beint athygli að því, að Reagan
fari hér í slóð Nixons forseta,
en hann heimsótti Kína fyrst
allra bandarískra forseta fyrir
12 árum eða veturinn 1972.
Af mörgum ástæðum steig
Nixon hér djarft spor, því að
mikil andúð hafði ríkt í Banda-
ríkjunum f garð Kína undan-
genginn áratug eða síðan kín-
verska stjórnin hafði sent fjöl-
mcnnan her svokallaðra sjálf-
boðaliða til'að stöðva sókn
Bandaríkjahers inn í Norður-
Kóreu.
Gagnsókn kínversku sjálf-
boðaliðanna var svo hörð, að
Bandaríkjastjórn sá þann kost
vænstan að láta undan síga og
dró her sinn til baka. Segja
má, að þetta hafi verið fyrsti
stóri ósigurinn, sem Banda-
ríkjaher hefur beðið í styrjöld.
Þessi íhlutun Kínverja í
Kóreustyrjöldinni vakti mikla
reiði í Bandaríkjunum, sem
m.a. birtist í kvikmyndahús-
um, þar sem iðulega var baulað
ef Kína var nefnt á nafn.
Þá beittu Bandaríkin sér
gegn því árum saman, að Pek-
ingstjórnin fengi sæti Kína hjá
Sameinuðu þjóðunum. Út-
lagastjórnin á Taiwan fór því
með umboð Kína þar, þótt
augljóst væri, að hún myndi
ekki eiga afturkvæmt.
Með heimsókn sinni til Kína
hjó Nixon á þennan hnút.
Honum var vel tekið í Kína.
Heimsókn hans markaði tíma-
mót í samskiptum Bandaríkj-
anna og Kína. Heimsóknin
mæltist miklu betur fyrir í
Bezt féll Nixon að ræða-við Chou En-lai.
Bandaríkjunum en búizt hafði
verið við fyrirfram.
ÞAÐ DRÓ ekki neitt úr
þessu, þótt mörgum væri ljóst,
að heimsókn Nixons til Kína
var að nokkru leyti sprottin af
persónulegum ástæðum.
Forsetakosningar voru
framundan í Bandaríkjunum
haustið 1972 og var staðan sú í
ársbyrjun, að Nixon var engan
veginn viss um endurkjör.
Hann og ráðunautar hans álitu
að heimsókn til Kína gæti bætt
pólitíska stöðu hans, eins og
líka varð.
Fréttaskýrendur benda á, að
heimsókn Reagans til Kína sé
að verulegu leyti sprottin af
svipaðri ástæðu. Ráðunautar
hans telji, að hann geti styrkt
pólitíska stöðu sína með heim-
sókninni.
Reagan hefur á sviði al-
þjóðamála orðið seinheppnari
en flestir forsetar Bandaríkj-
anna, a.m.k. til þessa. Nixon
gat bent á mikinn árangur á
því sviði, eins ogendalok Víet-
namstríðsins og bætta sambúð
við kommúnistaríkin. Carter
gat bent á samninginn um
Panamaskurðinn, sem stór-
bætti sambúð Bandaríkjanna
og rómönsku Ameríku. Hann
gat einnig bent á samninga
Egypta og ísraelsmanna, sem
höfðu náðst fyrir milligöngu
hans.
Reagan hefur ekki af neinu
slíku að státa. Kjarnavopna-
kapphlaupið hefur magnazt í
stjórnartíð hans. Ástandið í
Mið-Ameríku hefur enn snúizt
áliti Bandaríkjanna í óhag.
Bandarískur her hefur hrakizt
frá Líbanon og Sýrlendingar
gegna nú því hlutverki í Líban-
on, sem Bandaríkin höfðu ætl-
að sér. Hussein Jórdaníukon-
ungur og Mubarak Egypta-
landsforseti virðast hafa misst
trú á Bandaríkin í svipinn og
snúa sér því í auknum mæli til
Rússa. I Vestur-Evrópu er
Reagan tortryggður. Þannig
mætti halda áfram.
Þetta myndi nokkuð breyt-
ast, ef Kínaheimsóknin heppn-
aðist vel. Þess vegna á Reagan
mikið undir því, að hún mis-
heppnist ekki. Þess vegna hef-
ur hann búið sig undir hana af
mikilli kostgæfni.
Það er víst, að Reagan mun
hafa sitthvað í pokahorninu
handa Kínverjum. Hann mun
bjóða þeim hagstæð viðskipti
og mikilvægar tæknilegar upp-
lýsingar, sem yfirleitt liggja
ekki á lausu. Þá er talið víst.
að hann muni bjóða Kínverj-
um aðstoð við að byggja kjarn-
orkuver.
Þetta mun þó vart nægja.
Kínverjar leggja mesta áherzlu
á, að Bandaríkin hætti öllum
stuðningi við stjórnina á Tai-
wan. Fyrir Reagan er ekki
auðvelt að fallast á það, þar
sem það var eitt helzt loforð
hans í kosningabaráttunni
1980 að veita Taiwanstjórninni
fyllsta stuðning.
EITT ER ósambærilegt
varðandi heimsóknir þeirra
Reagans og Nixons til Kína.
Reagan mun leggja megin-
kapp á að vara Kínverja við
Sovétríkjunum og að koma á
eins konar samstarfi milli Kína
og Bandaríkjanna gegn rúss-
nesku hættunni.
Nixon lét hins vegar í ljós,
að hann færi ekki til Kfna til að
spilla sambúð Kína og Sovét-
ríkjanna. Markmið hans væri
að hafa góða sambúð við bæði
kommúnistaríkin og gera ekki
neitt upp á milli þeirra. Til að
árétta þetta fór hann í heim-
sókn til Moskvu þremur mán-
uðum eftir Kínaförina og gekk
þar frá samningi milli Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna um
takmörkun kjarnavopna (Salt
I).
Vafasamt er, að það verði
auðvelt fyrir Reagan að fá
Kínverja til samvinnu á móti
Rússum. Þeir munu að sjálf-
sögðu verða fúsir til að for-
dæma frmferði Rússa í Afgan-
istan og stuðning þeirra við
Víetnama í Kamputseu. Hins
vegar er ólíklegt til að þeir vilji
dragast í eitthvert bandalag
við Bandaríkin eða gera upp á
milli risaveldanna, sem bæði
eru heimsvaldasinnuð að dómi
þeirra. Þá munu þeir ófúsir til
að leggja blessun sína yfir
stefnu Bandaríkjastjórnar í
Mið-Ameríku og Austur-
löndum nær.
Lifði
af 45m.
fall
■ Ófeigum verður ekki í hel
komið, jafnvel þótt viðkomandi
eeri sitt besta til að yfirgefa
þetta jarðlíf. Á föstudaginn langa
ætlaði 31 árs gamall Dani að
stytta sér leið inni í eilífðina og
tók sér far með lyftu upp á 14. hæð
sjúkrahúss í Alaborg. Hann
valdi sér fljótfarnari leið niður
aftur því hann stökk út um
glugga. Fallið var 45 metrar. En
í stað þess að hafna í líkhúsi
spítalans var hann fluttur á
Slysadeild og búið það um lær-
brot sem hann hlaut af fallinu
og er sjálfmorðskandidatinn nú
á góðum batavegi.
Maðurinn stökk ekki um-
svifalaust eftir að hann komst
upp á 14. hæð Hann settist í
gluggasylluna og þar sást til
hans. Starfsfólk sjúkrahússins
flýtti sér í ofboði upp til manns-
ins og reyndi að telja honum
hughvarf. Honum var fært kaffi
og sígaretta og þáði hann
hvorutveggja. En hann fékkst
ekki til að koma inn aftur og var
staðráðinn í að taka stökkið
stóra.
Meðan læknar og hjúkrunar-
fræðingar töfðu fyrir manninum
hugsjúka kom slökkvilið borg-
arinnar á vettvang og án þess að
sjálfsmorðskandidatinn . veitti
því athygli röðuðu slökkiliðs-
mennirnir dýnum hverri ofan á
aðra á þann stað sem líklegt
þótti að maðurinn mundi landa
á. Þegar maðurinn hafði hresst
sig á kaffi og sígarettu stökk
hann. En dýnurnar og sængur-
fötin björguðu lífi hans og lær-
brot voru einu alvarlegu meiðsl-
in sem hann hlaut af 45 metra
háu falli.
■ Sjálfsmorðskandidatinn í 45
metra fallinu