NT - 04.05.1984, Page 5
Föstudagur 4. maí 1984 ' ‘5
Bæjarleiðir buðu betur:
Missirvinnunavið
sjúkraaksturinn
„Svínarí ef Ármann hættir“, segir vistmaður dagspítalans að Hátúni
■ í dag bendir allt til þess, að
Ármann Magnússon, leigubíl-
stjóri, sé atvinnulaus vegna til-
boðs Bæjarleiða í sjúkraakstur
þann sem Ármann hefur annast
undanfarin ár. Tilboð Bæjar-
leiða er 21% undir taxta.
Ármann Magnússon hefur
s.l. 5 ár annast flutninga á
hreyfifötluðum og sjúkum vist-
mönnum dagspítalans að Há-
túni. Sú ráðstöfun átti upphaf-
lega að vera til bráðabirgða, að
sögn Ármanns, uns Landspítal-
inn hefði komist yfir sérstakan
bíl til umræddra sjúkraflutn-
inga. Svo fór þó að Ármann
ílentist í starfinu, þar eð í Ijós
kom að þessi tilhögun var mun
hagkvæmari en sú sem ráðgerð
hafði verið.
21%undirtaxta
Nýlega var þessi akstur síðan
boðinn út, í sparnaðarskyni og
tilboði Bæjarleiða tekið, sem
var 21% undir þeim taxta sem
Ármann ekur á.
Ármann tjáði NT að í fyrra-
dag hafi verið haldinn 170
manna fundur í stéttarfélagi
hans, Bifreiðastjórafélaginu
Frama, en það er stærsti aðili að
BÍLS. Á fundinum vareinróma
samþykkt að þetta niðurboð
Bæjarleiða yrði ekki liðið.
Fundinn sátu m.a. bílstjórar frá
Bæjarleiðum.
„Bæjarleiðamenn eru félagar
í stéttarfélagi leigubílstjóra, en
skv. lögum stéttarfélagsins er
óheimilt að undirbjóða öku-
taxta", sagði Ármann.
Ármann sagði jafnframt að ef
þetta undirboð yrði tekið gilt og
látið viðgangast, þýddi það at-
vinnumissi fyrir sig, en hann
hefur haft lífsviðurværi sitt af
þessum akstri undanfarin ár.
■ Karl Þórðarson vistmaður dagspítalans, segir starfið ekki fyrír
alla.
Ekki starf fyrir alla
Karl Þórðarson, vistmaður á
dagspítalanum, kvaðst mikið
gagn hafa af umræddum sjúkra-
akstri, en Karl er bundinn við
hjólastól og þ.a.I. ófær um að
ferðast hjálparlaust. „Ármann
er natinn og hjálpsamur við
þetta gamla fólk“ sagði Karl við
blm. NT, „þetta starf er alls
ekki fyrir hvern sem er“. Karl
fullyrti að Ármanns yrði saknað
af sjúklingum í Hátúni 10,
neyddist hann til að hætta störf-
um þar.
■ Ármann Magnússon aðstoðar aldraða sjúklinga.
'sólu ríkisbanka. Kott>rún Jónsdó.úr. Kr.sún S. Kvaran.
Flm,.GUðmundurt.na^sonUcneJ.ktsson
.:t L'
Flm,- Guömundur > Bened.ktsson undsbanka
aúa lagaheunddar U» d rð\ eíurfar-
. , r aö feta' rík.sst)órnmn. til ldutaíélaga. coA
“KS,mch»»»«““WO'h k „ J
■ SSXgssSSm^ ** ^
^nn ótvir^ðan
kvið myndun
Jttrystu um'
khefur átt
„—-r—r --------kÍ‘*r innan þcirra marklT^I^*
r^v=r„y,n 'f>urf'jaalvinnuVtfgum og þjóóarbúi. (baráltuSL
^ ðbo'guna vcrður aó gat.a fvss aö afkoma fvirra scm vcrs. cru vcli
áínm á«?ðiLn"'T "mm"** I'k.namálum. Haldið vcrísl
a ...m að Ukka ,tj„a „p „llla. mcð mik|um,,
n. , jdlnlr.im, þv, «. unn.ð vc.ð, uð hcildaLdunktóun
áhm.úm íCT r launalckjum vc.ði ufnummn ,
áhcrslaÚðpðT^f ' 7*^'*' áfram að jufna hushilunarkmilnaðug
a^t-rsla logð d aögcrðix tii orkusparnaðax.
Minnku vcröur cnn umvvif rfkisinv. sclju- rfkisfyrirucki brcv.a
V.ðsk.plabnnkum , c.gu rikisins i almcnningshlulafcliigúg lu„, 'vcrkcfúí
•g ,ck,us,„,„a „I svciiurfclaga cfii, hv, scm k.rsru, Úr. Ffárfcbngú"
tói,aa‘ahTdi7,?k-■ Tlui’ lH'in Hvarvcina vcrður uð
ÚÚÚ k Ú K rikisrcksirinum „g lciia nýrra lciða „I að huð fjármugn
bÚ-lú « Í “k' “mrÍ‘'"v h'"'‘,ck''"“ ■'* l'amkvaimda nýíisi á sÚm
hcslun og hugkvumaslan hall. Sýna vcrður fyllsiu ábvrgð irikisfiirmil
unum »6 Iryggja cfiir fungum halluluusan rcksiu, „kjssjðúú
Vegir frjálshyggjunnar órannsakanlegir:
Sjálfstæðismenn á móti
sölu ríkisbankanna
■ „Ég greiddi náttúrlega at-
kvæði í samræmi við samþykkt
Landsfundar Sjálfstæðisflokks-
ins, en við vorum víst bara tveir
um það ég og Albert. Þetta
hlýtur að vera einhver misskiln-
ingur, menn hafa bara ekki
áttað sig á þessu.“ Svo fórust
Eyjólfi Konráð Jónssyni alþing-
ismanni orð er NT innti hann
álits á atkvæðagreiðslu um
þingsályktunartillögu Banda-
lags jafnaðarmanna um sölu
ríkisbankanna. Tillagan sem
felur í sér að ríkisbönkunum,
Landsbanka, Útvegsbanka og
Búnaðarbanka, verði breytt í
almenningshlutafélög að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum,
var felld við atkvæðagreiðslu í
Sameinuðu þingi í gær með 35
atkvæðum gegn 5. Áuk þriggja
þingmanna Bandalags jafnað-
armanna greiddu aðeins tveir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
tillögunni atkvæði. Meðal
þeirra sem greiddu atkvæði
gegn tillögunni má nefna for-
mann Sjálfstæðisflokksins, Þor-
stein Pálsson og Sverrir Her-
mannsson iðnaðarráðherra.
Afstaða þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins er athyglisverð fyrir
þær sakir að í stjórnmálaályktun
Landsfundar Sjálfstæðisflokks-
ins segir að breyta beri við-
skiptabönkum í eigu ríkisins í
almenningshlutafélög. í henni
segir orðrétt: „Minnka verður
enn umsvif ríkisins, selja ríkis-
fyrirtæki, breyta viðskipta-
bönkum í eigu ríkisins í al-
menningshlutafélög og færa
verkefni og tekjustofna til sveit-
arfélaga eftir því sem kostur
er.“