NT


NT - 04.05.1984, Síða 6

NT - 04.05.1984, Síða 6
Föstudagur 4. maí 1984 6 „Sögusagnir að sjónvarpið eftir að tala við Warner Bros. og CBS, sem við sennilega hittum nú í byrjun júní.“ - Hvað er planið núna? „Eftir að við erum búnir að taka upp, þá förum við í hljómleikaferð um landið, og ég ætla að reyna að halda eina stóra hljómleika í einhverju af bíóhúsunum í Reykjavík. Ég ætla að gera þá eins flotta og hægt er og hafa ódýrt inn. Svo er planið að fara út og reyna að halda áfram að gera það sem við erum að gera þar.“ - Á að fara „on the road“ í Bandaríkjunum? „Já, eða að reyna að spila í klúbbum og sem víðast. Ann- ars á líka að reyna með vídeó- ið, það er mjög mikilvægt í Ameríku. Eitt lag- í vídeói getur gert miklu meira en margra mánaða spilamennska á tónleikum.“ - Hvernig er fílíngurinn í bransanum í Ameríku? „Það er svolítið erfitt að segja um það. Það er mikið af iðnaðartónlist, mjög komm- ersíal tónlist sem dómínerar alla lista, en samt, það er alveg ■ Bubbi Morthens er nú kominn til landsins og náði NT tali af honum skömmu eftir kom- una. Eins og fram hefur komið í blaðinu er hann kominn til þess að fara hljómleikaferð I um landið, og einnig til að taka upp demó fyrir bandarísk útgáfufyrirtæki að hlusta á. Annars var viðtalið svona: demóupptökur og sessionfólk sem þýddi það að við hefðum ekki verið í eins sterkri samn- ingsaðstöðu. Við erum komnir þarna til að díla við þessi fyrirtæki, og þó þetta hafi feng- ið hjartað til að hoppa þá tókum við frekar þá ákvörðun að koma og taka þessi teip sjálfir, þá eigum við þetta og getum valið hvaða fyrirtæki við tökum.“ - En núna komstu fyrr en þú ætlaðir þér. „Út af því. Að fara inn í stúdíó og taka þessi sex lög.“ - Hvaða fyrirtæki talaðirðu við? „MCA, Arista. Við eigum - Af hverju komstu heim svona snemma? „Ástæðan er sú að við Danni vorum búnir að vera á fundi með fyrirtækjum. Svo hittum við fyrirtæki sem var tilbúið að lóðsa okkur inn í stúdíó með því skilyrði að þeir borguðu ■ Bubbi Morthens NT-mynd: Árni Sæberg Skipulagsmál ASÍ: Eitt félag fyrir allt landið -eða samband landssambanda! ✓ ■ Verður Alþýðusamband Islands í framtíðinni skipulagt sem eitt verka- lýðsfélag fyrir allt landið, - eða verður það gert að einskonar yfirsambandi fyrir landssambönd atvinnugreina, sem aftur skiptast í verkalýðsfélög sem að sínu leyti koma jafnvel til með að skiptast í deildir? Svo ólíkir voru þeir valkostir sem skipulagsnefnd ASI kynnti á blaðamannafundi nýlega. Frá stofnun Alþýðusam- bandsins 1916, hafa aðeins verið gerðar á því tvær skipulags- breytingar. Sú fyrri 1940, þegar skilið var á milli ASÍ og Alþýðu- flokksins og sú síðari 1968, en þá voru stofnuð landssambönd ýmissa félaga sem áður höfðu átt beina aðild að sambandinu. Nú eru 8 landssambönd ASÍ, en auk þess eiga 36 verkalýðs- félög beina aðild að samband- inu. - Er breytinga þörf? í megindráttum virðast tvenns konar sjónarmið iiggja að baki þeim hugmyndum sem nú eru uppi um skipulagsbreytingar. Annars vegar velta menn því fyrir sér hvort ekki sé þörf á víðtækara samstarfi innan at- vinnugreinanna en nú er, og hvaða form muni best henta slíku samstarfi. Hins vegar er því ekki að leyna að verkalýðs- hreyfingin hefur hér sem annars staðar smám saman orðið viða- mikil stofnun í samfélaginu, sem veitir félagsmönnum sínum ýmsa þjónustu og þarf að geta staðið undir þeim hluta starf- seminnar. Eins og nú er ástatt í skipu- ■ Fulltrúar skipulagsnefndar ásamt forseta ASI kynna mögu- legar breytingar á skipulagi sambandsins fyrir blaða- mönnum. Á myndinni eru talið frá vinstri: Helgi Guðmunds- son, Þórir Daníelsson, Ás- mundur Stefánsson og Lára Júl- íusdóttir. NT-mynd: Róbert. lagsmálum hreyfingarinnar eru mörg verkalýðsfélög of lítil og vanburða til þessarar þjónustu- starfsemi. - Eitt félag fyrir allt landið... Meðal þeirra hugmynda sem fram hafa komið að nýju skipu- lagi er að ASÍ verði gert að einu allsherjar verkalýðsfélagi fyrir allt landið. Ef þessi hugmynd yrði ofan á, sem reyndar verður að teljast fremur ólíklegt af ýmsum ástæðum, myndi hver félagsmaður annað hvort eiga beina aðild að ASÍ eða vera meðlimur í stórri landshluta- deild, sem í flestum tilvikum tæki yfir heilt kjördæmi. Þess má geta að í Danmörku mun að undanförnu hafa brydd- að á hugmyndum af þessu tagi. - ...eða starfs- greinasambónd Önnur aðalhugmyndin sem forystumenn ASÍ velta fyrir sér í þessu sambandi, er fólgin í því að skipuleggja ný atvinugreina- sambönd, sem byggjast einungis að mjög takmörkuðu leyti á núverandi landssamböndum. Þessi hugmynd gengur mjög í sömu átt og þær samþykktir sem gerðar hafa verið á þingum ASÍ, fyrst 1960 og síðast 1980. í þessu tilviki er gert ráð fyrir verulegri uppstokkun. Mörg göm- ul og gróin verkalýðsfélög yrðu lögð niður og ný mynduð í staðinn. Nýju félögin yrðu í flestum tilvikum stærri, 'ein- ■ Verður stofnað sérstakt landssamband fyrir starfsfólk í fískvinnslu? eða verður allt starfsfólk í matvælaiðnaði í sama sambandi? eða verða sjó- menn og fiskvinnslufólk saman? skorðuð við ákveðna atvinnuein og leitast yrði við að láta alla sem vinna á sama vinnustað tilheyra sama félagi. Þar sem Alþýðusambands- þing hafa þegar gert ýmsar á- lyktanirsem gangaí þessa átt, virðist kannski ekki ólíklegt að þessi valkostur verði ofan á. í því sambandi er þó rétt að benda á, að þetta hefur í för með sér ýmsar veigamiklar breytingar sem óvíst er að sam- komulag náist um. Til dæmis eiga núverandi verkalýðsfélög sum hver allverulegar eignir og það gæti orðið erfitt verkefni að skipta þeim milli hinna nýju félaga. Niðurstaðan af þessu öllu saman gæti því sem best orðið sú að látið verði nægja að gera einhverjar minni háttar breyt- ingar á núverandi skipulagi til að laga það að breyttum aðstæð- um. Skipulags- fundir ■ Nú um helgina verða haldnir fundir með full- trúum starfsfólks úr þrem- ur atvinnugreinum innan vébanda ASÍ. Fundir þessir, sem fjalla um skipulagsmál hreyfingar- innar, munu taka sérstak- lega fyrir samstarfið innan atvinnugreinarinnar, þörf- ina fyrir það og hvaða skipulagsform henti best fyrir slíkt samstarf. Þessir fundir marka upphaf umræðu um skipu- lagsmál ASÍ, en sérstök skipulagsnefnd er nú starf- andi á vegum sambands- ins.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.