NT - 04.05.1984, Síða 7
Föstudagur 4. maí 1984
'tl
Súfyndi
n-
um mig sýna
er lélegt hér“
astaersúaði
éghafiveriði
úf/'afþví,
nkókið
að
var
svo ódýrt
Ameríki
gomma af góðum nýbylgju-
böndum og pönkböndum. Ég
held að það ægi saman öllu
milli himins og jarðar. Petta er
það fjölbreytt.“
- Hvemig er með Egó?
„Ég er formlega hættur í
Egó. Og kem ekki til með að
syngja með þeim inn á plötu
framar eða á tónleikum.
Ástæðan er sú að ég ætla mér
að einbeita mér að því sem ég
er að gera. I öðru lagi þá reis
upp ágreiningur milli okkar út
af smáhlutum sem vonandi
eiga eftir að lagast þegar tím-
inn líður hjá. Síðan var ég ekki
sáttur við að Steinar h/f gaf út
þessa plötu. Það var ein ástæð-
an fyrir því að ég hætti í Egó. “
- En var þessi plata ekki
samningsbundin?
„Jú, hún er samningsbund-
in. En það var búið að gefa
okkur vilyrði um það að við
mættum fara ef okkur líkaði
ekki. Því miður veit ég of lítið
um þessa hluti því ég var að
taka upp sólóplötuna og vasast
í henni þegar Bergþór og Rún-
ar gengu endanlega frá samn-
ingum við Steinar. Þeir voru
meirihlutinn í bandinu þá og
eru alveg menn til að standa
undir því sem þeir gerðu þá.
Þeir gera það.“
- En nú hefur þetta alltaf
verið kallað bandið þitt. Þetta
hefur alltaf verið Bubbi og
Egó?
„Já. Það er bara eins og
gerist og gengur."
- Hvernig heldurðu að þínir
textar gangi í Ameríku?
„Pólitísku textarnir eru ekk-
ert mjög vinsælir en mikið af
því efni sem ég er að gera fílast
vel. Ég hef engar áhyggjur af
því.“
- Og er meiningin þá að
búa alveg í Ameríku?
„Meiningin er að búa þar
einhvern stóran hluta af árinu
og koma svo heim til að hvíla
sig, safna energí og byggja upp
hluti hérna. Það má segja að
ég hafi flutt mig um set í starfi
mínu. Ég hef meiri áhuga á að
byrja upp á nýtt og berjast
fyrir því sem ég er að gera
heldur en að sitja hérna heima
og horfa á allt koðna niður og
menn naga hvorn annan niður
og leiðindi. Þá hef ég meiri
áhuga á því að fara út og reyna
aö gera það sem ég geri best og
reyna að sigla upp nýjar braut-
ir.“
- Koma þessar tvær plötur
til með að verða síðustu plöt-
urnar sem þú gerir hér heima?
„Nei, nei, ég kem örugglega
til með að halda áfram að gefa
út plötur hérna.“
- Nú hefur Strákarnir á
borginni orðið „hit“-lag?
„Þetta lag var samið út af
því að í öllum þjóðfélögum
eru minnihlutahópar, hvort
sem það eru hommar eða
eitthvað annað, nú óhjá-
kvæmilega er búið að vera að
ráðast á homma opinberlega
og greinilega eiga þeir undir
högg að sækja í þessu þjóðfé-
lagi. Ég var búinn að bíða
heillengi eftir því að einhver af
listamönnunum í bransanum
myndi kannski lyfta litla fingri
til að benda á þessa hluti, en
sem von og vísa var gerði það
enginn. Ég tók þá ákvörðun að
reyna að semja lag sem væri
hægt að skilja án þess að það
ýtti fólki burt, að það vekti
fólk til umhugsunar. Og fá fólk
til að líta jákvæðar á homma.“
- Veistu hvor platan hefur
selst meira?
u
„Ég hef ekki hugmynd um
það. Hins vegar vona ég að
mennirnir á Fosshálsi með sitt
bissnissvit græði vel á þessari
stórkostlegu ædíu sinni að gefa
út Egó-plötu um leið og mína.
Það sýnir að þeir eru vakandi
frjóir bissnissmenn og ekki
hafa þeir sparað við sig auglýs-
ingarnar. Ég vona svo sannar-
lega að þeir fái upp í auglýsing-
arnar. Ánnað væri synd.“
- Hvað heitir bandið í Am-
eríku?
„Das Kapital.“
- Og hverjir eru í þessu
bandi?
„Það eru ég og Danny
Pollock, breskur trommari
sem heitir Paul, og svo er
bassaleikari enn óráðinn. Við
erum að pæla í að fá bassa-
leikara og gítarleikara."
- Verða þeir erlendir?
„Já. En enn sem komið er
erum við Danny að pæla í að
halda nafninu við okkur tvo,
hvað sem síðar verður.“
- En af hverju þetta nafn?
„Bandarískt þjóðfélag
stendur fyrir þessu kapítal-
■isma-image. Nú, Marx samdi
ágæta bók með þessu nafni.
Mér finnst það líka bara gott
nafn, gott bæði fyrir hljómsveit
og image.“
- Á að skapa einhverja nýja
ímynd eða image?
„Það er alveg óráðið.
ímyndin skiptir miklu máli
þarna úti, alveg jafnmiklu og
tónlistin. Þannig að maður
verður að gá að því hvað þú
ætlar að presentera, hvað þú
ætlar að segja. Maður er svona
að velta vöngum fyrir því
þessa dagana.“
- Hvar kemurðu til með að
búa þarna úti?
„í Los Angeles. Síðan ef
hlutirnir ganga upp færi ég mig
um set.“
- Hvað með Steinar?
Hvernig er því máli háttað
núna? Ersamningurinn búinn?
„Ég tel hann búinn. Þetta
stríð á milli okkar held ég að
hafi komið til út af því að ég
sagði í blaðaviðtali að ég var-
aði fólk við að skrifa undir
samning við hans fyrirtæki. Ég
hefði kannski átt að taka skýrt
fram: Nema með lögfræðing
við hliðina á sér og að vel
yíirveguðu máli. Nú, ég fatta
ekki alveg þessar árásir hans á
mig í blöðunum, nema að því
leyti til að hann telur sínu
fyrirtæki ógnað. Þetta virðist
aðallega vera stríð um hver
hafi nafnið, Bubbi Morthens,
Steinar eða einhverjir aðrir.
Hins vegar þá nenni ég ekki að
ræða þá hluti hvort Steinar
telji mig ruglaðan, misvitran í
útistöðum við allt og alla. Ef
honum finnst það þá er það allt
í lagi. Gott og vel.“
- En nú er þetta fyrirtæki
búið að hala inn peninga á þér.
Það gefur alveg auga leið.
„Nei. Þeir segja að þeir hafi
ekki halað inn peninga á mér.
Þetta fer allt í kostnað segja
þeir.“
- Stóð ekki til að Egóið færi
til Englands?
„Það stóð til, nema það að
við gerðum sérkröfur, ef að
við skrifuðum undir nýjan
Egó-samning þá átti það líka
að gilda um mig, Begga og
Rúnar sem sólóartista, ég sagði
nei, gerði sérskröfur um mig
sem sólóartista og við hækkuð-
um fyrirframgreiðsluna úr
150.000 upp í 300.000. En þá
kom það upp úr kafinu að Egó
skipti þá ekki máli, það var ég
sem skipti máli. Það kom fram
á fundi, og þeir sögðu kröfur
okkar svo fáránlegar að það
kæmi ekki til greina að ganga
að þeim nema ég skrifað undir
þeirra samnming. Það var
ástæðan fyrir því að við hætt-
um við að fara til Englands.
Hins vegar var ég búinn að
gefa Steinari vilyrði fyrir því
að halda áfram á samning hjá
honum sem sólóartisti, en ekki
að skrifa undir einn samning. í
öðru lagi var ákvæði í samn-
ingnum um að þeir geti rift
samningnum fyrirvaralaust og
við ekki og í öðru lagi hefðu
þeir getað framlengt samning-
num um tvö ár. Þessu gengum
við ekki að, og þess vegna var
platan tekin upp hér heima.
Við hefðum líka þurft að gera
nýjan þriggja platna samning."
- Hvað finnst þér um þessar
sögusagnir sem ganga um þig?
„Það sýnir að sjónvarpið er
lélegt á íslandi. Það eru alveg
furðulegustu sögur sem ég hef
heyrt. Sú fyndnasta er sú að ég
hafi farið út af því að kókið var
svo ódýrt í Ameríku."
ööaeiningaf
sinn?
orumargara
: c-vrtatntnt'
seidiáísland'
Svar:
D a) J
§ % &
V’ i-ÍHNVNNl'tmi
Ertu ekki til í Svalandi Sumarferð til Flórída í tvær vikur?
Vertu með í Svala sumargetrauninni, það veitir þér möguleika á að dveljast á
Flórída í tvær vikur með ...? þú ræður.
Nafn:
Sími:
Heimili:
Sendið svörin til: Sól hf. „Svala sumargetraun" Þverholti 19 105 Fteykjavík
Svörin þurfa að berast okkur fyrir kl. 5 e.h. þriðjudaginn 8. maí n.k.
FVRIRTVO! auk þess eru 25 aukavinningar,
hver þeirra kassi af Svala 1/4 Itr. fernum