NT


NT - 04.05.1984, Síða 25

NT - 04.05.1984, Síða 25
■ Feime Barjami hefur búið í Svíþjóð í 15 ár, eða frá því hún var barn. En þegar hún giftist sænskum manni og tók kristna trú hófust ofsóknir á hendur henni. Svíþjóð Mann- ránaf trúar- ástæðum ■ Mannrán af trúar- ástæðum var framið í Sví- þjóð í síðustu viku. Þá var júgóslavneskri stúlku rænt. S.l. laugardagskvöld fann lögreglan í Málmey stúlkuna og var þá liðinn hálfur annar sólarhringur frá því henni var rænt. Stúlkan er 21. árs og heitir Feiine Barjami. Hún flutti ásamt fjöl- skyldu sinni til Svíþjóðar, en fjölskylda stúlkunnar er múhameðstrúar. í Málmey kynntist hún Birni Fáldt, er þau voru starfsfélagar, og felldu þáu hugi saman. Barjami til- kynnti fjölskyldu sinni að hún hygðist giftast Birni og taka kristna trú. Það var illa séð en þau giftust samt. Fyrirréttum mánuði ruddust nokkrir menn inn í íbúð þeirra hjóna og misþyrmdu eiginmannin- um. Eftir það fluttu hjónin til bæjarins Skövde, þar sem foreldrar Björns búa, og vonuðust til að geta haldið heimilisfangi sínu þar leyndu. En hjónin fengu ekki að vera lengi í friði. í s.l. viku ruddust nokkrir grímuklæddir menn inn á heimili foreldra Björns er hann var í vinnunni og drógu konu hans nauðuga út í bíl og óku á brott. Bróðir Bajr- ami og strangtrúaðir vinir hans voru grunaðir um ránið og á laugardags- kvöld sá lögreglan í Málm- ey hvar þeir komu með stúlkuna út úr húsi því sem þeir búa í og færðu hana út í bíl, en auga var haft með húsinu. Bróðir hennar og félagi hans voru handteknir. A meðan á leit stúlkunnar stóð var hafður strangur vörður á flugstöðvum og við ferjubakka til að koma í veg fyrir að Barjami yrði flutt nauðug úr landi. Feime Barjame hefur búið í Svíþjóð síðan hún var 6 ára göniul. Hún giftist Birni Fáldt á síðasta ári. Hann neyddist til að hætta starfi sem skrifstofu- stjóri í Málntey vegna of- sókna hinnar strangtrúuðu fjölskyldu konu sinnar og flytja til Skövde, sem er þorp um 40 km frá borg- inni. Hart deilt um framtíð Kýpur Sameinuðu biódimar-Kcuter Sameinuðu þjóðimar-Reuter ■ Spyros Kipraianou forseti Kýpur ávarpaði Öryggisráðið í gær og sagði að dagar Kýpur sem sjálfstæðrar þjóðar væru senn taldir ef Öryggisráðinu tækist ekki að koma í veg fyrir sundurlimum ríkisins. Forsetinn skoraði á ráðið að taka skjótar ákvarðanir til að koma í veg fyrir að eyjunni yrði skipt. Hann var fyrstur á mælendaskrá þegar Öryggisráð- ið hóf umræður um þær aðgerðir sem Kýpur-Tyrkir hafa á prjón- unum varðandi stjórn Kýpur, en í nóvembers.l. lýstu þeiryfir sjálfstæði þess hluta eyjarinnar sem tyrkneski herinn hertók A eftir forsetanum talaði Rauf Denktash, leiðtogi Kýpur- Tyrkja og vísaði á bug öllum ásökunum fyrsta ræðumanns. Hann ásakaði Kýpur-Grikki og Grikkland fyrir að hafa fyrir löngu síðan efnt til samsæris um að eyðileggja þá tveggja þjóðar- brotastjórn sem ríkt hefur á Kýpur og leggja eyjuna alla undir Grikkland. Nýlega skiptust Tyrkland og „Tyrkneska lýðveldið á Norður- Kýpur" á sendiherrum, og Tyrkir tilkynntu um miklar stjórnarbætur sem þeir ætla að gera á eyjunni og hyggjast þeir efna bar til kosninea. Kipraianou sagði engan vafa leika á að Tyrkir ætluðu að kljúfa Kýpur, þótt þeir þættust taka þátt í samningaumræðum um framtíð eyjarinnar. Hann sagði að aðskilnaðurinn sem Tyrkir stefnu að væri fyrsta sporið til að leggja alla eyjuna undir Tyrkland. Efnahagur batnar og hlutabréf hækka París-Reuter ■ Verð á hlutabréfum í kaup- höllum í París og London hækk- aði meira í gær en dæmi eru um áður. Verðbréfahækkunin kem- ur í kjölfar batnandi hags fyrir- tækja, en eftir ársuppgjör kem- ur í ljós að þau hafa skilað meiri hagnaði en dæmi eru um hin síðari ár og almenn bjartsýni ríkir um að rofa fari til í efnahagsmálum. Batnandi efnahagshortur í Bandaríkjunum hafa einnig áhrif á kauphallarmarkaði í fyrrgreindum löndum og ekki síður hitt að horfur eru á að verulega dragi úr verðbólgu á þessu ári. Frakkland Höftum létt af sjónvarpsrekstri París-Reuter. ■ Franska stjórnin ræddi í gær nýjar reglur varðandi kapal- sjónvarp. Ráðherranefnd sem fjallað hefur um málið leggur til að kapalstöðvarnar verði reknar af ríkinu, sveitarfélögum og einkafyrirtækjum, fremur held- ur en að einhver ein þessara leiða verði farin. Þetta er máia- miðlun, því margir vinstri menn vilja að hljóðvarp og sjónvarp verði einokað af ríkinu, aðrir vilja að sveitarfélögin annist alla þessa fjölmiðlun og margir hægri manna telja að leggja eigi niður ríkisútvarp og sjónvarp og að einkaaðilar taki við öllum slíku rekstri. Hins vegar var ráðherra- nefndin sammála um að franski landssíminn, sem er ríkiseign, hafi umsjón með lagningu kap- alkerfa og sjái um dreifikerfið. 120 sveitarstjórnir hafa þegar sótt um leyfi til að setja á stofn kapalsjónvarpsstöðvar. Á næsta ári munu 300 þúsund heimili vera búin að fá sjónvarpskapal inn i stofu og áætlað er áð 1987 verði kapalsjónvarp komið inn á 1.5 milljón frönsk heimili. Lagt er til að kapallinn verði úr trefjagleri, sem er tækni ný af nálinni. Er það nokkru dýrara en þeir sjónvarpskaplar sem tíðkast hafa til þessa en hafa marga kosti fram yfir þá. Miklar umræður hafa farið fram í Frakklandi um hljóð- varps og sjónvarpsmál og þykir tími til kominn að meira frjáls- ræðis gæti í þeim málum en verið hefur til þessa. Lúterska heimssambandið: Heimsþing háð í Budapest Budapcst-Kcutcr. ■ Lúterska heimssambandið hefur tilkynnt að næsta þing þess verði haldið í Budapest á þessu árí, hið fyrsta sem háð Skotið á Baska í Frakklandi Bayonne. Frakkiandi-Reuter. ■ Skotið var á tvo baskneska útlaga í landamæraþorpi í gær. Þeir voru á ferð í bíl Frakk- landsmegin landamæranna þeg- ar maður á bifhjóli renndi upp að hlið bílsins og skaut á Bask- ana. Annar þeirra lést sam- stundis en hinn særðist lífs- hættulega. Talið er að mennirnir sem skotið var á hafi verið meðlimir í ETA, skilnaðarsamtökum Baska. verður í Austur-Evrópu. Söfnuðir sem tilheyra Lúterska heimssambandinu telja samtals 55 milljónir. 4000 fulltrúar munu sækja þingið í Budapest, sem hefst 22. júlí og stcndur yfir í tvær vikur. Aðalritari sambandsins, Bandaríkjamaðurinn Charles Mau, sagði er hann tilkynnti þingstaðinn, að á dagskrá fund- arins um þær umræðursem ekki fjalla um guðfræðileg efni, mundi ekki verða rætt sérstak- lega um mannréttindi. Nokkrir þeirra sem sitja í stjórn Heimssambandsins settu skilyrði fyrir að þingið yrði háð íUngverjalandi. Leiðtogi Lúters- trúarmanna í landinu, Zoltan Kaldy biskup, sannfærði stjórn- armenn Lúterska heimssam- bandsins um að engar hömlur yrðu lagðar á þingfulltrúa, hvorki er varðar setu á þinginu né hitt um hvað þeir vildu ræða og á hvaða hátt. ■ Hér er mynd af MlG-23 sovéskri orrustuþotu. Eins og sagt var frá í NT í gær fórst bandarískur herforingi skammt frá Las Vegas er flugvél sem hann var að reynslufljúga hrapaði. Var hér um að ræða flugvél af þessari gerð og hefur bandaríski flugherínn haldið því leyndu að hann hafi komist yfir verkfæri af þessari tegund, og eftir slysið hvflir enn mikil leynd yfír hvernig Bandaríkjamönnum tókst að klófesta eitt af fullkomnustu hernaðartækjum Sovétríkjanna. sinumynd. Poirom ■ Svona var torgið í Alfortvilla, skammt frá París, útleikið eftir sprengingu þar í gær. Tyrkneskir hermdarverkamenn eru grunaðir um að hafa komið fyrir þrem sprengjum. 13 manns særðust sumir þeirra alvarlega. París-Reuter. ■ Þrjár miklar sprengingar urðu í úthverfl Parísar í gær. Margir Armeníumenn búa í þessu hverfi og varð ein spreng- ingin við minnismerki um þá 1.5 milljónir Armena sem myrtir voru í Tyrklandi á önd- verðri öldinni. 13 manns slösu- ðust í sprengingunum, sumir alvarlega. Tyrkneskir öfga- menn eru grunaðir um að hafa komið sprengjunum fyrir. Ein sprengjan sprakk við minnismerkið og skemmdi það og olli einnig miklum skemm- dum á veitingahúsi sem þar er skammt frá. Skömmu síðar varð önnur sprenging við íþróttahús þar skammt frá og hin þriðja í stórmarkaði í hverfinu. Skömmu áður en sú síðastnefnda sprakk var hringt í verslunina og varað við spreng- ingunni. Minnismerkið sem sprengt var er til minnis um fjöldamorð Tyrkja á Armennum á sínum tíma og þegar það var vígt s.l. sunnudag olli það miklum tauga- titringi í Tyrklandi og þar var því mótmælt kröftuglega að hryðjuverkamanna væri, minnst á þennan hátt. Tyrkneska stjórnin aflýsti í gær heimsókn embættismanna í utanríkisþjónustunni til Par- ísar og einnig var beðið um að aflýst yrði fyrirhugaðri heim- sókn franska utanríkisverslun- arráðherrans til Ankara.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.