NT - 04.05.1984, Side 28
Við tökum við ábendingum um fréttir allan solarhringinn.
Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leiðir
til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir
til bitastæðustu fróttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
|JjfS
■ Fjölnir og Jón Fríðrik með svarbréfin frá Sue Thompson og úrklippu með fréttinni um flöskuskeytið. Þeir sögðu ■ Angela Rowney rakst á fréttina um flöskuskeytið í dagblaði í Middlesborough. Hún
að Sue hefði haldið að skeytið væri cldgamalt og að hún hefði orðið hissa þegar hún frétti að það hefði verið skrifað var ekki sein á sér aðþýða textann fyrir Sue Thompson.sem fann það á ströndinni við
fvrir nokkrum mánuðum. Redcar rétt norðan ivið Middlesborough.
Rak á fjöru í Englandi
- finnandi og sendendurnir komnir í bréfasamband
Tidings
from
the sea
O Sue pictured with the bottle.
SUE THOMPSON uncorked herself
a problem when she popped the
stopper of a seashore sherry bottle.
For inside was a note cast adrtft from
foreifn shores — written in Icelandic.
Translation attempts have rsvealed the
letter is probably from two younf boys
seekinf penfriends, but Sue realiy needs
an expert in the language to make proper
sense of the messafe.
Havinf spotted the bottle containinf
the writinfs írom Reykjavik as it was
washed on to Redcar beach by the
incominf tide Sue, of Pine Way, Skelton,
has been unable to find a dictionary to
translate the message at any of the local
llbraries.
■ Sue Thompson var mjög hrifin af
því að fá flöskuskeyti frá strákum á
íslandi. Enda er hún staðráðin í að
halda bréfasambandi við þá Fjölni og
Jón Friðrik.
"* She said: "I thoufht it
would be nice if I could
write back to the boys, who
say they are 11 and nine, to
tell them I could put them
in touch with somc local
schoolchlldren.
■ „Við vorum nú eiginlega búnir að gleyma skevtinu.
Þegar við sendum það vonuðumst við auðvitað eftir svari
en reiknuðum ekkert frekar með því. Auðvitað vorum við
ánægðir þegar það kom“ sögðu þeir Friðrik Jón Birgisson
og Fjölnir Guðmundsson 12 og 9 ára strákar í Breiðhoitinu
sem óvænt fengu svar við flöskuskeyti sem þeir settu í
sjóinn í febrúar síðastliðnum. Svarið barst frá Englandi.
Strákarnir sögðust hafa fund-
ið flösku á víðavangi og dottið í
hug að setja í hana bréf og
henda í sjóinn. Þeim hefði verið
sagt að lítið þýddi að henda því
úr einhverri fjöru í nágrenni
höfuðborgarinnar og þess vegna
hefðu þeir gripið til þess ráðs að
senda frænda annars þeirra sem
er sjómaður með flöskuna á
sjóinn. „Hann var á leið til
Þýskalands og henti flöskunni
einhversstaðar á miðri leið. Við
vitum ekki alveg hvar,“ sögðu
þeir.
Sue Thompson heitir konan
sem fann skeytið á ströndinni
við Redcar sem er nálægt Midd-
lesborough á norð-austanverðu
Englandi. „Hún skildi auðvitað
ekki hvað stóð í bréfinu og var
búin að reyna mikið til að finna
íslenskumælandi mann til að
þýða það. Hún var búin að fá
Þjóðverja og Svía en þeir botn-
uðu víst hvorki upp né niður í
íslenskunni og allt sem þeir
fundu út var meira eða minna
vitlaust“.
Loks var birt frétt í litlu
staðarblaði í Middlesborough um
flöskuskeytið. Fyrir tilviljun
rakst Angela Rowney, bresk
kona, búsett á íslandi en í fríi á
heimaslóðum á fréttina. Hún
brá skjótt við og setti sig í
samband við Sue Thompson.
„Þetta var skemmtilegt tilvilj-
■ Skeytinu var hent í hafið
milli íslands og Bretlands og að
örfáum vikum liðnum var það
komið í hendur viðtakanda á
norð-austanverðu Englandi.
NT-myndir Róbert.
un og konan hafði svo mikinn
áhuga á þessu öllu saman að
mér fannst mjög gaman að
verða henni að liði. Ekki var
síður skemmtilegt að sjá við-
brögð strákanna þegar ég færði
þeim svarbréfin“, sagði Angela í
samtali við blaðamann NT.
Hún sagði að maður konunn-
ar sem fann bréfið væri trillukall
og gerði út nálægt Redcar.
Hann væri þegar búinn að setja
skeytið í nýja flösku og henda
því aftur í sjóinn og því væri
ekki útilokað að það hafnaði að
lokum í Kína því að eflaust ætti
það eftir að fara um margra
hendur ef allir sýndu því sama
áhuga og Sue Thompson.
Þeir Jón Friðrik og Fjölnir
eru staðráðnir í að skrifast á við
Sue Thompson. Að vísu sögðust
þeir ekki fullfærir í enskunnu .
„En það má alltaf fá hjálp þangað
til við verðum nógu góðir sjálfir.
Það verður þó erfiðara að fá
hjálp ef við eignumst pennavini
í Japan eða Kína“, sögðu þeir.
k'd&r, i/nnur ktgr t-rb ocj
hvaf set*> atit) h&ivna.
jbú &jbbir h eir<d i kiúj. hlén
jfan j/ s-cnt/a flö-skul s/
Ojj hafa þacf S&m löéJju. HHhref.
þu / Ji vi v
hveyir v'tJ efUl'’1 ae-n
ScflJuiW ji&bb hr&fo^ ti'vf
heifnd . Vif heibj/n,
'~Tr',J/lk JO/I irjtsjon. ll.jra.
\2 IOH
7fcyk/jvtk , ÍsUvid.
Jiot, . 91. UUO.
Fjöln°r . 7. dra
filáókócjdr 8 lol R.vk'
’Reykjjvíf, íslanJ.
J t5im ; 91. ?3\fb.
r l/tieJja .
■ „Kæri vinur hver sem þú ert og hvar sem þú átt heima. Þótt þú
ættir heima í Kína, haltu samt áfram að senda fiöskuskeytið og hafa
það sem keðjubréf. „Það tók Sue Thompson nokkra daga að finna
íslenskumælandi manneskju til að ráða fram út þessum texta, en
það tókst