NT - 12.05.1984, Page 30
Laugardagur 12. maí 1984 30
„Hér er það talin
fötlun að vera hvítur"
- segir Axel Nikulásson sem leikur körfubolta í Bandaríkjunum
■ Axel Nikulásson í leik með skólaliði East Stroudsburg
háskóla.
Bandaríski körfuboltinn
Milwaukee Bucks áf ram
■ Einn máttarstólpa hins stór-
góða liðs Keflvíkinga, í úrvals-
deildinni í körfubolta fyrir tveim
árum var Axel Nikulásson. Eftir
að hafa leikið með Keflvíking-
um eitt ár í úrvalsdeildinni með
«»
\Í1M 1(11
MEÐ ALLA FJÖLSKYLDUNA
Höfum sett upp skemmtilegt barnahorn
með leikföngum og blöðum, þar sem yngra fólkið
getur unað sér meðan foreldramir
njóta Ijúffengra veitinga í ofar vistlegu umhverfi.
Ódýr og góður matur við haefi allrar f jölskyldunnar, ósamt
girnilegum heimabökuðum tertum og helgarhlaðborði.
Fríar veitingar fyrir börn yngri en 6 óra,
| hólft gjald fró ó.til 12 óra. Einnig fríar
1 veitingar fyrir afmælisbörn dagsins til 12 óra aldurs.
Verið velkomin
- sigruðu New
Jersey Nets
98-97 í
fyrrakvöld
■ Milwaukee Bucks eru komnir í
fjögurra liða úrslit bandaríska körfu-
boltans eftir eins stigs sigur á New
Jersey Net, í fimmta leik liðanna í
fyrrinótt, 98-97.
Leikurinn var mjög sveiflukenndur
og skiptust liðin á um að ná forskoti.
Hart var barist og til nokkurra stimp-
inga kom á tímabili því leikmönnum
var farið að hitna í hamsi. Úrslit
leiksins réðust á síðustu sekúndunum.
New Jersey Nets tókst ekki að jafna
leikinn og eins stigs sigur Bucks var
staðreynd, 98-97.
Stigahæstir hjá Bucks voru: Sidn-
ey Moncrief með 25, Junior Bridgem-
an með 20 og Bob Lainer með 17.
Hjá Nets voru stigahæstir: Darryl
Dawkins með 29 stig, Otis Birdsong
með 22, Albert King með 15 og
Michael Ray Richardson með 11 stig.
Milwaukee Bucks eru annað liðið
til að tryggja sér sæti í fjögurra liða
úrslitunum. Los Angeles Lakers
höfðu áður tryggt sér þar sæti.
1 fjögurra liða úrslitunum munu
Lakers leika gegn Phoenix Suns eða
Utah Jazz, en þau lið eru nú að leika
um sæti í úrslitunum. Phoenix er 3-2
yfir eins og stendur, í þeirra viður-
eign.
Milwaukee Bucks munu leika gegn
Boston Celtics eða New York Nicks í
fjögurra liða úrslitunum. Það verður
þó líklega Boston því þeir eru 3-1 yfir
í sinni viðureign gegn New York
Nicks.
Við viljum ^ ^ vekja athygli
leigjenda og leigusala á því,
að Félagsmálaráðuneytið
gefur út eyðublað fyrir
leigusamninga um íbúðarhúsnæði.
Notkun þess tryggir réttindi
beggja aðila.
Leigjendasamtökin
HÚSEIGENDASAMBAND
ÍSIANDS
Hið löggilta eyðublað fyrir leigusamninga
um íbúðarhúsnæði fæst án endurgjalds
hjá bæjar- og sveitarstjórnum
og á skrifstofum okkar.
Önnur samningseyðublöð
eru ekki gild.
^ HúsnæÖisslofnun ríkisins
stórgóðum árangri, og einnig heitir nánar til tekið „East Stro- með háskólaliði þar. Eins og
með íslenska landsliðinu hélt udsburg University“. kunnugt er þá standa Bandaríkja-
Axel vesturum haf ífyrrahaust, Það er ekki á hverjum degi menn mjög framarlega í körf-
til náms í háskóla og til að leika sem íslenskur landsliðsmaður unni og ekki fyrir hvern sem er
körfubolta með skólaliðinu. fer til Bandaríkjanna og freistar að komast í lið og fá að spila á
Skólinn sem Axel leikur með þess að fá að leika körfubolta þeim slóðum. En hvernig hefur
------------------------------------------- Axelgengiðeftiraðhannfórút.
„Mér tókst að komast í lið, eftir mikið streð í heilan
mánuð og mátti ég kallast góður því ég átti í höggi
við 8-10 tveggja metra menn og fleiri sem voru á bilinu
195-200 cm.“ (Axel er í kringum 190 cm á hæð)
„í fyrstu leikjunum fékk ég lítið að spila, því hér
er það álitin fötlun að vera hvítur. Undantekning ef
hvítur maður leikur körfubolta hér um slóðir.
Svo leið og beið, en einn daginn var tilkynnt á
fundi að ég yrði í byrjunarliðinu í næsta leik.
Mér gekk sæmilega og ég byrjaði inná í nokkrum
leikjum án þess þó að setja nein skólamet eða æra
liðið af hrifningu.
Síðan um mánaðamótin nóvember-desember,
slasaði ég mig í öxlinni ogdattút úr liðinu í nokkra
daga. Petta voru hálf furðuleg meiðsl. Brak og brestir
með jasstakti heyrðust í öxlinni á mér, en síðan
lagaðist þetta og ég var kominn í byrjunarliðið aftur
eftir smá tíma.
Mér gekk vel í leikjunum og þjálfarinn Var
ánægður með mig, þá sérstaklega vörnina. Á meðan
mér gekk sem best þá gekk ekki neitt hjá liðinu. Við
lukum keppnistímabilinu með 8 sigrum, en 20
töpum.
Pessi tala gefur þó ekki rétta mynd af getu liðsins.
Af þessum 20 tapleikjum voru 12 þeirra sem töpuðust
eftir framlengingu, eða með minna en 6 stiga mun.'
Við töpuðum meðal annars fyrir meisturum
Pennsylvaníu með þriggja stiga mun á þeirra heima-
velli, með frábærri aðstoð tveggja heimadómara.
Hvað styrkleika varðar á liðinu mínu, miðað við
liðin heima, þá tel ég að Keflavíkurliðið í fyrra, svo
og Valsmenn, séu þetta 15 stigum lélegri en liðið mitt
hér, ef hægt er að nota þessa samlíkingu;"
Við þökkum Axel Nikulássyni ynnilega fyrir þessar
upplýsingar og vonum að honurn gangi sem best í
framtíðinni.