NT - 09.06.1984, Síða 3
Yfirheyrð hjá lögreglu fyrir
vændi en segist vera saklaus
■ „Hvað tekurðu fyrir það“, segir ung stúlka að
lögreglumenn hafi spurt hana. Stúlkan var tekin til
yfirheyrslu grunuð um vændi. Segir hún að lögreglumenn
hafí lagt að henni að játa og sagst hafa sannanir fyrir því
að hún hafí selt sig. Stúikan heldur fram sakleysi sínu og
vill að nafn hennar verði hreinsað af listum lögreglunnar.
Yfirheyrslur lögreglunnar fóru fram í vetur en þá
yfírheyrði lögreglan fjölda fólks vegna gruns um skipu-
lagða vændisstarfssemi hér í borg.
■ Viðmælandi okkar er
nítján ára stúlka. Hún er
fædd og uppalin á Hornafirði
en hefurdvalist hér í Reykja-
vík síðan í fyrrahaust. Hún
var ein þeirra sem lögreglan
kallaði fyrir nú í vetur, grun-
uð um vændi. Hún segist
tvisvar hafa verið kvödd til
yfirheyrslu en neitar ásökun-
um lögreglunnar.
Hún sagði í samtali við
NT að hún hefði drukkið
mikið í vetur, en frá því í
febrúar hefur hún ekki
smakkað áfengi. Fastan
samastað í Reykjavík hafði
hún engan frá því í haust og
þangað til í byrjun febrúar.
Hélstu mikið til á
Hlemmi?
- Já ég gerði það á tíma-
bili.
Komu til þín menn og
buðu peninga fyrir
kynmörk?
- Nei.
Hefurðu sofíð hjá manni
fyrir gjald?
- Nei, ég myndi ekki hafa
geð í mér til þess.
Hefurðu einhvern grun
um afhverju lögreglan hefur
þig grunaða?
- Ja, það er kannski ein
manneskja sem gæti hafa
komið þessu af stað - sem
vann á Hlemmi. Það hafa
margir sagt að hún hafi verið
afbrýðissöm út af sambýlis-
manni mínum.
Stúlkan hefur nú þegar
orðið fyrir aðkasti á vinnu-
stað vegna yfirheyrslna lög-
reglunnar. Segir hún að það
hafi fljótlega spurst út að
hún hafi verið grunuð um
vændi.
■ Hún heldur fram sakleysi sínu og vill að henni gefíst tækifæri
til að hreinsa nafn sitt og hún verði ekki á listum lögreglunnar yfír
þá sem grunaðir eru um aðild að vændi.NTmynd: Róbert
Hápunktur Listahátíðar 84:
Lundúna Fílharmónían með
tvenna tónleika í höllinni
■ Fflharmóníuhljómsveit Lundúna kernur til landsins í
dag í beinu leigufíugi frá París og leikur í kvöld og annað
kvöld í Laugardalshöllinni undir stjórn Yladimar Ashken-
azy, sem einnig leikur einleik á fyrri tónieikunum, en á
seinni tónleikunum leikur sonur hans, Stefán eða Vovka,
eins og hann kallar sig erlendis, einleik. Að flestra dómi er
hér um hápunkt Listahátíðar að ræða og Lundúnafílharm-
ónían er sennilega frægasta
Island.
Vladimir Ashkenazy hef-
ur á síðari árum gefið sig æ
meir að hljómsveitarstjórn
með þeim árangri að hann
þykir með bestu hljómsveit-
arstjórum. Með því að taka
við stjórn Lundúnafílharm-
óníunnar fetar hann í fótspor
manna eins og Sir Thomas
Beecham, Otto Klemperer
og von Karajans. Samhliða
heldur hann stöðugt áfram
að ferðast um og halda ein-
leikstónleika og hljóðrita.
Hann telst vera einhver fjöl-
hæfasti tónlistarmaður
aldarinnar og „repertoire“
hans sem píanista er senni-
hljómsveit sem hefur gist
lega stærra en nokkurs ann-
ars píanista í veröldinni.
Stefán Ashkenazy sleit
barnsskónum á íslandi og
hóf tónlistarnám sitt hér og
var Rögnvaldur Sigurjóns-
son kennari hans í 7 ár, fyrst
í einkatímum og síðar í
Tónlistarskólanum í Reykja-
vík. Eftir það hélt hann til
Bretlands til framhaldsnáms
hjá Sulamita Aronovsky við
Royal Northern College of
Music í Englandi og braut-
skráðist þaðan 1983. Hann
hefur komið fram sem ein-
leikari í mörgum löndum
síðan og hljóðritað plötu
■ Vladimir Ashkenazy
með föður sinum, Vladimir.
Á tónleikunum í kvöld
verður fyrst leikin Gæsa-
mömmusvíta eftir Ravel, þá
píanókonsert K 456 eftir
Mozart og loks 5. sínfónía
Sibelíusar. Annað kvöld
hefjast tónleikar á verki eftir
Delius, „Við að heyra í
■ Stefán Ashkenazy
fyrsta gauk vorsins,“ því næst
kemur píanókonsert Tchai-
kowskys nr. 1 ogendað verð-
ur á 4. sinfóníu Tchaikow-
skys. Tónleikarnir hefjast kl.
20.30 bæði kvöldin. Miðar
eru enn fáanlegir á báða
tónleikana.
„Siðlaust
athæfi“
segir stjórn tæknifræð-
inga um hina um-
deildu ráðningu Alberts
■ Stjórn Tæknifræðinga-
félags íslands fordæmir
það athæfi Alberts Guð-
mundssonar fjármálaráð-
herra að skipa í stöðu
umdæmisfulltrúa Fast-
eignamats ríkisins á Aust-
urlandi mann, sem ekki er
menntaður tæknifræð-
ingur.
Þetta kemur fram í
bréfi, sem ráðherra barst í
gær. í bréfinu segir, að á
undanförnum 7 árum hafi
eingöngu tæknifræðingar
verið ráðnir í stöður um-
dæmisfulltrúa og það sé í
samræmi við skipurit fyrir
Fasteignamat ríkisins,
dagsett 8. desember 1980.
Skipan manns án tækni-
fræðimenntunar komi í
veg fyrir að unnt sé að
viðhafa þau faglegu vinnu-
brögð, sem Fasteignamat
ríkisins krefjist. Þá hafi
verið gengið framhjá
manni, sem hafi unnið
samsvarandi störf í
Reykjavík undanfarin 4
ár. Síðan segir í bréfi
stjórnar Tæknifræðinga-
félags íslands:
„Stjórnin telur, að hér
sé um að ræða gjörsam-
lega siðlaust athæfi og á-
telur því ráðherrann harð-
lega fyrir þessa embættis-
færslu'*.
Hvítasunnukappreiðar Fáks:
Dagskráin er
stutt og hröð
■ HestamannatelagiðFákur ætlar
að breyta út af venjunni á hvíta-
sunnukappreiðum sínum, sem
verða haldnar á 2. í hvítasunnu.
Dagskráin verður mun styttri og
hraðari en áður til þess að hún megi
höfða meira til almennings.
Að þessu sinni stendur dagskráin
yfir í tæpar tvær klukkustundir, þar
sem boðið verður upp á úrvalssýn-
ingar, keppnisatriði og lúðrablástur.
Dagskráin hefst með sýningu á
fimm efstu hestum í A og B flokki
gæðinga, unglingaflokkum og tölt-
keppni, sem nú fer fram í fyrsta sinn
fyrir hinn almenna félagsmann. Þá
verður svokallað „stjörnuskeið",
þar sem átta hestar reyna að setja
nýtt vallarmet, og úrslit verða í
öllum hlaupagreinum. Tölthestar
verða sýndir og einnig sýna fljótustu
skeiðhestar listir sínar. Loks velja
áhorfendur glæsilegasta hest móts-
ins og knapar velja besta knapa
keppninnar.
Hvítasunnumótið fer fram á Víði-
völlum og hefst kl. 14 á 2. dag
hvítasunnu.
SOLUSKALAÞJONUSTA
Goði framleiðir nú pylsur, sem
eru sérstaklega ætlaðar sölu-
skálum og veitingahúsum og
tilvaldar fyrir sölutjöld á 17.
júní.
Getum einnig afgreitt pylsu-
bréf, tómat, sinnep, remúlaði,
steiktan og hráan lauk - um
leið og pylsurnar eru pantaðar.
Hafið samband við sölumenn okkar í síma 686366