NT - 09.06.1984, Blaðsíða 25

NT - 09.06.1984, Blaðsíða 25
Bandaríkjamenn ekki ánægðir með Danina Kaupmannahöfn - Reuter ■ Richard Perle, aðstoðar- varnarmálarádherra Bandaríkj- anna gagnrýndi harðlega í gær þá ákvörðun Dana að neita að greiða framlag til uppsetningar langdrægra eldflauga NATO í Evrópu. Danska þingið samþykkti þá tillögu Sósíaldemókrata í síð- asta mánuði að greiða ekki 48 milljón danskar krónur sem átti að vera framlag Dana til NATO vegna uppsetningar eldflaug- anna í 5 Evrópulöndum. „Þegar skattgreiðandi neitar að borga hluta af sköttum sínum vegna þess að honum líkar ekki einhver stefna yfirvaldanna er honum yfirleitt stungið í stein- inn,“ sagði Perle við blaðamenn eftir fund með dönskum ráða- mönnum í gær. „Perle sagði að þetta væri niðurrifsstefna gagnvart NATO og ef önnur aðildarríki fetuðu í fótspor Dana myndi bandalagið liðast í sundur. Ummæli Perle vöktu mikla reiði hjá þingmanni Sósíaldem- ókrataflokksins, Kjeld Olsen, sem erfyrrverandi utanríkisráð- herra Dana. Hann sagði að Perle væri bleyða og hefði ekki viðhaft svipuð orð þegar þeir ræddu saman. Olsen neitaði að trúa að ummæli Perle túlkuðu stefnu Bandaríkjanna í þessu máli og sagðist myndi krefjast skýringa hjá sendiherra Banda- ríkianna. Olsen neitaði því að flokkur hans væri að reyna að kljúfa NATO og sagði eðlilegt að samherjar virtu sjónarmið hvers annars. Suður-Afríka: Blökkumenn mótmæla fundi Botha og páfa Jóhannesarborg-Reuter ■ Svarti kirkjuleiðtoginn Desmond Tutu hefur sent bæn- arskjal til Jóhannesar Páls páfa þar sem farið er fram á að hann hitti ekki P.W. Botha, forsætis- ráðherra Suður-Afríku að máli, en Botha er nú á ferðalagi um Evrópu. Ekkert hefurveriðgef- ið út opinberlega að þessi fund- ur sé fyrir dyrum en heimildar- menn í Vatikaninu telja að hann sé fyrirhugaður á mánu- ■ Ellefu létu lífið og sextíu og sex særðust þegar hvirfilbylur jafnaði sveitaþorpið Barneveld í Wisconsinfylki í Bandaríkjun- um við jörðu í gær. 600 manns bjuggu í þorpinu. dag. Tutu, sem kom bænarskjalinu á framfæri við fulltrúa páfa í Pretoríu, sagði að þessi fundur myndi styrkja út á við það sem hann kallaði grimmdarlega kyn- þáttaaðskilnaðarstefnu stjórn- arinnar í Suður-Afríku. Sameinaða lýðveldisfylkingin í Suður-Afríku, sem er banda- lag 400 hreyfinga sem eru á móti stjórninni, tilkynnti í gær að hún Hvirfilbylir hafa geysað síð- asta sólarhring í miðfyikjum Bandarikjanna og vitað er að tveir hafa látist auk íbúanna í Berneveld. hefði einnig sent páfa bréf með sömu ósk. Kanada: Kona dæmd í ævilangt fangelsi ■ Kona að nafni Ann Brit Hansen var fyrir skömmu dæmd í lífstíð- arfangeisi fyrir að hafa árið 1982 komið fyrir sprengju í orkuveri Vancouvereyju og verksmiðju í Toronto sem framleiðir stýri- búnað fyrir bandarísk- ar eldflaugar. 10 manns slösuðust í sprenging- unni í Toronto. Konan sem er leiðtogi skæruliðahreyfingar í Kanada viðurkenndi fyrir réttinum að hún væri sek um sprengjutilræðin en þegar dómarinn lýsti því yfir að konan væri ógnun við þjóðfélagið kastaði hún í hann tómati. Skotið geigaði. Konan sagði fyrir réttin- um að það hefði verið siðferðileg skylda hennar að sprengja upp verk- smiðjuna í Toronto því starfsemi hennar yki hætt- una á gereyðingarstyjröld. Tveir félagar konunnar fengu 20 og 10 ára fengelsi vegna sprengjutilræðn- anna. ■ P.W. Botha, forsætisráðherra Suður-Afríku hefur fengið frekar kuldalegar móttökur í ferð sinni um Evrópu, þó hann hafi sagt að þær hafi verið vinsamlegar og góðar. Þessi mynd var tekin þegar hann afhjúpaði minnismerki í Longueval í Frakklandi um þá 100 Suður-Afríkana sem féllu í Frakklandi í báðum heimsstyrjöldunum. polfoto-símamynd Ellefu fórust í hvirfilbyl ■ Tólf vikur eru nú liðnar síðan námuverkamenn í Bretlandi fóru í verkfall til að mótmæla þeirri ákvörðun stjórnarinnar að leggja niður óarðbærar námur. Verkfallið hefur einkennst af hörðum mótmælaaðgerðum þar sem fjöldi manns hefur særst og verið handtekinn af lögreglu. Þessi mynd var tekin á flmmtudag af mótmælagöngu námamanna meðan hún fór enn fríðsamlega fram. Síðan brutust út miklar óeiröir sem enduðu með fjöldahandtökum. Polfoto-Símamynd ■ Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Margaret Thatcher for- sætisráðherra Breta við upphaf toppfundarins í London í gær. Polfoto - Símamynd Leiðtogar í London: Sameiginleg yfir- lýsing um lýðræði London - Reuter ■ Leiðtogar 7 mestu iðnríkja heims, sem nú eru á toppfundi í London, sendu frá sér sameigin- lega yfirlýsingu í gær þar sem þeir lýstu yfir trú sinni á lýðræði og höfnuðu valdbeitingu sem leið til að binda endaá milli- ríkiadeilur. A fundinum í gær var einnig rætt um til hvaða ráðstafana skuli grípa ef olíuskortur gerði vart við sig í kjölfar Persaflóa- stríðsins. Kanadískur embættismaður sagði í gær að utanríkisráðherr- ar landanna teldu að ríkin gætu ráðið við slíkt ástand, með því að deila með sér olíuforða ríkj- anna. Kúbumenn ákveðnir: Fara ekki á Ólympíu- leikana lluvana - Reuter ■ Forseta skipulags- nefndar Olympíuleik- anna, Peter Ueberroth, tókst ekki að fá stjórnvöld í Kúbu til að skipta um skoðun og senda lið á Ólympíuleikana í Los Angeles. Ueberroth sem átti þriggja klukkutíma langar viðræður við Fidel Castro í gær sagði eftir fund þeirra að þetta mál væri útrætt. Hann hefði beðið Castro um að endurskoða afstöðu sína en hann hefði svarað að Kúba ætti í of mikilli þakkarskuld við sósíalísku ríkin sem hafa stutt landið í þau 25 ár sem Kúba hefur verið í einangrun frá Bandaríkj- unum. Ueberroth fór til Kúbu ásamt Vazquez Rana for- seta alþjóðlegu Ólympíu- nefndarinnar. Rana sagði eftir fundinn með Castro að þetta yrði síðasta heim- sókn hans til kommúnista- ríkis fyrir Ólympíuleikana og ástandinu yrði því ekki breytt héðan af. ' ' ' ' n ; > U ; fiiUti: n l\í\}\ i iÉI If .. ■ i ,iiu M jjjj^ Plöntupinnar • Plöntuskóflur • Slöngui » Garðslöngur • Slönguhengi • Vinnuv KIA ragnar < ettlingai m » Gi r • 11 'askli Stíg\ •1 úm i ppur • Greinaklippur rél • Regnfatnaður • Vinnuföt 11 Ananaustum sími 28855

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.