NT - 09.06.1984, Blaðsíða 16
■ Hafið þið heyrt uni þotu-
hundana? Líklega ekki. Við
höfum heyrt getið uni allar
mögulegar hundategundir, og
meira að segja fylgja ættartölur
dýrum og fínum hundum. En
áreiðanlegaerenginn afhinum
ættgöfugu hundum jafn vfðför-
ull og kynblcndings - rakkinn
hann „Pudding", sem á þó
enga ættartölu og um uppruna
hans ríkir mikil óvissa.
En um Pudding má segja, að-
hann tilheyrir nýjum hunda-
stofni. Það er að segja „þotu-
hunda - stofninum", en þeir
hundar, sem ferðast er með í
þotum um heiminn, hafa nú
fengið þctta viöurnefni. Pudd-
ing hcfur ferðast í kringum
hnöttinn, frá Tahiti til Sviss,
París til Mexíkó og víðar.
Þau Jeanctta og Mike
Cotrnan, sem vinna fyrir ferða-
skrifstofuna Club Mediterr-
anée, tóku þennan brúna og
hvíta flækingshund að sér á
ferðalagi og kölluðu hann
Pudding. Þau létu hreinsa
hundinn og sprauta og bólu-
setja við öllum hugsanlegum
hundaveikindum. Með löggilt
heilbrigðisvottorð fyrir hund-
inn hefurþeim tekistaðferðast
með hann um mestallan heim-
— inn. Reyndar hefur þeim hjón-
um ekki enn tekist að fara með
liann heim til sín í Cheltenham
Gloucestershire í Englandi,
því löggjöf um innflutning
hunda til Bretlands er mjög
ströng. Þegar þau sjálf eru í
Bretlandi heldur Pudding til á
hundaheimili í París.
Nú hafa Coltman - hjónin í
huga að skrifa bók um þennan
víðförula hund, með myndum
frá þeim löndum, sem hann
hefur heimsótt, - og vonast
þau til að koma Pudding í
Heimsmetabók Guinness!
Laugardagur 9. júní 1984 16
3
CHER ÞÓ!
Hvað er að
sjá þig?!
■ Nú er Cher, sem áður kom einungis franr sem
söngkona, búin að hasla sér völl í kvikmyndaheiminum.
Hollywood hefur heiðrað hana sem kvikmynda-
stjörnu, og hún kom til greina við verðlaunaveitingar
nýlega (Oscars-verðlaun). Þess vegna brá mönnum
heldur í brún að sjá kvikmyndadísina mæta á frumsýn-
ingu á mynd í eins konar náttfötum, ökklasokkum og
strigaskóm? „Cher, gerður okkur þetta ekki“, kallaði einn
ljósmyndarinn til hennar um leið og hann smellti af, en
Cher hefur alltaf verið uppáhald Ijósmyndaranna og
t.d. á Oscarshátíðinni þótti hún með best klæddu
dömunum þar.
Cher! Ósköp er að sjá..
Ný hundategund: