NT - 09.06.1984, Blaðsíða 10
Laugardagur 9. júní 1984 10
teign
Gunnar S.
Björnsson:
\
Of lítill verðmunur á
nýjum íbúðum og gömlum
Ekki tekið nægilegt tillit til aldurs húsa við verðlagningu
- og enginn munur á útborguninni
■ „Ég held að það sé alveg Ijóst að það er ekki tekið nægilegt
og eðlilegt tillit til aldurs húsa við verðlagningu þeirra við sölu
sem mér finnst stór galli á þessum markaði. Auk þess sem
verðmunurinn er nánast enginn á gömiu og nýiegu er heldur
enginn munur á útborguninni, sem er alveg furðulegt,“ sagði
Gunnar S. Björnsson, form. Meistarasambands byggingarmanna.
NT bar undir Gunnar hvort ekki væri eðlilegt að töluverður
munur væri á verði fremur nýlegra íbúða annars vegar og kannski
20 - 40 ára gamalla hins vegar.
Gunnar telur það firru, að
svo virðist af fasteignaauglýs-
ingum sem oft sé ekki tekið
tillit til úreldingar kannski 15-
20 ára gamalla íbúða miðað
við t.d. 5 ára gamlar. Þótt
viðhald eldri íbúða sé í sumum
tilfellum mjög gott, fari tæpast
milli mála að kaupendur
tveggja áratuga gamalla íbúða
- og þaðan af eldri - standi í
mörgum tilfellum fljótlega
frammi fyrir því að þurfa að
leggja meira eða minna fé í
endurnýjun, innan húss eða
utan, jafnvel þótt menn verði
ekki svo ýkja mikið varir við
það þegar þeir eru að skoða
íbúðina í upphafi, fyrir kaupin.
Ýmislegt getur
yfirsést í full-
búinni íbúð
„Það sem kannski er höfuð-
gallinn í þessu efni er það, að
undantekningarlítið skoðar
fólk íbúðirnar í upphafi full-
búnar húsgögnum, með mynd-
ir á veggjum og teppi á gólfum.
Ég er ansi hræddur um að það
gangi verulega fram af sumum
kaupendum er þejr svo taka
við íbúðinni, þegar búið er að
tæma allt út úr henni. í lang-
flestum tilfellum getur fólk
ekki gert sér grein fyrir raun-
verulegu ástandi íbúðar meðan
hún er fullbúin og fín. Við
slíka skoðun getur oft á tíðum
ýmislegt farið framhjá
mönnum sem eru nauðakunn-
ugir hvers er helst að gæta, að
ég tali nú ekki um fólk sem
ekki þekkir sérstaklega til,“
sagði Gunnar.
Er Iíka ekki til í því að
jafnvel þótt fólk sé með íbúða-
kaupum að leggja aleiguna
3 r^i
■ „Þarf bara að mála" segjum við gjarnan og þykir kannski
ekki stórmál. En þótt hver málningardós, terpentínuflaska,
pensill eða sparsltúpa kosti ekki stórar upphæðir þá safnast
heldur betur þegar saman kemur.
undir og langt umfram það, að
það veigri sér við að hnýsast í
króka og koma á heimilum
ókunnugs fólks (seljendanna)?
í mörgum tilfellum kemur
það fram. Ég hef t.d. orðið
þess var að seljendum finnst
það verulegur átroðningur ef
væntanlegur kaupandi lætur
sér detta í hug að koma með
annan með sér sem hefur þekk-
ingu á hlutunum til að skoða í
öll horn og króka, og spyrja
hinna ólíklegustu spurninga.
Leyndir gallar
varhugaverðir
Er það þó ekki æskilegt að
kaupendur geri það?
- Bæði og. Það er auðvitað
engin spurning að fólk á að
gera sér eins vel grein fyrir
hlutunum og spyrja eins mikið
og það mögulega getur. Hins
vegar höfum við orðið varir
við á undanförnum árum, að
kaupendur hafa í slíkum tilfell-
um ekki náð fram rétti sínum
gagnvart seljanda vegna galla
sem síðan hafa komið fram.
Þá hefur verið sagt af hálfu
seljenda „þú komst með fag-
mann eða sérfræðing með þér
til að skoða íbúðina og áttir að
gera þér grein fyrir þeim galla
sem um er að ræða, þannig að
þetta er ekki leyndur galli.“ Á
þessum forsendum veit ég að
slík málaferli hafa tapast -
þannig að þetta getur verið
tvíbent.
Höfuðatriðin er
gæta skyldi að
Gunnar var þvínæst spurður
hvaða atriði hann mundi ráð-
leggja væntanlegum íbúða-
kaupendum að líta sérstaklega
vel eftir við skoðun íbúða fyrir
kaup.
- { eldri húsum eru nokkur
höfuðatriði. Það er spurningin
um hvernig gler er í gluggunum
og hvernig gluggakarmar og
-kistur eru útlítandi, þ.e. að
ekki leynist þar fúi. Með því
að banka í gluggana á þetta að
finnast, þ.e. holhljóð heyrist
ef fúi er undir. Sömuleiðis ætti
fólk að skoða vel inn í skápa,
bæði eldhús- og fataskápa. Sé
raki í íbúð þá kemur það
venjulega fyrst fram í skápun-
um sem slíkum. Það er líka
mjög athugavert ef t.d. laus
teppi eru á gólfum að aðgæta
hvernig gólfdúkur er þá undir
þeim - gatslitinn eða heill. Þá
er ágætt að hafa það að venju
að skoða hvernig hurðir líta
út. Séu þær rispaðar og illa
farnar ber það yfirleitt vott um
mmm
:é
EIGNASKRÁ
Vesturbær
Nýstandsett, þriggja herbergja íbúð á
góðum stað í vesturbæ, parket á gólfum,
viður í loftum, vandaðar innréttingar,
verð kr. 1.600 þús.
Þverbrekka
4ra herb. rúmgóö íbúð, gott útsýni, góð
sameign, bein ákv. sala, laus strax, verð
2.2 millj.
Skuggahverfi
Einstaklingsíbúð, 30 fm., bein ákv. sala,
laus fljótlega.
Furugrund
Furugrund - mjög vönduð 4ra herb.
íbúð, parket á gólfum, fulningahurðir,
góðar innréttingar, verð 2.3 millj.
Leitarþjónusta
ANPRO leitar að hinni
réttu eign
ÁN ALLRA skuldbindinga af
þinni hálfu.
Nýbýlavegur
Neðri sérhæð- 140 fm„ stórar stofur, 3
rúmgóð herb., stórt eldhús, búr og
þvottahús á hæð, bílskúr og geymsla á
jarðhæð, I skiptum fyrir 4ra herb. íbúð í
Grundum.
Mávahlíð
Nýstandsett sérhæð, 140 fm„ vönduð
eign, 3 svefnherb., tvær stofur, nýtt
eldhús, verð 2.8 millj.
Mosfellssveit
Einbýli - 160 fm„ - timbureiningahús,
verð 3.2 millj.
Hafnarfjörður
2 stór einbýli í skiptum fyrir minni eignir
í Hafnarfirði.
Vantar allar
stærðir eigna á skrá
*-«■! 1 I I t T.* • •
H >-4* a ».M I tJ
Sömu símar utan skrifstofutíma
30 ára reynsla tryggir örugga þjónustu.
Stóragerði
2ja herb. ca 70 fm iítið niðurgrafin falleg kjallaraíbúð. Laus strax.
Verð ca-1200 þús.
Maríubakki
2ja herb. ca 60 fm falleg íbúð á 1. hæð. Laus strax. Verð ca. 1250
þús.
Kleppsvegur
2ja til 3ja herb. glæsileg íbúð á 1. hæð. Suður svalir. Ákv. sala.
Verð 1300-1400 þús.
Klapparstígur
2ja herb. snyrtileg íbúð á 2. hæð. Sérhiti. Verð ca. 1250 þús.
Laugarnesvegur
3ja til 4ra herb. ca. 90 fm góð risíbúð. Sér hiti. Sér inng. Laus fljótt.
Verð 1650 þús.
Miðbærinn
4ra herb. góð íbúð á 2. hæð v/gamla miðbæinn. Einkasala. Verð
1650 þús.
Ljósheimar
4ra herb. 110 fm glæsileg íbúð á 8. hæð. Tvennar svalir. Ákveðin
sala. Verð ca.2.1. millj.
Engihjalli
4ra herb. ca.110 fm mjög falleg íbúð á 2. hæð. Tvennar svalir.
Laus strax. Verð ca. 1800 þús.
Kópavogur sérhæð
4ra herb. ca 110 fm glæsilea íbúð á 2. hæð v/Kárnesbraut. Sér
hiti. Sér inng. Bílskúr fylgir. Akveðin sala. Verð ca.2,5 millj.
Húsgrunnur Álftanesi
Steypt plata undir einbýlishús. Hagstætt verð
Skrifstofuhúsnæði
5 herb. 112 fm góð skrifstofuhæð í steinhúsi v/Hafnarstræti.
Agnar Gústafsson hrl.
JSEiríksgötu 4.
■“Málflutnings-
og fasteignastofa