NT - 09.06.1984, Blaðsíða 26
Laugardagur 9. júní 1984 26
Iþróttir
Bogdan velur
■ Á blaðamannafundi hjá
HSÍ í gær var tilkynntur 20
manna landsliðshópur sem
Bogdan Kowalczyk landsliðs-
þjálfari hefur valið til undir-
búnings fyrir þáttöku á Olym-
píuleikunum í L.A. í sumar. í
hópnum eru eftirtaldir leik-
menn:
Einar Þorvarðarson ..........Val
Kristján Sigmundsson .... Víking
Brynjar Kvaran......Stjömunni
Jcns Einarsson................KR
Jakob Sigurðsson.............Val
Guðmundur Guðmundsson . Víking
Steinar Birgisson ........Víking
Bjarni Guðmundsson
....................Wanne Eickel
Guðmundur Albertsson........KR
Þorbjörn Jensson.............Val
Þorgils Óttar Mathiescn.....FH
Þorbergur Aðalstcinsson . . Víking
Atli Hilmarsson . Tura Bcrgkamen
Alfreð Gislason........... Essen
Páll Ólafsson........... Þröttur
Sigurður Gunnarsson .... Víking
Sigurður Sveinsson...... Lcmgo
Kristján Arason...............FH
Gylfi Birgisson.........Þór Ve.
Geir Sveinsson...............Val
Æfingar hópsins munu hefj-
ast formlega á morgun en þó
hafa landsliðsmennirnir æft eft-
ir æfingaskema frá Bogdan síð-
an ljóst var að ísland myndi
eiga lið á OL.
í máli stjórnarmanna HSÍ
kom fram að kostnaður við
þátttöku á leikunum mun verða
mikill auk þess sem Sambandið
er nú í milljón króna skuld.
íslenska Olympíunefndin hefur
þó tekið málaleitan HSÍ um
stuðning mjög vel og mun
hjálpa af fremsta megni.
Eins og áður hefur komið
fram þá lenda ísindingar í riðli
með Júgóslövum, Rúmenum,
Sviss, Japan og Alsír og hafa
leikdagar á OL þegar verið
ákveðnir og verður fyrst keppt
við Júgóslava þann 31. júlí.
Annars verða leikirnir í þessari
röð:
2. Ágúst Rúmenía 4. ágúst
Japan 7. ágúst Alsír 8. ágúst
Sviss.
Bikarkeppni KSl:
Austri áfram
- Ólsarar skelltu Breiðhyltingum
■ Austri á Eskifirði sigr-
aði Einherja frá Vopnafirði
2-1 í bikarkeppni KSÍ í
fyrrakvöld, erliðinmættust
í bikarkeppni KSÍ á Eski-
firði. Úrslit þessi verða að
teljast nokkuð óvænt, því
Austri leikur í 3. deild en
Einherji í 2. deild. Mörk
Austra skoruðu Guðmund-
ur Árnason og Sófus Hák-
onarson en Gísli Davíðs-
son minnkaði muninn fyrir
(
Austra.
Þá vann Víkingur frá
Ólafsvík stórsigur á Leikni
Reykjavík í bikarkeppn-
inni á þriðjudag, 9-1. Pétur
Finnsson 3, Viðar Gylfason
2, Guðmundur Kristjáns-
son, Jónas Kristófersson,
Gunnar Örn Gunnarsson
og varnarmaður Leiknis
skoruðu mörk Ólsara, en
Þorvaldur Guðmundsson
skoraði fyrir Leikni.
Steingrímur gerði
mark 4. umferðar
■ Að mati dómara var mark
Steingríms Birgissonar KA,
sem hann skoraði gegn Val
fallegasta mark 4. umferðar í
fyrstu deild. Steingrímur skor-
aði með fallegum skalla; það
var Gústaf Baldvinsson sem
sendi vel fyrir markið og
Steingrímur kastaði sér fram
og skallað glæsilega í markið.
NT óskar Steingrími til ham-
ingju með markið og vonandi
sjáum við fleiri jafngóð mörk í
sumar.
íþróttir
helgarinnar
■ Ekki verður leikið í 1.
deild fyrr en á mánudag
en þá verða tveir leikir.
Valur og Þróttur mætast á
Valsvelli og ÍBK mætir
Fram í Keflavík, báðir
leikir hefjast kl. 20:00.
í 2. deild verður aðeins
einn leikur yfir hátíðina
því í dag keppa KS og
Einherji á Siglufirði og
hefst leikurinn kl. 14:00.
í 4. deild verða allmarg-
ir leikir og má einna helst
benda á leik ÍR og Reynis
Hnífsdal sem verður á
ÍR-velli í dag kl. 14:00.
Golf
Mikið verður um golf-
mót um helgina og má
segja að allflestir golf-
klúbbar á landinu verði
með mót í gangi.
■ Þeir Valþór Sigþórsson og Gísli Eyjólfsson voru mjög traustir
í vörn ÍBK og skölluðu flest í burtu. Hér stöðva þeir Loft Ólafsson.
Keflvíkingar á
toppinn - góður sigur
Steingrímur Birgisson.
■ „Liðið spilaði ekkert illa,
en okkur vantaði mörkin eins
og fleirum. En það kemur von-
andi,“ sagði Magnús Jónatans-
son við blaðamann NT eftir
leik Breiðabliks og Keflvíkinga
í 1. deild á Kópavogsvelli í
gærkvöldi. Það voru Keflvík-
ingar sem fóru heim með öll
þrjú stigin eftir nokkuð fjörug-
an baráttuleik því þeir skoruðu
eina mark leiksins og var Magn-
ús Garðarsson þar að verki.
Keflvíkingar trjóna nú einir
á toppi 1. deildar og virðast
vera með samstilltan hóp og
gefa sig alla í leiki. Vörnin er
traust með Valþór sem anker
og frammi er Ragnar Margeirs-
son gífurlega sterkur.
En snúum okkur þá að
leiknum sem var eins og fyrr
sagði allfjörugur en þó var
heldur lítið um færi og þau er
gáfust lentu meira hjá Keflvík-
ingum. Það var þó ekki fyrr en
á 20. mín. sem fyrsta færið kom
og voru Blikarnir þar að verki
er Sigurjón Kristjánsson komst
upp að markteigshorni og skaut
að marki en Þorsteinn varði
mjög vel í horn. Á 25.mín.átti
Ragnar góða sendingu á Helga
Bents, sem komst einn í gegn
HN0T-
SKURN
Mikill baráttuleikur sem
bauð ekki uppá mörg færi.
Keflvíkingar skoruðu og það
dugði. Markið gerði Magnús
Garðarsson á 58. mín. Áhorf-
endur voru um 1000 f góðu
veðri.
en missti boltann of langt frá
sér og Ólafur Björnsson bjarg-
aði. Stuttu seinna átti Valþór
síðan þrumuskot frá vítapunkti
en bóltinn fór hátt yfir.
Dálítið var um grófar tækl-
ingar og fékk Benedikt Guð-
mundsson að sjá gula spjaldið
hjá slökum dómara leiksins,
Óla Ólsen. Annað mjög merki-
legt gerðist ekki í fyrri hálfleik.
I síðari hálfleik voru Keflvík-
ingar mun grimmari í upphafi
og uppskáru eina mark leiksins
strax á 58. mín. og var Ragnar
aðalskapari þess marks. Hann
fékk boltann á vítateig og lék á
nokkra Blika og sendi svo
knöttinn fyrir markið. Þar tók
Einar Ásbjörn við honum og
fleytti áfram á Magnús sem tók
boltann með sér inn í teiginn og
skoraði framhjá Friðrik í marki
Blikanna, 1-0 fyrir Keflavík.
Eftir markið sóttu Breiða-
bliksmenn af krafti en gekk illa
að skapa sér færi og voru
skyndisóknir Keflvíkinga
margar mjög hættulegar sér-
staklega þegar Ragnar var með
boltann.
Sigur Keflvíkinga var sann-
gjarn að því leyti að þeir voru
mun beittari en Blikarnir, og
svo skoruðu þeir líka eina mark
leiksins og það gildir. Blikarnir
hafa hins vegar átt í mesta basli
með að skora mörk.
Hjá Keflavík var Ragnar
mjög hættulegur og svo áttu
Valþór og Þorsteinn í markinu
góðan dag. Hjá Blikum var
Loftur góður og Jóhann Grét-
arsson barðist vel á miðjunni.
Áhyggjur af Ólympíuleikunum í Los Angeles:
Mengaðir Olympíuleikar
■ Það gæti orðið þannig á
Ólympíuleikunum að kepp-
endur verði að passa sig meir á
slæmri loftmengun heldur en
sterkum mótherjum.
Leikarnir verða haldnir á
þeim tíma sem er hvað verstur
hvað loftmengun varðar í Los
Angeles, og þar að auki er LA
oft kölluð „ívlengunar-Höfuð-
borg Bandaríkjanna“ (Smog
Capital of the Únited States).
Útvarpsstöðvar í borginni
skýra reglulega frá loftmeng-
uninni í hverjum veðurfrétta-
tíma og læknar gefa skýrslur
um hættustig loftmengunar-
innar þegar ástandið er hvað
verst. Á slíkum tímum ráð-
leggja heilbrigðisyfirvöld fólki
að forðast alla áreynslu þar
sem allt slíkt eykur loftmagn
það sem fólk andar að sér.
Að sjálfsögðu geta íþrótta-
menn, er eru að keppa að því
að vinna til verðlauna, ekki
fylgt þessum ráðleggingum
yfirvalda. Þeir munu leggja sig
alla fram og því gleypa heil
ósköp af óloftinu.
Læknar segja að það verði
sérstaklega þátttakendur í þol-
greinum sem muni verða fyrir
mestum óþægindum, er þar átt
við greinar eins og maraþon-
hlaup, hjólreiðar og langsund.
Nefndarmcnn í Ólympíu-
nefnd Bandaríkjanna segja að
allar fréttir um loftmengunina
séu mjög ýktar og benda á að
í Los Angeles sé keppt í bæði
basebal! (Amerískt fyribæri
líkt hornabolta) og Amerisk-
um fótbolta (ekki knattspyrna
eins og við þekkjum) án þess
að það hafi nokkur áhrif á
leikmenn. Má benda á til gam-
ans að L.A. Raiders sigruðu í
Ameríska fótboltanum á síð-
asta keppnistímabili.
Að lokum benda stjórnar-
menn í Ólympíunefnd Banda-
ríkjanna á að sennilega sé
L.Á. hreinni en Mexíkóborg
þar sem leikarnir fóru fram
1968.
En Sabrina Schiller, sem er
fremst í flokki umhverfis-
verndarmanna, segir að
ástandið verði slæmt. „Flestir
sem heimsækja L.A. meðan á
leikunum stendur munu koma
akandi og það eru einmitt bílar
og þeirra mengun sem mun
valda vandræðum". Hún bætir
viö að sennilega muni borgar-
yfirvöld biðja verksmiðjur sem
eru mengunarvaldandi um að
draga úr starfsemi meðan á
leikunum stendur. „Við hefð-
um getað gert betur, en nú er
það of seint,“ sagði Schiller að
lokum.
Einkunnagjöf NT:
KEFLAVÍK
Þorsteinn Bjarnason .... 3
Gísli Eyjólfsson ......3
Vaiþór Sigþórsson.....?
Guðjón Guðjónsson.....4
Óskar Færseth .........3
Sigurður Björgvinsson .. 4
Magnús Garðarsson.....4
Einar Ásbjörn Ólafsson .. 5
Helgi Bentsson.........4
Sigurjón Sveinsson ....5
Ragnar Margeirsson....2
Ingvar Guðmundsson ... 6
Sigurjón kom inn fyrir
Magnús á 58.mfn.
BREIÐABLIK
Friðrik Friðriksson...3
Benedikt Guðmundsson . 4
Ómar Rafnsson..........3
Ólafur Björnsson ......4
Loftur Óiafsson........2
Jóhann Grétarsson .....3
Trausti Ómarsson......5
Þorsteinn Geirsson ....5
Sigurjón Kristjánsson ... 5
Jón Oddson ............6
Ingólfur Ingólfsson...5
Guðmundur kom inn fyrir
Sigurjón á 44. min. og Þor-
steinn Hilmarsson kom inn
fyrir Ingólf á 67. mín.