NT - 09.06.1984, Page 7
Laugardagur 9. júní 1984 7
■ Birgir Arnason
grunn. Of mikils er krafist á of
stuttum tíma og því næst oft á
tíðum ekki sá árangur sem
efniviðurinn býður raunveru-
lega upp á. En það er krafa
tímans að tamningamaður skili
óeðlilega miklum árangri mið-
að við þann tíma sem hann
hefur til umráða. Við förum
oft fram úr því sem hrossin
geta tekið á móti og er þó
tamningin grunnur allra líf-
daga reiðhestsins. Ef byrjunin
mistekst er oftast allt unnið
fyrir gýg. Einkunnarorðin eiga
að vera að flýta sér hægt, það
skilar mestum árangri þegar
lengra er litið.
- Hvaða umbætur er hægt
að gera á tiitölulega skömmum
tíma?
Ekki vil ég ræða - taka
afstöðu til -hrossafjöldans á
þessu stigi. í ræktunarstarfi
tefur e.t.v. mest að menn ein-
blína á sitt eigið og eru ógagn-
rýnir. En aðalsmerki góðs
ræktunarmanns hlýtur að vera
að geta gagnrýnt sitt starf af
hiklausu raunsæi.
Hvað félagsstarfið snertir er
unglingastarfið sá grunnur sem
framför í reiðmennsku byggist
á. Mörg hestamannafélög hafa
vanrækt unga fólkið. Frá því
eru þó undantekningar. Hjá
sumum félögum hefur vel til
tekist og sífellt koma þá upp
góðir ungir reiðmenn sem eru
einnig virkir í félagsstarfi.
Annars staðar lífnar unglinga-
starf í eitt eða tvö ár, þá kemur
fram hópur áhugasamra ung-
linga, en síðan slitnar keðjan.
Það er gott og blessað að halda
námskeið fyrir fullorðna,
undirstaðan er þó alltaf að
móta unglingana. Það er óheil-
brigt að gera alltaf sömu mis-
tökin og nýta ekki þá kunnáttu
sem fyrir hendi er.
- Geta Skagfirðingar greitt
fyrir einstaklingum að velja
sér hross við sitt hæfi?
Það hefur verið vísir að
þessari þjónustu í héraðinu um
árabil, fyrst sem einstaklings-
framtak. Ákveðnir menn hafa
verið boðnir og búnir að greiða
götu fólks sem kemur í leit að
hestum. Eftir að Hagsmuna-
samtök hrossabænda voru
stofnuð hefur verið starfandi
sölufulltrúi fyrir félagsskapinn
sem bæði hrossaræktendur og
kaupendur hafa getað leitað
til. Þetta er etnvörðungu sjálf-
boðastarf. Æskilegt væri að
menn ynnu saman að því að
skipuleggja þennan þátt betur.
Og til að árétta enn: Allt veltur
á sjálfsgagnrýni ræktandans og
síðan á góðri tamningu til að
geta bent fólki á hesta sem því
hæfa.
Einar Örn Grant /
✓
Birgir Arnason
tamningamenn á
Akureyri
- Þið eruð viðurkenndir reið-
menn og vanir sýningarmenn
á mótum. Hafið þið eitthvað
að sækja á námskeið sem
þetta?
Menn geta alltaf bætt við
kunnáttu sína og eru auðvitað
alfrei fullnuma. Það sem
Gundlach fór yfir kom okkur
að góðum notum svo við
höfum ekki verið hér í erindis-
leysu.
- Er Gundlach góður reið-
kennari? A hvað leggur hann
megináherslu?
Hann er mjög nákvæmur og
fjölhæfur enda kunnugt að
hann hefur náð ótrúlega langt
með erfið hestefni. Við höfðum
áhuga á að kynnast því hvernig
hann ynni. Hann leggur mikla
áherslu á að þjálfa eftir ákveð-
inni áætlun og undirbúa hross-
in á réttan hátt fyrir sýningar,
samspil manns og hests mætti
e.t.v. kalla það. Hesturinn fái
nægan tíma við hverja æf-
ingu, miklu meiri tíma fyrir
hvert atriði en við þekkjum og
höfum vanist. Uppbygging
þjálfunar hjá honum er mjög
margbreytileg. Það sem á helst
að gera hjá okkur á einum
mánuði vinnur Gundlach að á
einu ári. Mikil og þrotlaus
vinna með hvern og einn hest.
Við verðum að vera með 10-12
hesta á meðan hann er með
2-4.
Það segir sig sjálft þvílíkur
reginmunur er á slíkri aðstöðu.
En fáir hestar samtímis og
langur tími með hópinn er
auðvitað dýr tamning, en ár-
angurinn verður eftir því og
gjaldinu því ekki á glæ kastað.
Hér er hugsað um einn mánuð
og fast gjald og síðan ekki
söguna meir. Ætlast er til að
árangur náist á 4-6 vikum.
Þetta eru fráleitar kröfur og
öllum til tjóns. Þessi hugsunar-
háttur rekur allt áfram. Hjá
okkur fæst harla lítil viður-
kenning og enn minna þakk-
læti fyrir að vinna rólega og
ætla hverjum hesti þann tíma
sem hann þarfnast.
- Breytið þið ykkar reiðstfl
og aðferðum eftir þetta nám-
skeið?
Við hljótum að tileinka okk-
ur sitt hvað og útfæra nokkuð
á annan hátt vissa hluti sem við
höfum ekki hugsað út í, má
þar nefna ásetu, hvatningar-
möguleika, taumsambando.fi.
Bent er rækilega á að notfæra
sér mismunandi möguleika við
ólíkar hestgerðir. Gundlach
fór ítarlega í hlutina og var
mikill munur að fá nú allt
milliliðalaust. Hann tók sér-
staklega fyrir uppbyggingu og
þjálfun á tömdum hestum, var
það mjög þarft svo oft sem
þarf á því að halda.
- Kom námskeiðið ykkur
beint að notum í sambandi við
tamningar?
Alveg hiklaust, í öllum
grundvallaratriðum. Mikil
áhersla var lögð á að ná spennu
úr hestinum, ekki er unnt að
beita honum að ákveðnu atriði
fyrr en slakað hefur verið á
spennunni. Á þetta lagði
Gundlach mikla áherslu, að fá
hestinn slakan og rólegan. Hér
er það enn og aftur tíminn sem _
mestu skiptir, gefa sér nægan
tíma. Nauðsynlegt er að teyma
hestinn sem mest bæði gang-
andi og með hesti.
- Hvað viljið þið segja um
aðstöðuna í Dal?
Aðstaðan þar var frábær, sú
besta sem við höfum séð. Mjög
gott hesthús, kennslustofa með
kennslutækjum, gerði af réttri
stærð, taumhringur, 200
m hringvöllur, íbúð fyrir tamn-
ingamenn. Okkur er kunnugt
að eigandi staðarins, Gunnar
Dungal, hefur sýnt þessu fram-
taki FT einstakan áhuga og
hvatti til þess að námskeiðið
yrði að veruleika. Við viljum
koma á framfæri bestu
þökkum fyrir að hafa átt þess
kost að taka þátt í ágætu
námskeiði við góðar aðstæður.
Æskilegt væri að fá námskeið
með líku sniði víðar um land.
Birgir og Einar svöruðu
sameiginlega og virtust býsna
sammála.
Efftir: Árna Þórðarson
Pétur Behrens
Málsvari frjálslyndis,
samvinnu og félagshyggju
Útgefandi: Nútíminn h.f.
Ritstjórar: Magnús Ólafsson (ábm)
og Þórarinn Þórarinsson
Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar:
Síðumúli 15, Reykjavík. Sími:
686300. Auglýsingasími: 18300.
Kvöldsímar: 686387 og 686306.
Verö í lausasölu 25 kr.
Áskrift 275 kr.
Setning og umbrot: Tæknideild NT.
Prentun: Blaðaprent hf.
Siðleysi
■ Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra,
hefur nýlega skipað mann í stöðu umdæmisfull-
trúa Fasteignamats ríkisins á Austurlandi. Slíkt
væri varla frásagnarvert, ef ekki kæmi til sú
einkennilega aðferð, sem ráðherrann hefur not-
að við þessa embættisfærslu.
í stuttu máli eru málsatvik þau, að þann 16.
maí s.l. var áðurnefnd stað auglýst laus til
umsóknar í Lögbirtingablaðinu. Kom þar fram
að umsóknum skuli skilað til Fasteignamats
ríkisins fyrir 1. júní. En strax að morgni þess
dags hefur fjármálaráðherra tilkynnt ákvörðun
sína þrátt fyrir þá staðreynd, að umsóknirnar
höfðu ekki enn borist ráðuneytinu og bárust því
ekki fyrr en 4. júní.
NT fordæmir þau vinnubrögð, sem Albert
Guðmundsson, fjármálaráðherra, hefur beitt í
þessu máli og þann hroka og þá fyrirlitningu,
sem hann hefur sýnt gagnvart málsaðilum. Þrjú
atriði eru eftirtektarverð:
í fyrsta lagi gengur Albert Guðmundsson
framhjá hæfasta umsækjandanum, umdæmis-
tæknifræðingi Fasteignamatsins í Reykjvík. Sá
hafði meðmæli forstjóra Fasteignamatsins,alls
starfsfólks skrifstofunnar svo og annarra umdæmis-
tæknifræðinga fyrirtækisins um land allt. Þannig
hundsar ráðherrann algjörlega vilja þeirra, sem
eiga að vinna með nýja manninum.
í öðru lagi hundsar hann þær sjálfsögðu kröfur
til embættis umdæmistæknifræðings, að viðkom-
andi sé tæknifræðingur. Maður Alberts er ekki
með tæknifræðimenntun og er ráðning hans því
í ósamræmi við skipurit Fasteignamatsinsog þá
reglu sem hefur verið viðhöfð á undanförnum
sjö árum. Stjórn Tæknifræðingafélags íslands
hefur líka séð ríka ástæðu til að mótmæla
ákvörðun Alberts. í harkalegu bréfi til ráðherr-
ans segir stjórnin m.a.:
„Stjórnin telur að hér sé gjörsamlega
siðlaust athæfi og átelur því ráðherrann harðlega
fyrir þessa embættisfærslu“.
í þriðja lagi sýnir Albert Guðmundsson,
fjármálaráðherra, ekki þá sjálfsögðu kurteisi að
bíða með að tilkynna ákvörðun sína þangað til
umsóknir um starfið höfðu borist ráðuneytinu.
Hér er um hreina fyrirlitningu gagnvart öðrum
umsækjendum að ræða.
Albert Guðmundsson er einn hinna fjölmörgu
sjálfstæðismanna sem hafa verið iðnir við að
gagnrýna ríkisbáknið og stofnanir þess á undan-
förnum árum. Hefur hann þá borið við, að ekki
sé um nægilega mikinn metnað að ræða í slíkum
fyrirtækjum enda eðlilegt þar sem menn fá enga
umbun fyrir að leggja sérstaklega á sig í kerfinu.
En hvernig í ósköpunum getur hann búist við að
slíkur metnaður sé fyrir hendi eða byggður upp
meðan misvitrir stjórnmálamenn grípa inn í og
drepa slíkan metnað?
Ekki er hægt annað en að fordæma harðlega
aðferð Alberts.