NT - 09.06.1984, Side 15
Audi fór þá umdeildu leið
að stytta Quattroinn um 30 sm í
miðjunni til þess að reyna að
bæta aksturhæfnina á hlykkjótt-
um rallvegum. Boddýið er nú
að miklu leyti úr kevlar og
öðrum léttum en dýrum gerfi-
efnum, vélina steypa þeir nú
alla úr áli, gáfu henni nýtt
tveggja knastása 20 vetla hedd
með endurhönnuðu forþjöppu-
kerfi og hafa hafið sölu á 300
hestafla götubílunum. Strax og
seld hafa verið 200 eintök rýkur
Stubb-Quattro af stað í rall-
keppnir með 450-500 hö.
Peugeot eru þeir fyrstu til
þess að setja svona bíl á
markað, hann nefnist Peugeot
205 Turbo 16 og er með fjögurra
strokka 1775 rúmsentimetra vél
byggða á dieselvélinni í 205/305
en með 16 ventla heddi og
forþjöppu með millikæli. Peu-
geot eru þeir einu til þess að
staðsetja vélina þversum fyrir
framan hægra afturhjól þaðan
sem hestöflin 200-350 eru tekin
í gegn um 5 gíra kassa og
stillanlegt mismunadrif til ann-
arra tveggja drifa, eitt framan
og eitt aftan.
Bílablaðið Car hefur reynslu-
ekið þessum bíl sem hlýtur að
teljast ódýr miðað við hina,
hann kostar innan við 100.000
mörk í Þýskalandi (u.þ.b. 1
milljón ísl. kr.) Segja Car-menn
bílinn standa fyllilega undir
þeim væntingum sem gerðar
voru til hans fyrirfram hvað
varðar aksturseiginleika og
annað. Þar eiga TRX dekkin
sem Michelin hannaði sérstak-
lega fyrir þessi 200 eintök stóran
þátt, þau eru með sérstaklega
stífum hliðum en mjúka gúmmí-
blöndu í bananum.
Ein japönsk verksmiðja hefur
nú þegar sýnt bíl í þessum
flokki, það er Mitsubishi. Hinn
nýi Starion 4x4 Turbo er léttari
útgáfa af venjulega Starion að
viðbættu fjórhjóladrifi og nýju
heddi með þrjá ventla á strokk
og tölvustýrðri ventlastjórnun.
Vélin er auðvitað með for-
þjöppu og millikæli, og 350
hestöfl segja Mitsubishimenn að
deilist niður á fjögur drifhjól
bílsins, með möguleika á aukn-
ingu.
Austin-Rover Group, ríkis-
fyrirtækið breska er líka með í
spilinu.
Fyrir stuttu sýndu þeir fyrir-
bæri sem þeir kalla TR4, bíl sem
hefur útlit Austin Metro en
ekkert annað. Aftur í er V6 vél
(3/4 af Rover V8 vélinni) og
knýr hún fjórhjóladrifskerfið án
forþjöppu og án fjögurra ventla
pr. strokk, enda er hestaflatalan
„ekki nema“ 260. Þótt bíllinn
hafi tekið þátt í ralli í æfinga-
skyni er endanleg útgáfa ekki
tilbúin enn, og verður kannski
þó nokkuð frábrugðin núver-
andi bíl þegar götubílarnir 200
fara í framleiðslu. Fyrir utan
forþjöppuleysið er'þessi Breti
helst merkilegur fyrir smæðina,
hann er jafn lítill og Austin
Metroinn sem hann á að líta út
fyrir að vera.
Fleiri framleiðendur eru með
súperbíla í hönnun sem hafa
ekki verið sýndir ennþá eða lýst
í smáatriðum, svo við segjum
betur frá þeim þegar þar að
kemur. Þeir sem helst er vitað
um nú eru Citroén sem klæða
sinn sérsmíðaða 4x4 turbo bíl í
föt BX, Lancia gera það sama
og kalla Delta nema að fjögurra
strokka vélin þeirra verður bæði
með reimdrifna og afgasdrifna
forþjöppu, Ford smíðar bíl frá
grunni með alveg nýtt boddý,
Opel setja Ferguson fjórhjóla-
drifskerfið breska fyrst í Manta
400 og síðar í föt af Kadettnum
sem kemur nýr á næsta ári.
Mazda eru nú að prófa 400-500
hestafla fjórhjóladrifs-RX7
turbo, og Toyota eru á fullu
þótt þeir láti aldrei neinar
upplýsingar leka fyrr en þeim
sýnist svo sjálfum. Þegar allt er
talið verða þetta -ár og næsta
viðburðarríkustu ár í langan
tímafyrirsportbílaáhugamenn.
Arí Arnórsson
Laugardagur 9. júní 1984 15
■ 14 tommu álfelgur með lágprófíldekkjum
fylgir öllum 205 GTI sem er fyrsta útgáfa 205 til
að nota nýja tveggja dyra boddýið.
(í Auto Motor & Sport)
Peugeot 205 GTI að innan.
(í Car-May)
Stífari fjöðrun, fleiri hestöfl
FRANSKUR GTI
FRÁ PEUGEOT
■ Franskir bílaframleið-
endur hafa mest verið þekkt-
ir fyrir mjúkar þægilegar
drossíur og litlu bflarnir
þeirra Frakkanna hafa veríð
mjúkir, sparneytnir og kraft-
lausir.
En þegar VW Golf GTI
kom á markað gerðu allir
bílaframleiðendur sér ljóst
að hann passaði í glufu sem
enginn hafði áður reynt að
fylla og keppnin um hlutdeild
í nýsköpuðum „hot-shot-
hatchback“ markaðnum eins
og Bretar kalla það hófst
með miklum látum. Flestir
stærri framleiðendur í Evr-
ópu áttu lítinn sætan spar-
neytinn framdrifsbíl sem
auðvelt var að bæta í nokkr-
um hestöflum og aukamæl-
um, líma slatta af röndum og
svuntum utaná og X-um,
S-um eða GT-um á afturlúg-
una.
Þannig fæst einskonar
sportbíll, sem mikið er lagt í
að auglýsa, selst fyrir 20-40%
hærra verð og stórbætir álit
kaupenda á allri sparibauka-
fjölskyldunni, sem bíllin til-
heyrir - þótt 80-90% þeirra
kaupi ekki annað en ódýrustu
útgáfuna.
I Frakklandi reið Renault
á vaðið og setti létt peppaða
1400 vél í Renault 5, bætti
við flottum felgum og gæja-
legum sætum, stífaði
fjöðrunina obbolítið og bætti
á sem kirsuberi á toppinn
nafni Alpine sportbílasmiðj-
anna sem eru löngu komnar
í eigu Renault. Renault 5
Alpine mæltist mjög vel fyrir
en megnaði samt ekki að
hafa áhrif á rífandi sölu á
Golf GTI í Frakklandi, frek-
ar en Citroén Visa Chrona
eða Talbot Samba sem komu
síðar. Þar hefur mest selda
útgáfan af Golf verið GTI
öfugt við flesta aðra markaði
og þessir þrír bókstafir öðlast
sérstakan sess.
G.T. er raunar stytting á
ítölsku orðunum Gran Turi-
somo (enska: Grand Tour-
ing) sem var upphaflega not-
að um kraftmikla hand-
smíðaða sportbíla, hentuga
til notkunar á „Autostrado11
hraðbrautum Mussolinis.
Ford var einn. af fyrstu
fjöldaframleiðendunumtil að
stela þessari virtu skamm-
stöfun til þess að ljá „sport-
legu“ Cortínunum sínum æs-
andi blæ, „GT, þú veizt, eins
og Ferrari“.
Litla iið sem VW skeytti
seinna við stendur fyrir „inj-
ection" benzíninnspýtingar-
kerfi sem kemur í stað
blöndungs.
Þessa nærri 10 ára gömlu
uppskrift VW matreiðir Pe-
ugeot nú á franska vísu og
væntir ekki minni árangurs
en VW.
Fyrir utan stærðina er Pe-
ugeot 205 GTI næstum eins
á blaði og hinn upprunalegi
Golf GTI, með 1600 rúm-
sentimetra fjögurra strokka
línuvél með Bosch benzín-
innspýtingu þversum -
frammí sem skilar 105 hö
gegnum 5 gíra kassa til
framhjólanna. Fjöðrunin er
stífasta dæmið sem hingað til
hefir sézt meðal „sport“
módelanna frönsku um frá-
hvarf Frakka frá langri linri
fjöðrun.
Þetta atriði er mjög umdeilt
og vekur hrifningu sumra en
andúð annarra, sem eru van-
ir „frönsku fjöðruninni“ og
vilja ekki að franskur bíll
fjaðri eins og þýzkur.
Eitt er þó víst, og það er
að stífleikinn gefur Peugeot
205 GTI aksturseiginleika
sem enginn franskur bíll hef-
ur haft og eru bílaskríbentar
Evrópu almennt mjög hrifnir
af þessari nýbreytni. Venju-
legi 5 dyra Peugeot 205 held-
ur hinsvegar áfram með hina
venjulegu sófamýkt. Meðan
Golfinn hefur fitnað og
stækkað er Peugeot aðeins.
370 sm á lengd og 850 kg á
þyngd sem gerir hann snarp-
ari og sneggri í hreyfingum,
fyrir utan hin augljósu sann-
indi að minni þyngd er fundið
fé. Bezta leiðin til þess að
létta bíl án þess að veikja
hann er jú að minnka hann.
Jafnhliða þessum fram-
drifna „létt-sportara“ ef svo
mætti segja setti Peugeot 200
eintök af allt öðruvísi bíl á
markað sem þó er látinn líta
út eins og venjulegur 205 af
markaðsástæðum. Við segj-
um nánar frá honum annars-
staðar í bílasíðunni í öðru
samhengi.
En hvenær kemur fyrsti
205 GTI til okkar? Það fer
eftir því hvenær þú pantar!
A.m.k. er verðið afar
hagstætt.
Notaðir
Volvo bílar
VOLVO 244 TURBO árg. 1982 - beinskiptur með
yfirgír og vökvastýri ekinn 17 þús. Verð: 550.000
Ath. einn með öllu.
VOLVO 244 GL árg. 1982 - sjálfskiptur með
vökvastýri, ekinn 21 þús. Verð: 445.000. Gullfall-
egur bíll með plussáklæði á sætum.
VOLVO 244 GL árg. 1982 - sjálfskiptur með
vökvastýri, ekinn 30 þús. Verð: 430.000.
VOLVO 244 GL-árg. 1982 - sjálfskiptur með
vökvastýri, ekinn 35 þús. Verð: 435.000.
VOLVO 244 GL árg.1981 - sjálfskiptur með
vökvastýri, ekinn 59 þús. Verð: 390.000.
VOLVO 244GLárg. 1981 - beinskiptur með yfirgír
og vökvastýri, ekinn 44 þús. Verð: 380.000.
VOLVO 244 DL árg. 1981 - sjálfskiptur með
vökvastýri, ekinn 97 þús. Verð: 355.000.
VOLVO 244 GL árg. 1980 - sjálfskiptur með
vökvastýri, ekinn 40 þús. Verð: 320.000.
VOLVO 244 GL árg. 1980 - beinskiptur með
vökvastýri, ekinn 45 þús. Verð: 335.000.
VOLVO 244 DL árg. 1980 - beinskiptur með
vökvastýri, ekinn 32 þús. Verð: 290.000.
VOLVO 244 GL árg. 1979 - sjálfskiptur með
vökvastýri, ekinn 78 þús. Verð: 270.000.
VOLVO 244 GL árg.1979 - sjálfskiptur með
vökvastýri, ekinn 121 þús. Verð: 255.000.
VOLVO 244 DL árg.1978 - beinskiptur með
vökvastýri, ekinn 90 þús. Verð: 230.000.
VOLVO 244 DL árg. 1977 - beinskiptur, ekinn 96
þús. Verð: 180.000.
VOLVO 345 GLS árg. 1982 - beinskiptur, ekinn 21
þús. Verð: 320.000.
VOLVO 345 DL árg. 1982 - beinskiptur, ekinn 29
þús. Verð: 280.000.
VOLVO 343 DL árg. 1979 - sjálfskiptur, ekinn 70
þús. Verð: 170.000.
VOLVO 245 GL árg. 1982 - sjálfskiptur með
vökvastýri, ekinn 37 þús. Verð: 480.000. Fallegur
bíll með fjölda aukahluta.
VOLVO 245 GL árg. 1982 - beinskiptur með yfirgír
og vökvastýri, ekinn 29 þús. Verð: 460.000
VOLVO 245 DL árg. 1982 - beinskiptur með
vökvastýri, ekinn 40 þús. Verð: 450.000.
yITai<>H74
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200
NOACK
RAFGEYMAR
FYRIR ALLA BÍLA OG TÆKI
Srt'Osku bil.itiamleiðenau'nir VOLVO SAAH 04 SCAMA
OOI.i NOACK i.ilqeyr 1,1 vcqn.i >osl.i þcui.i
n5ílabú5
I Vagnhöfða 23
WK^\0’m ■■ 110 Reykjavík
Aukahlutir Varahlutir Sérpantanir Sími 685825
40 __
TJP fl T TÆlT T^ Vatnskassar og vélahlutir
Sfi AwIM nj\0llji^ í ameríska bíla á lager.
Vélaupptekningar Mjog ha9stætt verö-