NT - 09.06.1984, Side 18
Sjónvarp kl. 20.35:
Myndlistarmenn:
Útvarp kl. 20.00 í kvöld:
Útvarp kl. 21.55:
Laugardagur 9. júní 1984 18
■ Talað verður við Guðnýju Halldórsdóttur í þættinum Ein-
valdur í cinn dag.
Gunnar Orn
Gunnarsson
■ Kynningar á íslenskum
listamönnum í sjónvarpinu
halda áfram. í kvöld verður
það Gunriar Örn Gunnarsson
listmálari sem verður kynntur,
en hann hefur skipt um stíl upp
á síðkastið og málar nú í stíl
við nýja málverkið. Þættir
þessir eru stuttir, vel gerðir og
veita nokkra innsýn í starf
listamannsins.
■ Manstu, veistu, gettu er einmitt fyrir börn á þessum aldri.
Einvaldur í
einn dag
- Hvað myndir þú gera?
■ Áslaug Ragnars er með
viðtalsþátt í kvöld sem ber
nafnið Einvaldur í einn dag.
Þetta er tuttugu mínútna
langur þáttur þar sem viðmæl-
andi er spurður um hvað hann
myndi gera ef hann væri ein-
valdur í einn dag. 1 þessum
þætti er það Guðný Halldórs-
dóttir sem fær tækifæri til að
greina frá draumsýnum sínum.
Aðspurð hvað Áslaug myndi
sjálf gera ef hún yrði einvaldur
í einn dag sagðist hún halda að
hún gæfi öllum frí, sérstaklega
þegar svona gott veður væri.
Fólk ætti að hlusta á þáttinn
og bera hann svo saman við
hugmyndir sínar um hvað það
myndi gera ef það yrði ein vald-
ar í einn dag. Sá, sem þetta
skrifar myndi sjálfsagt byrja á
því að tryggja sér völdin mun
lengur en einn dag, og fara svo
að safna á leynireikning í
Sviss. Það er aldrei að vita
hvenær einvöldum verður velt
af stóli.
■ Gunnar Örn Gunnarsson.
Manstu, veistu, gettu
Þáttur fyrir 8-11 ára börn
■ Þátturinn Manstu, veistu,
gettu verður á dagskrá á laug-
ardagskvöld. Stjórnendur eru
tveir, þótt aðeins sé getið um
einn í dagskrá. Það eru þær
Sigrún Jónsdóttir og Málfríður
Þórarinsdóttir. í viðtali sagði
Sigrún að þátturinn væri aðal-
lega ætlaður 8-11 ára börnum
en hún vonaði að sem flestir
gætu haft gaman af honum.
„Efnið er bæði nútíð, fortíð
og framtíð. í hverjum þætti
rifjar einn maður eða kona
upp bernsku sína. Fyrst er
talað við 15 ára stelpu, síðan í
næsta þætti við 20 ára og nýstúd-
dent, svo 25 ára og 30 ára, allt
upp í 65 ára. Síðan tölum við
yið krakka af landsbyggðinni.
í fyrsta þættinum tölum við við
Húsavíkurstúlku um hvað hún
er að gera í sumar. Við munum
fara vítt og breitt um landið og
tala við fólk á sveitabæjum og
sjávarþorpum. Síðan er það
framtíðin, viðspáum í framtíð-
ina með því að fá krakkana til
að skrifa bréf um það hvernig
framtíðin verði eftir 30-50 ár.
Við erum líka með getraun
í hverjum þætti þar sem á-
kveðnu landsvæði eða stað er
lýst, og síðan eiga krakkarnir
að geta upp á hvar þetta er.
Ég held að þetta sé svolítið
óvenjulegur þáttur, óvenjuleg
efnistök. Þættirnir verða 13,
þetta á að vera sumarþáttur“.
Hvernig finnst þér barna-
efni í fjölmiðlunum núna?
„Það fer sífellt batnandi,
aldrei hafa verið fleiri þættir
fyrir börn. En það hefur vant-
að þátt fyrir einmitt þennan
aldurshóp, 8-11 ára, sem er
mjög skemmtilegur, jákvæður
og opinn. Hann hefur verið
svolítið vanræktur“.
Sigrún er annars enskukenn-
ari og Málfríður dönskukenn-
ari.
Sunnudagur
10. júní
Hvítasunnudagur
8.00 Morgunandakt Séra Kristinn
Hóseasson prófastur, Heydölum,
flytur ritningarorö og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Létt morgunlög Hljómsveit Al-
fred Hause leikur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður Þáttur Friðriks
Páls Jónssonar.
11.00 Messa í Hallgrímskirkju
Prestur: Séra Karl Sigurbjörnsson.
Organleikari: Hörður Áskelsson.
Hádegistónleikar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tónleikar.
13.00 „Jólaóratorían"
13.35 Óperettutónlist.
14.15 Skuldadagar Þáttur um barátt-
una fyrir þvi aö klæða landiö skógi
að nýju, gerður i samvinnu við
Skógræktarfélag Eyfirðinga.
Umsjón: Hermann Sveinbjörnsson
og Ólafur H. Torfason (RUVAK).
15.15 Katfitiminn.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Háttatal. Þáttur um bókmennt-
ir. Umsjónarmenn: ÖrnólfurThors-
son og Árni Sigurjónsson.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Við stýrið Umsjónarmaður:
Arnaldur Árnason.
17.20 Síðdegistónleikar: Tónlist
ettir Richard Wagner. Suisse-
Romande hljómsveitin leikur undir
stjórn Horst Stein. Einsöngvari:
Simon Estes. a. „Du Frist ist um“,
aría Hollendingsins úr fyrsta þætti
óperunnar „Hollendingurinn fljúg-
andi". b. „Líkför Siegfrieds" úr
„Ragnarökum." c. „Forleikur" og
„Dans“ („Bacchanale") úr óper-
unni „Tannháuser". Hljóðritun frá
hátiðartónleikum i Genf í febrúar
1983 sem haldnir voru í tilefni af
100 ára ártíð tónskáldsins.
18.00 At sígaunum
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Eftir fréttir. Þáttur um fjölmiðl-
un, tækni og vinnubrögð. Umsjón:
Helgi Pétursson.
19.50 „Glóðafok sumarsólar"
Steindór Hjörleifsson les Ijóð eftir
Guðmund Frímann.
20.00 Sumarútarp unga fólksins
Stjórnandi: Helgi Már Barðason.
20.30 Listahátið 1984: Fílharmón-
íusveit Lundúna Beint útvarp frá
fyrri hluta tónleika i Laugardalshöll
Stjórnandi: Vladimir Askhenazy.
Einleikari: Stefán Ashkenazy. -
Kynnir: Ásgeir Sigurgestsson.
21.250 „Sögumaðurinn", smásaga
eftir Saki Erlingur Gíslason les
þýðingu Úlfs Hjörvar.
21.40 Reykjavík bernsku minnar -
2. þáttur Guðjón Friðriksson ræðir
við Þorvald Guömundsson for-
stjóra. (Þátturinn endurtekinn í
fyrramálið kl. 10.30).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Risinn hvíti“ eftir Peter
Boardman Ari T rausti Guðmunds-
son les þýðingu sína (6). Lesarar
með honum: AsgeirSigurgestsson
og Hreinn Magnússon.
23.00 Jassþáttur: Færeyskur tón-
leikur eftir Kristján Blak Saminn við
þjóðsögur Villiams Heinesen. Umsjón:
Jón Múli Árnason.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
11.júní
Annar í hvítasunnu
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Ragnheiður Erla Bjarnadóttir flytur
(a.v.d.v.):
7.20 Létt morgunlög Hljómsveit
Hans Carste leikur
8.00 Fréttir. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorð Þrúður Sigurðardóttir,
Hvammi í Ólfusi, talar.
8.20 Morguntónleikar
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Hindin góða“ eftir Kristján Jó-
hannsson Viðar Eggertsson les
(6)
9.20 Morguntónleikar,
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
11.00 Prestvígsla i Dómkirkjunni
Biskup Islands, herra Pétur Sig-
urgeirsson vigir Sigurð Árna Þórð-
arson cand. theol til prestsþjónustu
í Ásaprestakalli i Skaftafellspróf-
astsdæmi. Vígsluvottar: Dr. Einar
Sigurbjörnsson prófessor, sr. Fjal-
ar Sigurjónsson prófastur, sr. Þórir
Stephensen og sr. Hanna Maria
Pétursdóttir sem lýsir vígslu. Org-
anleikari: Marteinn H. Friðriksson
(hljóðrituð 19. apríl sl.)
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Hvítasunnusöngvar
14.00 „Endurfæðingin" eftir Max
Ehrlich Þorsteinn Antonsson les
þýðingu sína (8).
14.30 Listahátíð 1984: Fred Áker-
ström vísnasöngvari. Hljóðritun
frá tónleikum i Norræna húsinu
fimmtudagskvöldið, 7.þ.m.; fyrri
hluti. - kynnir: Baldur Pálmason
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Heim á leið. Umferðarþáttur i
umsjá Ragnheiðar Daviösdóttur
og Sigurður Kr. Sigurðarsonar.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfreftir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Mörður Arnason
talar.
19.40 Um daginn og veginn Rósa
Björk Þorbjarnardóttir endur-
menntunarstjóri talar
20.00 Lög unga fólksins. Þorsteinn
J. Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Hvað er eilíft
líf? Sigurður Sigurmundsson í
Hvítárholti les erindi eftir Grétar
Fells b. Sigurveig Hjaltested
syngur. Ragnar Björnsson leikur
með. Umsjón Helga Ágústsdóttir.
21.10 Nútímatónlist Þorkell Sigur-
björnsson kynnir.
21.40 Útvarpssagan: „Þúsund og
ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir
les valdar sögur úr safninu i
þýðingu Steingrims Thorsteins-
sonar (24).
22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Listahátíð 1984: mark Re-
edman og Nýja strengjasveitin
Hljóðritun frá tónleikum i Bústað-
akirkju fyrr um kvöldið - kynnir:
Hanna G. Sigurðardóttir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
sjónvarp
Sunnudagur
10. júní
Hvítasunnudagur
17.00 Hvítasunnumessa í Selfoss-
kirkju Sóknarpresturinn, séra Sig-
uröur Sigurösson, predikar og
þjónar fyrir altari. Kirkjukór Selfoss
syngur, organleikari og söngstjóri
er Glúmur Gylfason.
18.00 Teiknimyndasögur Annar
þáttur. Finnskur myndaflokkur í
fjórum þáttum. Þýðandi Kristín
Mantyla. Sögumaður: Helga
Thorberg. (Nordvision-Finnska
sjónvarpið)
18.20 Börnin á Senju 3. Haust
Myndaflokkur i fjórum þáttum um
leiki og störf á eyju úti fyrir Norður-
Noregi. Þýðandi: Jóhanna Jó-
hannsdóttir. Þulur: Anna Hinriks-
dóttir. (Nordvision-Norska sjón-
varpið)
18.45 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir, veður og dagskrár-
kynning
20.20 Myndlistarmenn 5. Þorbjörg
Höskuldsdóttir, listmáiari.
20.25 Sjónvarp næstu viku
20.35 Borgarbörn í óbyggðum
Kvikmynd sem „Sýn h.f." gerði aö
tilhlutan Æskulýðsráðs Reykjavik-
ur um leiðangur breskra og is-
lenskra barna kringum Langjökul
sumarið 1983. Ferð þessi, sem
farin var á vegum breskra og
íslenskra æskulýðssamtaka og
stofnana átti að kenna þátttakend-
um að sigrast á erfiðleikum og
öðlast samkennd og sjálfstraust.
Handrit og þulur: Hjalti Jón Sveins-
son. Umsjón og stjórn: Hjálmtýr
Heiödal.
21.00 Sögur frá Suður-Afríku 2.
Flís úr roðasteini Myndaflokkur i
sjö sjálfstæöum þáttum sem gerðir
eru eftir smásögum skáldkonunnar
Nadine Gordimer. Leikstjóri: Ross
Devenish. Saga um mannréttind-
abaráttu indverskrar konu í Jó-
hannesarborg sem mætir litlum
skilningi hjá eiginmanni hennar.
Þýðandi: Óskar Ingimarsson.
22.00 Vor í Vín Sinfóniuhljómsveit
Vinarborgar flytur verk eftir F.
Schubert, W.A. Mozart, F. Chopin,
R. Strauss, F. Lehar og J. Stráuss.
Einsönqvarar: Tamara Lund og
Nicolaj Gedda. Einleikari á píanó:
Hans Graf. Stjórnandi: Heinz
Wallberg. Þýðandi: Jón Þórarins-
son.
00.00 Dagskrárlok
Mánudagur
11.júní
Annar í hvítasunnu
19.35Tommi og Jenni Bandarisk
teiknimynd.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Myndlistarmenn 6. Sigurður
Örlygsson, listmálari
20.45 Edwin Bresk sjónvarpsmynd
eftir John Mortimer. Leikstjóri: Ro-
dney Bennett. Aðalhlutverk: Sir
Alec Guinness, Paul Rogers og
Rence Asherson. Dómari á eftir-
launum fær þá flugu i höfuðið að
kona hans hafi átt ástarævintýri
með vini þeirra og nágranna fyrir
mörgum árum. Þar sem hann hefur
ekkert þarflegra fyrir stafni ákveður
hann að reyna að afla óyggjandi
sannana i málinu. Þýðandi Krist-
rún Þórðardóttir.
22.00 Músfkhátíð í Montreux Ýms-
ar frægustu og vinsælustu popp-
hljómsveitir og söngvarar veraldar
skemmta á mikilli dægurlagahátið
sem kennd er við „gullnu rósina"
og haldin er í bænum Montreux í
Sviss. (Evróvision-Svissneska
sjónvarpið)
23.45 Dagskrárlok.