NT - 09.06.1984, Page 24
Útlönd
Laugardagur 9. júní 1984 24
Argentína:
Átti að myrða
Estelu Peron?
Bueno* Aim-Reuter
■ Lögregla fann sprengju um
borð í flugvél þeirra sem fyrr-
verandi forseti Argentíu, Maria
Estela Peron, ætlaði með til
Spánar í gær.
Peron, sem var í þriggja vikna
heimsókn til Argentínu, og rit-
aði þar m.a. undir sáttmála um
þjóðareiningu við núverandi
forseta landsins, Raul Alfonsin,
var á leið aftur til Spánar þar
sem hún hefur dvalið síðustu ár.
Sprengjan fannst í vél Argentín-
ska flugfélagsins Aeroliner, sem
átti að fara í áætlunarflug til Rio
De Janero, Madrid og Parísar.
Sprengjusérfræðingar tóku
sprengjuna sem vó hálft kíló,
úr sambandi, og flugvélin var
tekin úr notkun um sinn. Hún
er af gerðinni Boeing 747. Þrjú-
hundruð farþegar áttu bókað
far með vélinni, þeirra á meðal
voru atvinnumálaráðherra
Argentínu, Juan Manuel Cas-
ella, verkalýðsleiðtogar og
blaðamenn sem voru á leiðinni
á alþjóðlega verkalýðsráðstefnu
í Genf.
SÆLG/ETISGERÐ
KRISTINS ÁRNASONAR
Skipholti 35
Sími
68-56-75
ökukennsla
Ökukennsla
og æfingatímar
Kenni á Audi ’82. Nýir nemendur geta byrjað
strax og greiða aðeins tekna tíma.
Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst réttindi.
Æfing í borgarakstri. Greiðslukjör.
Lærið þar sem reynslan er mest.
Símar 27716 og 74923.
Ökuskóli Guðjóns Ó. Hanssonar.
Ökukennsla
Kenni á BMW. 518 Greiðslukjör. Páll Andrésson
símar 79506-18387.
■ Auk kjarnorkuveldanna ræður nu Ijoldi annarra rikja ytlr þeirrl tæknipekkingu sem þart
til þess að gera kjarnorkuvopn. Ef ekki verður samið um almenna kjarnorkuafvopnun er því
spáð að kjarnorkuveldum fjölgi mikið fram að aldamótum.
Árið 2000:
Verða atómvopn
í 40 löndum?
London-Reuter
■ Nú eru liðin 10
ár frá því að Indverj-
ar sprengdu fyrstu
kjarnorkusprengju
sína. Þá spáðu marg-
ir því að mörg önnur
lönd myndu fylgja í
kjölfarið og koma
sér upp kjarnorku-
vopnum. En á þess-
um tíma hefur ekk-
ert nýtt ríki viður-
kennt að hafa smíð-
að kjarnorkusprengj-
ur.
Samt er nú almennt talið
að um 40 ríki ráði yfir nægj-
anlegri tækni til að smíða
kjarnorkusprengjur. Ýmis-
legt bendir meira að segja til
þess að sum þeirra ráði nú
þegar yfir kjarnorkuvopnum
þótt þau viðurkenni það ekki
opinberlega.
Flestir vestrænir diplomat-
ar telja t.d. að ísraelsmenn
hafi komið sér upp
kjarnorkuvopnum og Egypt-
ar fullyrða að ísraelsmenn
hafi smíðað meira en 25
kjarnorkusprengjur. Þótt ís-
raelsk stjórnvöld hafi opin-
berlega neitað þessu viður-
kenna embættismenn að fs-
rael geti auðveldlega smíðað
kjarnorkuvopn með stuttum
fyrirvara.
Margt bendir líka til þess
að Suður-Afríkumenn ráði
yfir kjarnorkuvopnum þótt
stjórnin þar neiti því harð-
lega.
Pakistan, Libya, Taiwan,
Suður-Kórea, Argentína og
írak eru meðal þeirra ríkja
sem líklega geta framleitt
kjarnorkuvopn innan fárra
ára. Verði ekki samþykkt
bann við kjarnorkuvopnum
má búast við þvi að þessi ríki
bætist fljótlega í hóp kjarn-
orkuveldanna. Þau hafaekki
viljað samþykkja tillögur um
bann við því að ný ríki komi
sér upp kjarnorkuvopnum
þar sem þau telja að slíkt gefi
stórveldunum einokunarrétt
á kjarnorkuvopnum.
Það gæti því farið svo að
árið 2000 verði 40 kjarnorku-
veldi í heiminum.
Heimurinn
á hausnum
París-Reuter
■ Ritsjóri Le Monde ,(Heim-
urinn) helsta dagblaðs
Frakklands, tilkynnti lesendum
blaðsins í grein á forsíðu í gær
að blaðið myndi ekki hætta að
koma út, þrátt fyrir mikla fjár-
hagsörðugleika.
Le Monde sem er gefið út í
tæplega 400 þúsund eintökum,
hefur verið rekið með tapi síð-
ustu tvö ár, tapið á síðasta ári
var 3,5 milljónir dollara, rúmri
milljón meira en árið þar á
undan.
Á fundi hluthafa blaðsins var
ákveðið að halda útgáfunni
áfram, og verður nú reynt að
finna leiðir til að reysa fjárhag
blaðsins við, m.a. með því að
selja eignir þess, og hugsanlega
að breyta því í morgunblað í
stað síðdegisblaðs eins og nú er.
Indland:
Enn róstur
í Punjab
Nýja Dehli-Reuter
■ Leyniskyttur sikha eru enn
í launsátri í nágrenni Gullna
hofsins í Amritsar í Punjabfylki,
þar sem indverski stjörnarher-
inn réðist inn á miðvikudag til
að reyna að binda endi á upp-
reisn öfgafullra sikha. Nú er
haft eftir lögreglumönnum að í
það minnsta 500 manns hafí
fallið í átökunum á miðvikudag
en áður hafði verið talið að 300
manns hefðu fallið þá.
Einn helsti leiðtogi sikha,
Jarnal Singh Bhindranwale var
meðal þeirra sem féllu í Gullna
hofinu og í kjölfar þess hafa
verið mótmælaaðgerðir og róst-
ur í Punjab. Að minsta kosti sex
létu lífið í átökum gærdagsins
og á fimmtudag féllu 20 manns
og mörghundruð voru hand-
teknir.
Útgöngubann hefur verið sett
á í a.m.k. tveim borgum í
héraðinu til að reyna að bæla
niður mótmæli.
1 ræðu sem Indira Gandhi,
forsætisráðherra Indlands, hélt
í gær, sagðist hún harma mann-
fallið í Gullna hofinu en sagði
að aðgerðirnar hefðu verið
óhjákvæmilegar. Engin ríkis-
stjórn gæti til lengdar liðið fjöl-
damorð öfgamanna á saklausu
fólki. Gandhi hvatti til einingar
í héraðinu til að lækna sárin.
Forseti Indlands, Zail
Singh, sem sjálfur er sikhi,
heimsótti Amritsar í gær.
Hjólbörur • Sláttuvélar • Hrífur • Gafflar • Skóflur -x /y p jyf FTliT Hll TTVT A * Plöntugafflar •
• Kantskerar • Ristuspaðar • Arfasköfur • Klórur X \3CnLXLXr V XJM JAI w • Vatnsdreifarar •