NT - 11.07.1984, Síða 1
Hið virta íþróttablað „Kicker“ í V-Þýskalandi:
Asgeir og
Schumacher
- einir á heimsmælikvarða
■ Hið virta iþróttablað í V-
Þýskalandi, kicker, birti í fyrra-
dag val sitt á leikmönnum í
v-þýsku Búndesiígunni í knatt-
spyrnu, þar sem þeim er raðað
niður í flokka, á heimsmxli-
kvarða, í landsliðsflokki o.s.frv.
Aðeins tveir leikmenn voru í
umfjöllun blaðsins valdir á
hcimsmælikvarða, Asgeir Sigur-
vinsson, og þýski landsliðsmark-
vörðurinn hjá Köln, Tony
Schumacher.
Blaðið segir meðal annars, að
það sé skrýtið að eini leikmaður-
inn úti á vellinum, sem sé á
heimsinælikvarða í þýsku deild-
inni, sé útlendingur, og það frá
lítilli eldfjallaeyju norður í
höfum. Einnig sé það merkilegt
að þessi leikmaður hafí „verið
frystur" hjá einu af stærstu fé-
lögum landsins, Bayern
Múnchen, áður en hann hafí
getið sér frábært orð með VFB
Stuttgart. bls. 26 og 27.
Meira en milljón hverfur úr
vörslu Borgarfógetaembættis
Hver er Vegamótamaðurinn?
• Starfsmenn embættisins
ekki undir grun • Tveir
í gæsluvarðhald í dag?
■ Bankabókainnistæður að upphæð eitthvað á aðra milljón
króna hurfu úr vörslu skiptaréttar Borgarfógetaembættisins og
hafa þrír menn verið handteknir vegna þess máls en einum þeirra
var sleppt eftir yfirheyrslur. Ekkert af fénu hefur enn skiiað sér
við rannsókn málsins. Yfir þeim tveim sem enn eru í haldi hefur
verið krafist gæsluvarðhalds. Þeir hafa báðir verið starfslega
tengdir embættinu um tíma en ekki er talið að fastir starfsmenn
Borgarfógetambættis tengist málinu á nokkurn hátt.
Tildrög rannsóknarinnar eru
þau að 2. júlí reyndi maður að
leysa háa fjárupphæð út úr
bankabókum í Vegamótaútibúi
Landsbankans. Fyrr þennan
sama dag hafði þessara bóka
verið saknað í skiptarétti Borg-
arfógetaembættisins og var þá
látið vita í bankaútibúinu þann-
ig að ekki næðust fjármunir út
úr bókinni. Manninum var því
neitað um úttekt úr bókinni.
Skundaði hann þá út úr bankan-
um og hvarf fljótlega sjónum
bankastarfsmanns sem veitti
honum eftirför niður Banka-
strætið.
Að þessum atburðum af-
stöðnum var hafin rannsókn á
því hvort frekari verðmæti
hefðu horfið úr vörslu skipta-
réttar og kom í ljós að fleiri
bankabækur höfðu horfið og
mjög verulegar upphæðir horfið
út af þeim. I fyrradag voru svo
þrí menn handteknir vegna
málsins en samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu er enn ekki
vitað hvort maðurinn sem kom
í Yegamótaútibúið sé einn
þeirra.
Einum hinna handteknu var
sleppt eftir yfirheyrslur þar eð
rannsókn málsins gaf ekki tilefni
tilaðhefta ferðafrelsi hans með
gæsluvarðhaldi. Yfirhinum hef-
ur verið krafist varðhalds til 1.
ágúst og mun dómari Sakadóms
væntanlega taka afstöðu til kröf-
unnar í dag.
Enn er ekki upplýst hvernig
mennirnir komust í hirslur
embættisins en annar þeirra hef-
ur undanfarið unnið sem vottur
í tímavinnu hjá embættinu og
hinn var við sömu störf fyrir
nokkru. Ekki fengust um það
upplýsingar hjá Rannsóknar-
lögreglu hvort mennirnir hafa
áður komist í kast við lögin. Þá
herma heimildir blaðsins að
mennirnir hafi enn ekki játað á
sig sakagiftir. Hvorugur þessara
manna taldist nokkurntíma fast-
ur starfsmaður borgardóms og
liggur enginn sem þar vinnur
undir grun að sögn Þóris Odds-
sonar vararannsóknarlögreglu-
stjóra.
Eigendur bankainnistæðn-
anna í skiptarétti munu ekki
bera neinn skaða vegna þessa
máls.
Rækja fflutt inn
frá Sovétríkjunum
- því innlend ffæst ekkifyrir
gildandi verð sjá bls. 2
■ Sænska stúlkan Yvonne Ryding var kjörin „Ungfrú alheimur“ í
fegurðarsamkeppni sem fram fór í Miami, Florida í gær. Titilberi
síðasta árs, Lorriane Downes krýnir hina nýju alheimsgyðju, sem
auk titilsins fær 175 þúsund dollara (rúmar 5 millj. ísl. kr.)
POLFOTO-Símamynd
Ámorgun
Gjaldþrotamál:
Ömurleg
lífsreynsla
segir gjaldþrota
viðmælandi NT
■ „Þetta er hreint ömur-
legt, niðurdrepandi og
leiðinlegt," sagði maður sem
úrskurðaður hefur verið
gjaldþrota.
í NT í gær kom fram að
gjaldþrotamálum hefur
fjölgað mikið á þessu ári og
að mikið er um fjárnám.
Það hefur vakið athygli
embættismanna, sem um mál
þessi fjalla, að aukning er á
gjaldþrotamálum einstakl-
inga umfram fyrirtæki og fé-
lög með atvinnurekstur.
Maðurinn sem NT ræddi
við skuldaði hátt í fimm
hundruð þúsund krónur í
skatta og ber mikla vaxta-
byrði af þeim sökum en það
var ekki skattaskuldin sem
kom honum í koll á endanum
heldur smáskuld upp á
17.000 krónur.
Hvaða reglur gilda um
gjaldþrot og af hverju verður
fólk gjaldþrota?
Þessari spurningu og
fleirum verður reynt að svara
í NT úttekt á morgun.
Hvernig standa þín
skuldamál - ert þú öruggur?
Fleiri hundruð fasteignaauglýsinga á Ns. 10-17 í blaðinu í dag