NT - 11.07.1984, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 11. Júlf 1984
Skip Sambandsins munu
ferma til íslands á næstunni
sem hér segir:
Hull/Goole:
Dísarfell ...........23/7
Dísarfell ........... 6/8
Dísarfell ...........20/8
Rotterdam:
Dísarfell ...........24/7
Dísarfell ........... 9/8
Dísarfell ...........21/8
Antwerpen:
Dísarfell . .........25/7
Disarfell .......... 10/8
Dísarfell ...........22/8
Hamborg:
Dísarfell .......... 13/7
Dísarfell ...........27/7
Dísarfell ........... 8/8
Dísarfell ...........24/8
Helsinki/Turku:
Hvassafell...........24/7
Hvassafell.......... 18/8
Larvik:
Jan ................ 16/7
Jan .................30/7
Jan ................ 13/8
Jan .................27/8
Gautaborg:
Jan .................17/7
Jan .................31/7
Jan ................ 14/8
Jan..................28/8
Kaupmannahöfn:
Jan ................ 18/7
Jan ................. 1/8
Jan ................ 15/8
Jan .................29/8
Svendborg:
Jan..................19/7
Jan ................. 2/8
Jan..................16/8
Jan..................30/8
Árhus:
Jan .................20/7
Jan ................. 3/8
Jan..................17/8
Jan .................31/8
Leningrad:
Hvassafell...........24/7
Gloucester, Mass.:
Skaftafell...........29/7
Halifax, Canada:
Skaftafell...........30/7
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavik
Sími 28200 Telex 2101
■ Ný hlaupabraut var lögð á íþróttavöllinn í Keflavík fyrir landsmótið, en hér á myndinni sést er verið var að leggja nýtt malbik
á aðhlaupsbrautir á vellinum.
Landmót UMFÍ hefst á morgun:
Keppendur fleiri en
nokkru sinni fyrr
■ Landsmót Ungmennafélags
íslands verður haldið í Keflavík
og Njarðvíkum dagana 12.-15.
þessa mánaðar. Þetta verður
18. landsmótið, en þau eru hald-
in á þriggja ára fresti. Kcppend-
ui á mótinu verða um 1350, eða
fleiri en nokkru sinni fyrr. Þá er
gert ráð fyrir að gestir á mótinu
verði 10-12 þúsund. Áætlaður
kostnaður við framkvæmd
mótsins 2,5-3 milljónir.
Þótt landsmótið hefjist á
morgun, fimmtudag, verður
það ekki sett fyrr en á föstudags-
kvöld. Setningarathöfnin verð-
ur á íþróttarvcllinum í Keflavík
og hefst kl. 20. Flutt verða
ávörp, farið í skrúðgöngu og
sýndir fimleikar og þjóðdansar,
auk annarra skemmtiatriða.
Vináttufélag
íslands og
Frakklands
■ Vináttufélag Frakklands og
íslands var stofnað í ráðhúsi 7.
hverfis Parísarborgar föstudag-
inn 22. júní síðastliðinn. Til
fundarins var boðað af franska
þingmanninum Jean-Pierre
Fourré. og sóttu hann um
80 manns.
Tilgangur hins nýja félags er
m.a. að auka þekkingu á menn-
ingu, sögu og list íslands, auka
samskipti landanna á sviði
menningar og viðskipta og veita
upplýsingar um líf og störf ísl-
ensku þjóðarinnar. Þá var einn-
ig rætt um aö gefa út tímarit um
samskipti landanna, svo og
skipulagningu fslandsviku í
Frakklandi.
Tuttugu manna stjórn og
þriggja manna framkvæmda-
stjórn voru kjörnar á stofnfund-
inum. í framkvæmdastjórninni
eiga sæti þeir Jean-Pierre
Fourré, Marc Duez og Michel
Ricart. Vináttufélagið tekur til
starfa í haust.
Mótinu verður svo slitið við
hát'íðlega athöfn á sunnudags-
kvöld kl. 18.
Á mótinu verður keppt í 11
greinum, allt frá skák upp í
sund. Meðal greinanna má
nefna starfsíþróttir, en þær
skiptast reyndar í sex þætti:
Hestadóma, dráttarvélarakstur,
jurtagreiningu, starfshlaup, línu-
beitingu og loks munu keppend-
ur leggja á borð.
Öll 18 samtökin og hin átta
félög innan UMFÍ senda nú
keppendur á landsmótið, en
það er í fyrsta sinn sem svo er,
að sögn Þórhalls Guðjónssonar,
formanns landsmótsnefndar.
Fjölmennustu liðin koma frá
Borgarfirði (HSK) og Kjalar-
nesþingi (UMSK).
Keppnin á landsmótinu fer
fram á þremur íþróttavöllum í
Keflavík og Njarðvíkum, sem
og í íþróttahúsunum tveimur á
stöðunum. Auk þess verða fjór-
ir skólar undirlagðir fyrir mótið.
Sem fyrr getur er gert ráð
fyrir miklum fjölda gesta á
mótið og verða reistar sérstakar
tjaldbúðir í Njarðvíkum fyrir
þá. Búðunum verður skipt í
þrennt, og verður einn hluti
fyrir keppendurna sjálfa, annar
fyrir fjölskyldufólk og hinn
þriðji fyrir unglinga.
Síðustu vikurnar hefur verið
unnið að endurbótum og við-
gerðum á íþróttamannvirkjun-
um, auk þess sem gengið hefur
verið frá lóðurn, gangstígar
lagðir og bílastæði gerð. Má
nefna að lögð heíur verið ný
hlaupabraut á íþróttavöllinn í
Keflavík og sett upp 25 metra
löng útisundlaug í Njarðvík.
Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir nemur um 12 milljón-
um kr. og skiptist þannig að
Keflavíkurbær greiðir sjö millj-
ónir og Njarðvíkurbær fimm.
Steinþór Júlíusson, bæjarstjóri
í Keflavík, sagði að mikið af
þessum framkvæmdum hefði
verið áætlað að gera á næstu
árum, en þeim verið flýtt vegna
mótsins. Albert K. • Sanders,
bæjarstjóri í Njarðvík, tók í
sama streng, en taldi þó að
kostnaður hefði orðið um tvisv-
ar sinnum meiri, en ef lands-
mótshaldið hefði ekki komið til.
Ánægðir í Staðarhólsá
■ Níu laxar voru komnir á
land eftir hádegið í gær úr
Staðarhólsá og Hvolsá í Saur-
bæ. Veiði við vatnasvæðið
hófst urn mánaðamótin og eru
menn nokkuð ánægðir með
árangurinn, að minnsta kosti
ef mið er tekið af fyrstu dögun-
um í fyrra, en þá hafði nánast
ekkert fengist af laxi þann 10.
júlí.
Rúmlega sextíu laxar voru
farnir í gegnum laxakistuna,
sem er í árósnum og lax hefur
stöðugt verið að ganga undan-
farið. Það sem veiðst hefur
hingað til er frekar vænt, sá
stærsti 15 pund og nokkrir um
10 punda. Allir fiskarnir hafa
fengist á maðk.
Veiðimaður, sem var að
veiðum við árnar í fyrradag,
sagði að mjög mikið af bleikju
væri einnig að ganga.
Mikið af f iski í Laxá í Þing.
Laxá í Aðaldal opnaði 10.
júní og fór veiðin mjög vel af
stað, eins og reyndar hefur
komið fram hér áður. Hún
hefur þó verið frekar dræm
undanfarna daga, sérstaklega
í Æðarfossum og þar fyrir
ofan. Mikið af fiski mun þó
vera um öll svæðin og veiðin er
orðin mörgum sinnum meiri
en á sama tíma í fyrra.
Á Laxamýrarsvæðunum eru
komnir vel á fimmta hundrað
laxar á land á tólf stangir.
Stærsti laxinn hingað til var
tuttugu punda, en hann fékk
Vigfús á Laxamýri á maðk í
Æðarfossunum. Yfirleitt hefur
laxinn verið geysivænn og fall-
eg4y, mikið um 14 punda fiska.
Smálaxinn er að ganga og hef-
ur hann þegar látið nokkuð á
sér kræla.
Lítið hefur rignt í Þingeyjar-
sýslum í suntar og er vatns-
magn í Laxá með minnsta móti
um þessar mundir.
300 upp á Urriðasvæðinu
Urriðasvæðið í Laxárdal
opnaði 1. júní í vor og um
miðjan dag í gær voru komnir
um 300 urriðar á land. Flestir
hafa þeir verið frá 2 upp í 6,5
pund, meðalþyngdin nálægt 5
pundum. Einnig hefur fengið
talsvert af smáfiski, sem veiði-
menn hafa orðið að henda.
Veitt er á 14 stangir á
svæðinu og virðist nóg af fiski
urn það allt. Hann virðist vilj-
ugri til að bíta á agnið hjá
sumum en öðrum, að minnsta
kosti hefur afrakstur veiðanna
verið mjög misjafn.
Vigfús í veiðiþúsinu sagði
að áin væri á uppleið núna eftir
nokkurra ára lægð. I henni
væri eingöngu veitt á flugu og
hafa fengsælustu flugurnar ver-
ið Þingeyingur, Teal and black
og Night Hawk. Vigfús sagði
ennfremur að veiðitölurnar úr
ánni gæfu kannski ekki alveg
rétta mynd af ánni. Júní hefði
nýst afskaplega illa, en í júlí
hefði aftur á móti farið að lifna
yfir henni.
Nýlega er búið að opna 24
herbergja veiðihús við Urriða-
svæðið. Veiðileyfi eru seld á
staðnum.
Mokveiði á Langhóls-
svæðinu
Mokveiði var á Langhólssvæð-
inu í Hvítá fyrstu dagana eftir
að opnað var, 21. júní síðast-
liðinn. Fyrsta hollið, þrjár
stangir í tvo daga, fékk hvorki
meira né minna en 26 laxa.
64% at-
vinnu-
lausra
eru
konur
■ Svo virðist sem at-
vinnuleysi í landinu bitni
nú rnun meira á konum
heldur en áður. Um 64%
atvinnuleysingja í júní
síðastliðnum voru konur,
samanborið við 53% at-
vinnuleysingja í sama
mánuði í fyrra. Talið er að
þetta beri vott um að
þenslan í efnahagslífinu
hafi sérstkalega verið í
hefðbundnum karlagrein-
um, eins og byggingariðn-
aði og verklegum fram-
kvæmdum.
Félagsmálaráðuneytið
hefur áætlað að atvinnu-
leysi í júní hafi verið0,7%
af mannafla á vinnumark-
aði. Þetta er um 0,2%
minna atvinnuleysi heldur
en í maí, en sama atvinnu-
leysi og í júní í fyrra
Atvinnuleysisdagar í
júní voru samtals 18.600,
sem jafngildir því að 860
manns hafi verið á at-
vinnuleysisskrá allan mán-
uðinn. En um l.lOOmanns
voru atvinnulausir í maí.
Atvinnuleysi hefur
minnkað í öllum lands-
hlutum nema á Vestfjörð-
um og á Reykjanesi, þar
sem það hefur aukist örlít-
ið. Atvinnuleysingjarvoru
í júní flestir á höfuð-
borgarsvæðinu, eða 393,
en næstflestir á Akureyri.
eða 199.
Umsjón
Skafti Jónsson
Næsta holl fékk 23 laxa. Síðan
hefur veiðin verið minni, oftast
4 til 6 laxar á dag.
Hátt á annað hundrað laxar
eru komnir á land, sem er
miklu betra en á sama tíma í
fyrra, þó að veiðin þá hafi þótt
viðunandi. Laxinn á Lang-
hólssvæðinu er rígvænn, meðal-
þyngdin 12 til 14 pund og
mikið um 16 til 18 punda fiska.
Sá stærsti, 19 punda, fékkst á
maðk á laugardaginn. Aðal-
lega er veitt á maðk á svæðinu,
en einnig nokkuð á stórar
túbur.
Síðustu fréttir herma að
laxagöngur séu á leið upp
Hvítá og hafa laxabændur
fengið talsvert í netin síðustu
daga þannig að útlitið á Lang-
hólssvæðinu er bjart.