NT - 11.07.1984, Side 26
■ Séð yfír keppnissvæðið í Kefíavík, sem allt verður undirlagt
af landsmótinu um helgina. M»nd víkurfréiiir/Píii Keiiiwn'
Stórmót
Miðvikudagur 11. júlí 1984 26
Enn vesen
hjá Olsen
■ Enn er ekki endan-
lega frá gengið hvort
danski landsliðsmaðurinn
Jesper Olsen muni leika
með Manchester United
næsta keppnistímabil.
Olsen hefur skrifað
undir fjögurra ára samn-
ing hjá United, en for-
ráðamenn Kölm Vestur-
Þýskalandi halda því
fram að hann hafí gert
óformlegt samkomulag
um að leika með því liði.
Vilja þeir frá Olsen til sín
og telja honum skylt að
standa við orð sin. Mál-
inu hefur verið vísað til
nefndar á vegum UEFA
og er gert ráð fyrir að
málið verði tekið fyrir á
næstunni, að því er BBC
sagði í gær.
■ Jesper Olsen
Frá Eiríki Herinannssyni íþróttafréttamanni
NT á Suóurnesjuin.
■ Það hefur örugglega ekki
farið fram hjá neinum íþrótta-
unnanda að 18. landsmót
U.M.F.Í. verður haldið 13.-15.
júlí. Hundruð ungmenna hafa
stundað æfíngar af kappi
undanfarið til þess að koma vel
undirbúin til þessara íslensku
Olympíuleika. En landsmótið
er meira en venjuleg íþrótta-
keppni. Samkvæmt reglugerð
um landsmót skal mótið fara
fram með sem mestum menn-
ingarblæ og félögum gefínn
kostur á að kynna starfsemi
sína á sem víðustum grundvelli.
En víst er að íþróttirnar verða
í brennidepli að venju, enda er
áhuginn mestur á þeim.
Mótið er haldið í Keflavík
og Njarðvík að þessu sinni, í
umsjá UMFK og UMFN. Gert
er ráð fyrir að u.m.b. 1500
keppendur mæti til leiks og
einnig má gera ráð fyrir miklum
fjölda áhorfenda, áhangenda
og annarra gesta. Talið er að
mótsgestir á landsmótinu á
Akureyri hafi verið um 10 þús-
und og á Laugarvatni milli 25
og 30 þúsund. Hvort sem gestir
verða 10 þús. eða 30 þús. þá
munu bæjarbúar Keflavíkur og
Njarðvíkur taka á móti þeim
með þeirri gestrisni og höfðing-
skap sem við Islendingar hrós-
um okkur gjarnan af. Það sem
af er sumri hefur verið unnið
mikið starf við að bæta aðstöðu
til íþróttakeppni og einnig er
gert ráð fyrir víðáttumiklum
tjaldstæðum í Njarðvíkum auk
þeirrar aðstöðu sem tjaldstæð-
um fylgir.
Einstökum félögum verður
úthlutað sérsvæðum á tjald-
stæðunum. Þá geta félögin
fengið afnot af skólastofum í
Myllubakkaskóla eða Njarð-
víícurskóla, sem verður þá n.k.
fundarstaður eða skrifstofa.
Tjaldbúðir keppenda verða við
stórmarkaðinn Samkaup á
bæjarmörkum Keflavíkur og
Njarðvíkur. Fjölskyldubúðir
verða rétt hjá keppendabúðun-
um á nýju tjaldsvæði við sam-
komuhúsið Stapa. Sérstakar
unglingabúðir verða austan
Reykjanesbrautar við hina
nýju og glæsilegu kirkju
Njarðvíkinga. Væntanlega
verða unglingarnir eins og
englar, svo nærri helgidómn-
um.
Það þarf augljóslega mörg
brauð og marga fiska til að
metta allan þann mannfjölda
sem mótið sækir. Landsmóts-
nefnd mun starfrækja mötu-
neyti fyrir keppendur og starfs-
menn í Stapanum. Þar verður
hægt að kaupa mat fyrir alla
dagana á vildarkjörum. Aðrir
gestir verða að sjá um sig sjálfir
■ íþróttasvæðið í Njarðvík.
krafti.
og víst er að nóg verður um
söluskúra. Þeir sem hafa rýmri
fjárhag geta svo Ieitað til veit-
ingahúsanna eftir magafylli.
Auk matsölustaðanna verða
fjölmargar verslanir opnar yfir
mótshelgina, einnig bílaverk-
stæði, hjólbarðaþjónusta og
fleira sem þörf kann að vera á.
Dagskrá mótsins er í stuttu
máli þannig að keppni hefst í
flestum íþróttagreinum eftir
hádegi á föstudag en mótið
verður sett þá um kvöldið með
skrúðgöngu og útisamkomu.
Keppni verður svo framhaldið
á laugardag og sunnudag nán-
ast óslitið. Landsmótinu lýkur
svo á sunudag á hátíðarsam-
komu sem hefst kl. 14.00 en
formlega verður mótinu slitið
kl. 18.00.
Enginn skyldi þó halda að
ekki verði slegið á léttari
strengi. Dansleikir verða
haldnir á vegum mótanefndar
föstudag, laugardag og sunnu-
dag í samkomuhúsinu Stapa
og munu hinir frábæru Miðlar
leika fyrir dansi, en þeir eru
heimsfrægir um öll Suðurnes.
Einnig verða kvöldvökur með
ýmiskonar skemmtiatriðum
föstudags- og laugardags-
kvöld.
Það má því búast við sérlega
Þar verður einnig keppt af fullum
Mynd Víkurféttir/Páll Ketilsson
glæsilegu landsmóti í þetta sinn
eins raunar oft áður. íþrótta-
aðstaðan er hvar sem á er litið
sérlega góð, 3 grasvellir, 2
malarvellir, 2 stór íþróttahús,
2 sundlaugar (önnur fyrir gesti)
og fullkominn frjálsíþrótta-
völlur. Starfsíþróttirnarfáekki
síður góða aðstöðu en segja
má að þær séu séreinkenni
Ungmennafélagsmóta. Einnig
er reiknað með sérstökum sýn-
ingargreinum eða kynningar-
greinum en þær verða: íþróttir
fatlaðra, siglingar og golf, en
þessa helgi mun Meistaramót
Golfklúbbs Suðurnesja standa
yfir á Hólmsvelli í Leiru. Móts-
gestir ættu því að geta fundið
sér eitthvað við sitt hæfi þessa
þrjá sumardaga á Suður-
nesjum. Og þá er líka takmark-
inu náð.
Það er von landsmóts-
nefndar að sem flestir iands-
menn sjái sér fært að sækja
þetta glæsilega mót. Ýmsir
góðir gestir hafa tilkynnt komu
sína og skal þar fyrstan telja
forseta íslands Vigdísi Finn-
bogadóttur, menntamálaráð-
herra Ragnhildi Helgadóttur,
sem flytja munu setningar-
ávörp á föstudagskvöldið, og
heiðursgest mótsins Þorstein
Einarsson fyrrverandi íþrótta-
fulltrúa ríkisins.
Landsliðið
á Kalott
■ Frjálsíþróttasamband
íslands hefur valið landslið
íslands sem taka mun þátt í
Kalott-keppninni 1984.
Keppninn fer fram á Laug-
ardalsvelli 17. og 18. júlí.
Landsliðið verður skipað
eftirtöldum:
Karlar:
100 m:
Þorvaldur Þórsson
Jóhann Jóhannsson
200 m:
Jóhann Jóhannsson
Egill Eiösson
400 m:
Aðalsteinn Bernharösson
Egill Eiösson
800 m:
Jón Diðriksson
Guðmundur Skúlason
1500 m:
Jón Diðriksson
Brynjúlfur Hilmarsson
5000 m:
Garðar Sigurðsson
Magnús Friðbergsson
10000m:
Sigurður P. Sigmundsson
Ágúst Þorsteinsson
1/2 maraþon:
Sigfús Jónsson
Steinar Friögeirsson
Stefán Friðgeirsson
110 m gr:
Þorvaldur Þórsson
I Breiðablik
Afram
BREKKTJ
TAL
MATVÖRUVERSLJUN
Hjailabrekku 2 Kópav s43544
Kópavogi
Kópavogsvelli
íkvöldkl. 20.00 !
Breiðablik
Kópavot
Nýbýlavegi 10
Samlokur
Hamborgarar
o.fl.
;snesti
Sími 42510
Sími 44566
RAFLAGNIR
Gísli Sigurðsson
400 m gr:
Þorvaldur Þórsson
Aðalsteinn Bernharðsson
3000 m h:
Hafsteinn Óskarsson
Gunnar Birgisson
Hástökk:
Unnar Vilhjálmsson
Gunnlaugur Grettisson
Langstökk:
Stefán Þ. Stefánsson
Gísli Sigurðsson
Þrístökk:
Friðrik Þ. Óskarsson
Kári Jónsson
Stangarstökk:
Kristján Gissurason
Gísli Sigurðsson
Kúluvarp:
Eggert Bogason
Helgi Þ. Helgason
Kringlukast:
Eggert Bogason
Helgi Þ. Helgason
Spjótkast:
Unnar Garðarsson
Unnar Vilhjálmsson
Sleggjukast:
Eggert Bogason
Jón H. Magnússon
4x100 m boðhlaup:
Jóhann Jóhannsson
Egill Eiðsson
Stefán Þ. Stefánsson
Þorvaldur Þórsson
4x400 m boðhlaup:
Þorvaldur Þórssoii
Egill Eiðsson
Erlingur Jóhannsson
Aðalsteinn Bernharðsson
Konur
100 m, 200 m:
Oddný Árnadóttir
Svanhildur Kristjónsdóttir
400 m:
Oddný Árnadóttir
Unnur Stefánsdóttir
800 m:
Unnur Stefánsdóttir
Súsanna Helgadóttir
1500 m:
Lillý Viðarsdóttir
Guðrún Eysteinsdóttir
3000 m:
Hildur Björnsdóttir
Elísabet Ólafsdóttir
100 mgr og 400 mgr:
Helga Halldórsdóttir
Valdís Hallgrímsdóttir
Hástökk:
Bryndís Hólm
Þórdis Hrafnkelsdóttir
Langstökk:
Bryndís Hólm
Birgitta Guðjónsdóttir
Kúluvarp:
Soffía Gestsdóttir
Helga Unnarsdóttir
Kringlukast:
Margrét Óskarsdóttir
Helga Unnarsdóttir
Spjótkast:
Birgitta Guðjónsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
4x100 m boðhlaup:
Bryndís Hólm
Oddný Árnadóttir
Eva Sif Heimisdóttir
Svanhildur Kristjónsd.
4x400 m boðhlaup:
Oddný Árnadóttir
Unnur Stefánsdóttir
Helga Halldórsdóttir
Rut Ólafsdóttir
r