NT - 11.07.1984, Side 27
■ Ásgeir Sigurvinsson er enn að fá rósir í hnappagatið, þó
talsvert sé nú síðan keppnistímabilinu í V-Þýskalandi lauk. Nú
valdi Kicker hann annan tveggja leikmanna í heimsklassa, en
úrtakið var allir leikmenn Búndeslígunnar síðastliðið ár.
Ágúst Már Jónsson KR
„Vorkenni
Eyjamönnum“
■ NT náði tali af miðvallar-
leikmanninum lipra Ágústi Má
Jónssyni hjá KR og spurði
hann hvernig honum litist á
dráttinn í Evrópukeppni félags-
liða, UEFA-keppninni. „Éger
virkilega ánægöur" sagði
Ágúst, „það er alltaf gaman að
fá enskt lið sem maður he.ur
fylgst með í sjónvarpi og al'ir
þeir sem fylgjast með ensku
knattspyrnunni þekkja. r.g
held að við höfum verið heppn
ir og ég hlakka til að spila á
móti OPR“ bætti Ágúst við
hress í bragði.
Aðspurður um möguleika
KR-inga sagði Ágúst, „okkar
möguleikar geta ekki talist gíf-
urlegir en við höfunt ávallt
verið með sterka vörn og QPR
er mikið sóknarlið*
Um dráttinn hjá ÍBV og ÍA
sagði Ágúst. „Ég fyllist nú bara
samúð með Vestmannaeying-
um, það er alveg merkilegt
hvað þeir eru alltaf óheppnir."
■ Það væri synd að segja að hann Erhard Wunderlich væri í
kunnuglegri stellingu á þessari mynd sem Ari Ijósmyndari NT tók
á æfingu hjá v-þýska landsliðinu í handknattleik í gærkvöldi.
Handknattleikskapparnir brugðu á leik og léku léttan knattspyrnu-
leik á æfmgunni. I kvöld er það hinsvegar handknattleikurinn sem
gildir, því þá mæta Wunderlich og félagar íslenska landsliðinu, í
Seljaskóla kl. 20.
Miðvikudagur 11. júlí 1984 27
Iþróttir
íþróttablaðið Kicker velur bestu leikmenn Búndeslígunnar:
Ásgeir og Schumacher
á heimsmælikvarða
■ Frá Gísla Á Gunnlaugssyi<i fréttamanni
NT í Y-I'yskalandi:
íþróttablaðið Kicker birti í
fyrradag niðurstöður sínar í
gæðaflokkun á leikmönnum v-
þýsku úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu. Aðeins tveir leik-
menn voru taldir á heimsmæli-
kvarða, Ásgeir okkar Sigur-
vinsson og landsliðsmarkvörð-
urinn þýski hjá FC Köln, Tony
Schumacher. Þetta er mikill
heiður fyrir Asgeir, og sýnir
hvflíkt orð hann hefur getið sér
sem knattspyrnumaður í V-
Þýskalandi.
Þetta er ekki fyrsta rósin í
hnappagat Ásgeirs Sigurvins-
sonar í kjölfar síðasta keppnis-
tímabils, þar sem hann leiddi
lið sitt VFB Stuttgart til meist-
aratitilsins í V-Þýskalandi, en
þann titil hafði Stuttgart ekki
hlotið í 32 ár. Hann fékk fá-
dæma lof fyrir frammistöðu
sína, og sömu helgina og Stutt-
gart varð meistari var hann
valinn af tæplega 200 leik-
mönnum í Búndeslígunni
knattspyrnumaður ársins.
Kicker gerir það á hverju ári
að raða leikmönnum niður í
gæðaflokka. Eru þeir þá scttir
í heimsklassa, þeir sem þar eru
KRfékkQPR
- í UEFA keppninni-ÍA fékk Beveren-Eyjamenn fengu enn austantjaldslið
■ Það má með sanni segja að
Vestmanneyingar séu óheppnir
með mótherja í Evrópukeppn-
um í knattspyrnu. I gær var
dregið í fyrstu umferð Evrópu-
keppnanna og IBV lenti gegn
WBS Krakow frá Póllandi í
Evrópukcppni bikarhafa. Þetta
er í níunda sinn sem Eyjamenn
taka þátt í Evrópukeppni og í
sjötta sinn sem þeir dragast
gegn liði frá Austur-Evrópu.
KR-ingar voru heppnari,
þeir drógust gegn hinu þekkta
liði Oueens Park Rangers frá
Englandi, í UEFA keppninni.
Islands - og bikarmeistarar
Akranes voru líka fremur
heppnir, þeir leika gegn belg-
íska félaginu Beveren í Evrópu-
keppni meistaraliða.
Vestmanneyingar tóku fyrst
þátt í Evrópukeppni 1969, en
árið 1978 léku Eyjamenn gegn
írska liðinu Glentoran og kom-
ust áfram í aðra umferð, en
töpuðu þá fyrir pólska liðinu
Slask.
KR-ingar tóku fyrst þátt í
Evrópukeppni 1964 og léku þá
gegn Liverpool og tóku síðan
þátt í Evrópukeppni á hverju
ári fram að 1970. í UEFA-
keppninni hafa KR-ingar aldrei
tekið þátt.
Skagamenn taka nú þátt í
Evrópukeppni í II. sinn, fyrst
tóku þeir þátt í slíkri keppni
1970. Um frammistöðu lÁ í
Evrópukeppnum er skemmst
að minnast þess aö Evrópu-
meistarar Áberdeen máttu
þakka sínum sæla fyrir að kom-
ast áfram í fyrra, þegar jieii
drógust gcgn ÍA. Árið 1975
komust Skagamenn áfram í
Evrópukeppni, með því að
leggja Omonia frá Kýpur að
velli, en töpuðu síðan fyrir
Dynamo Kiev í 2. umferð.
taldir eiga heima, og í landsliðs-
klassa. Eins og áður sagði var
Ásgeir annar tveggja leik-
manna sem valdir voru í
héimsklassann. Fjöldi leik-
manna var síðan valinn í lands-
liðsklassa, en hvorugur þeirra
Atla Eðvaldssonar og Péturs
Ormslev komst í þann hóp..
í ítarlegri úttekt á valinu,
segir Kicker meðal annars, að
það sé ekki traustvekjandi fyrir
þýska knattspyrnu að einungis
einn útileikmaður skuli vera í
heimsklassa í úrvalsdeildinni,
og hann sé útlendingur. Hins
vegar sé einkennilegt nokk, að
hann komi frá lítilli og fá-
ménnri eldfjallaeyju í Noröur-
höfum, og hann hafi verið
geynrdur á varamannabekkn-
um hjá einu stærsta liði
landsins, Bayern Múnchen í
heilt keppnistímabil.
Blaðið fer fögrum orðum um
Ásgeir. Það segir hann vera
liinn fullkomna stjórnanda
knattspyrnuliðs á leikvelli, og
hvergi sé á honum að finna
veikan blett. Hanrt sé búinn að
sýna hvc frábær hann sé á
vellinum, og framkoma hans
innan og utan vallar sé eins-
dæmi. Hann sé svo hógvær að
það veki athygli, og sé sönn
fyrirmynd allra íþróttamanna.
Knattspyrna
í kvöld:
■ Það verður niikið að
gerast á knattspyrnu-
völlum víðsvegar á land-
inu í kvöld. I fyrstu deild
verða tveir leikir og að
sjálfsögðu báðir mikil-
vægir.
Á Akureyri eigast við
KA og ÍBK. KA-menn
eru nú næstneðstir í 1.
deild (þótt erfítt sé að taia
um neðsta sæti þar sem
ekki munar nema 3
stigum á neðsta liði og
því í þriðja sæti) með 10
stig eins og Valur, UBK
og KR. ÍBK er aftur á
móti eina liðið sem virðist
ætla að hanga í Skaga-
mönnum og veitir þeim
ekki af sigri.
I Kópavogi eigast við
Breiðablik og KR en
bæði þessi lið eru með 10
stig og verma botnsæti
deildarinnar.
Þá er fyrirhugað að
Vestmannaeyingar og
Skagamenn eigist við í 16
liða úrslitum bikarkeppni
KSÍ í kvöld, en þessum leik
hefur verið frestað marg-
sinnis. Þessi lið kepptu til
úrslita í bikarkeppninni í
fyrra. en síðan þá hefur bil-
iö á milli þeirra heldur
breikkað. Skagamenn
efstir í 1. deild en Eyja-
menn um miðja 2. deild.
í annarri deild verða
fjórir leikir. Á Húsavík
mæta heiinamenn Njarð-
víkingum. Á ísafirði spila
ÍBÍ og Skallagrímur.
Tindastóll tekur á móti
FH á heimavelli sínum,
og loks mætast á Vopna-
firði, Einherji og KS.
Einn leikur verður í
A-riðli 3. deildar, efstu
liðin Reynir og Víkingur
O mætast í Sandgerði.
Þá eru þrír leikir í 4.
kemur út 19. júlí n.k.
Lifandi biað fyrir lifandi fólk
Auglýsingar sem birtast eiga í blaðinu, þurfa
að hafa borist auglýsingadeild NT í síðasta
lagi föstudaginn 14. júlí n.k.
Símarnir eru: 18300 - 687648 og 686481
Lifandi blað
AUGLÝSENDUR
ATHUGIÐ!
Fylgirit NT um
Norðurland