NT - 21.07.1984, Blaðsíða 22
FASTEIGNA OG VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Á bygg-
ingastigi
Kársnesbraut
I smíöum. Afhendist í okt. Tilbúið
aö utan fokhelt að innan.
120 fm sérhæð með bílskúr
1.950 þús.
100 fm hæð með bílskúr 1.750
þús.
Fasteignasala -
Leigumiðlun 7.
Símar: 22241-21015
í smíðum
- Réttarsel
parhús samt. um 200 fm. Selst
fokhelt, einangrað með hitalögn
og ofnum.
Fasteignasalan 3.
Hátún
Símar 21870-20998
Atvinnu-
húsnæði
Skrifstofuhúsnæði
5 herb. 112 fm góð skrifstofuhæð
i steinhúsi við Hafnarstræti.
Agnar
Gústafsson 1.
Símar:12600-21750
Höfðabakki
Iðnaöarhúsnæði 260 fm sem
hægt er að skipta í tvo hluta.
Jarðhæð. Tilbúið til afhendingar
1. nóv. Múrað innan og utan.
Fasteignasala -
Leigumiðlun 7.
Símar: 22241-21015____
Óskum eftir
öllum tegundum iðnaðar- og
verslunarhúsnæðis á skrá. Kom-
um samdægurs.verðmetum
Miðborg 9.
Fasteignasala
Símar: 21682-25590
Verslunar-iðnaðarhúsn.
í austurborginni
Ca. 130 fm húsnæði með mann-
gengnu risi. Húsið er búið frysti,
kæli og reykofni.
Fasteigna-
miðstöðin 10.
Símar: 20424-14120
Austurströnd
180 fm atvinnuhúsnæði á 2. hæð
í nýju húsi sem er á góðum stað
á Seltjarnarnesi. Húsnæðið er
því sem næst tilb. undir tréverk.
Hentar vel undir videóleigu,
læknastofur eða skrifstofur. Verð
2.5-2.6 millj.
Austurstræti 23.
Fasteignasala
Símar: 26555-15920
Veitingastaður
Við hjarta borgarinnar einn vin-
sælasti matsölu-og kaffiveitinga-
staðurinn í bænum. Langur opn-
unartími, mikil og hröö velta,
þægileg vinnuaðstaða, upplýs-
ingar aðeins á skrifstofunni.
Miðborg 9.
Fasteignasala
Símar 21682-25590
Vantar
íbúð í háhýsi óskast
höfum fjársterkan kaupanda að
3ja-4ra herb. góðri íbúð í há-
hýsi.
Agnar
Gústafsson 1.
Símar 12600-21750
-Seljendur athugið vegna mikillar
sölu undanfarið vantar allar teg-
undir eigna á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu á skrá.
Ath.: Oft koma eignaskipti til
greina.
Fasteignasaian 3.
Hátún
Símar 21870-20998
Höfum kaupendur:
2. herb. Laugarneshverfi, Heim-
ar, Bústaðahverfi, Hvassaleiti og
Árbæ. 3. herb. í Vesturbæ,
Hlíðum, Laugarneshverfi, Heim-
um og Neðra-Breiðholti. 4. herb.
og sérhæðir í Austurbæ R.víkur
og Kóp.
Fasteignasalan
Anpro 6.
Símar: 39424-687520-687521
Vantar fyrir
trausta kaupendur:
2j herb. íbúð á hæð í vestur-
borginni, Háaleitishv. eða
Fossvogshv. og víðar.
3ja herb. hæð miðsvæðis í
Reykjavík.
Góða 4-5 herg. sérhæð í Kópa-
vogi, vesturbæ.
íbúðir óskast
Hef fjársterka kaupendur að
öllum gerðum fasteigna. Verð-
metum samdægurs.
Eigna- 5.
markaðurinn
Sími26933
Seljendur athugið vegna mikillar
sölu undanfarið vantar allar teg-
undir eigna á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu á skrá.
Ath.: Oft koma eignaskipti til
greina.
Fasteignasaian 3.
Hátún
Símar 21870-20998
Vandaða 2ja herb. íbúö í Kópa-
vogi. Góðar greiðslur fyrir rétta
eign.
4ra herb. íbúð miðsvæðis í borg-
inni fyrir fjársterkan aðila.
Eigna- 5.
markaðurinn
Sími26933
Verslunar-
og iðnaðarhúsnæði
Höfum veriö beðnir að útvega
iðnaöarhúsnæði 150-300 fm,
má vera á 2 hæðum, þarf að vera
nálægt alfararleið. Vestan Ell-
iðaáa, sem næst hjarta borgar-
innar.
Miðborg 9.
Fasteignasala
Sítnar: 21682-25590
Höfum verið beðnir að útvega
130-180 fm skrifstofuhúsnæði
fyrir einn af viðskiptavinum
okkar til kaups eða leigu. Hús-
næði vesta Elliðaár kemur ein-
göngu til greina. Traustir aðilar.
Uppl. á skrifst.
Fjárfesting 16
Sími: 687733
Eftirtaldar eignir óskast
strax
Reykjavík - Breiðholt
1. 3ja herb. Seljahverfi með
bílsk. Má kosta 1,5-1,7 millj.
4ra herb. Bökkunum.
Má kosta 1,8-2 millj.
2ja herb. Hólum.
Má kosta 1,3-1.450 þús.
Reykjavík - miðsvæðis
2. Stóra húseign fyrir verslunar-
félag við Laugaveg, Banka-
stræti, Austurstræti, Hafnar-
stræti eða Hverfisgötu.
Má kosta???
4ra herb. við Háaleitisbraut.
Má kosta 2.3-2.6 millj.
2ja-3ja herb. lúxus-íbúð í
miðborginni m. bílsk. Má
kosta 2,3-2,7 millj.
Reykjavík - Vesturbær
- Seltjarnarnes
3. 4ra herb. á Flyðrugranda m.
bílsk. Má kosta 2,2-2,5 millj.
3ja herb. Boðagranda. Má
kosta 1,6-1,9 millj.
Einbýli Seltjarnarnesi m.
bílsk. Má kosta 4-6 millj.
Sérhæð Melunum m. bílsk.
Má kosta 2,9-3,5 millj.
Húseignin 12.
Fasteignasaia
Sími: 28511
Birkimelur
Gullfalleg íbúð á 4. hæð ásamt aukaherb. í risi. Sameign
öll nýstandsett. Sérlega vönduð eign í sérflokki.
Verð 1900 þús.
Faateignaulan
Armúla 1, 2. haaö.
Sfmar 68 77 33
Kópavogur - Einbýli
Höfum verið beðnir að útvega fyrir mjög fjársterkan
kaupanda 200-300 fm einbýiishús á góöum stað í
Kópavogi. Mjög góðar greiðslur fyrir rétta eign.
Athugið!
Fasteignamiðlun
Opið 13-16 sunnud.
Eignanaust
Opið 13-15 laugard.
Opið 13-15 sunnud.
Markaðsþjónustan
Opið 13-15 sunnud.
Húseignin
Opið 13-17 laugard.
Opið 13-17 sunnud.
Eignamarkaðurinn
Opið 13-16 sunnud.
Húseignir og skip
Opið 13-15 sunnud.
Fasteignasala -
leigumiðlun
Opið 13-15 sunnud. H
Miðborg
Opið 13-18 laugard.
og sunnud. (virka daga 9-21)
Híbýli og Skip
Símsvari
Þingholt
Opið 13-16 sunnud.
Eignaval
Opið 13-15 sunnud.
Eignaþjónustan
Opið 13-15 laugard.
Opið 13-15 sunnud.
Anpro
Opið 13-18 laugard.
Opið 13-18 sunnud.
Fasteignaþjónustan
Opið 13-15 sunnud.
Grund
Opið 13-18 sunnud.
fasteign&salan
eignanaust«£
105 Reykjavík - Sími 29555
Hús og eignir Austurstræti
Opið 14-16 sunnud. Opiö 13-16 sunnud.
Laugardagur 21. júlí 1984
mnmm
22
I
f
■ Agnar Gústafsson rekur málflutnings- og fasteignasölu aö
Eiríksgötu 5 í Reykjavik. NT-mvnd: Róbert.
Dýrar úrbætur
skila sér
aldrei í verði
segir Agnar Gústafsson fasteignasali
■ Agnar Gústafsson er
búinn að vera lengi í fast-
eignabransanum og man
þar tímana tvenna, eins og
hann komst að orði við
blm. NT, er við litum inn
hjá honum á dögunum til
að forvitnast um gang mála.
„Mér finnst vera spurt
meira eftir húsnæði núna
og miðað við árstíma er
eftirspurnin óvenju góð“,
sagði hann. „Þetta er reit-
ingssala og það eru margir
sem spyrja um hvort út-
borganir lækki ekki, en í
reynd hefur það ekki verið.
Maður hefði haldið að þeg-
ar verðbólgan lækkaði
mundi það verða en hing-
að til hefur það ekki gerst“,
sagði Agnar enn fremur.
- Kanntu einhverja skýr-
ingu á því?
„Nei það kann ég nú
ekki, en það virðist sem
fólk trúi því ekki ennþá að
verðbólgan haldist niðri til
langframa. Annars virðist
fólk standa svipað peninga-
lega núna og áður. Það er
helst að ungt fólk eigi í
erfiðleikum með útborgan-
ir.“
Nýtt og gamalt
- Mörgum finnst verð á
eldra húsnæði óeðlilega
hátt, miðað við verð á nýju
húsnæði. Hver er þín
skoðun á því?
„Ég álít að verð á tilbún-
um íbúðum sé síst of hátt
núna miðað við verð á
húsnæði í byggingu. Það er
verið að selja húsnæði til-
búið undir tréverk og það
er dýrara en tilbúnar íbúðir.
Að mínu mati eru tilbúnu
íbúðirnar hagstæðar í verði,
ef við lítum á byggingar-
kostnaðinn. Þarerþaðnátt-
úrlega framboð og eftir-
spurn sem stjórnar verð-
mynduninni.
- Hvaða atriði eru það
sem setja upp verðið á
húsnæði?
„Staðsetningin hefur
auðvitað mjög mikið að
segja, svo og ástand hús-
næðisins og fermetrastærð.
Annars er verðmunur td. á
2 og 3 herbergja íbúð-
um of lítill, það eru dýru
hlutirnir, ss. eldhús og sam-
eign sem setja upp verðið
en lítill verðmunur liggur í
þessu eina herbergi."
- Hvaða staðir eru eftir-
sóttastir af kaupendum?
„Ef um er að ræða góðar
eignir í gamla bænum, þá
eru þær náttúrlega alltaf
eftirsóttar. Fossvogurinn
er sömuleiðis í háu verði og
svo er margt ungt fólk sem
helst vill kaupa gamalt til
að gera upp. Breiðholtið á
sína föstu aðdáendur, fólk
sem vill flytja sig á milli í
hverfinu en eins eru þeir til
sem kaupa þar og vilja kom-
ast sem fyrst burt aftur.“
Mettast markaðurinn?
- Því heyrist stundum
fleygt að markaðurinn hér
hljóti að fara að mettast á
næstu árum. Er eitthvað til
í því?
„Það er náttúrlega
byggt mikið og það hefur
sitt að segja en ég tel
ómöguiegt að spá neinu
marktæku um það hvort
hann mettist á næstu árum.
Það var, að því er ég held,
byggt lítið í fyrra og það
þarf held ég ansi mikið til
að mettunarmörkum verði
náð. Það er t.d. alltaf mikil
eftirspurn eftir 2 her-
bergja- og einstaklingsí-
oúðum.“
- Hvað borgar sig fyrir
fólk að gera fyrir húsnæði,
ef það ætlar að selja.
„Það hefur mjög mikið
að segja að íbúð líti sæmi-
lega út. Að þrífa allt vel og
jafnvel mála skilar sér vel í
verði en það er hæpið að
fara útí dýrar endurbætur.
Eins er um að gera að
lagfæra öll smáatriði sem
geta slegið væntanlega
kaupendur útaf laginu. En
dýrar fjárfestingar skila sér
aldrei og óvíst að þær falli í
smekk væntanlegs kaup-
anda.“