NT - 21.07.1984, Qupperneq 32
Skagaströnd:
Útvarp Kántrí-
bær, góðan dag
■ „Málið er komið í höfn,“ sagði Hallbjörn J. Hjartarson,
kántrísöngvari á Skagaströnd, er hann var spurður að því
hvort leyfí hefði fengist til að starfrækja útvarpsstöð nú um
helgina í tengslum við kántríhátíðina sem þar verður
haldin.Áttu útvarpssendingar að hefjast klukkan 19 í gær.
Upphaflega stóð til að byrja
að senda út frá Kántríbæ á
hádegi í gær, en babb kom í
bátinn er Póst- og símamála-
stjórn neitaði að samþykkja
sendinn sem nota átti. Var talin
hætta á því að sendirinn gæti
truílað önnur fjarskipti á svæð-
inu. Hallbjörn brá því hart við
og útvegaði annan sendi, en
yfirvöld vildu fyrst í stað ekki
heldur leggja blessun sína yfir
notkun hans. „Þeir sögðu að
sendirinn væri óstyrkur í rás og
hlutsendur myndu því alltaf
þurfa að vera að stilla útvarps-
tæki sín,“ sagði Hallbjörn. Að
lokum var ákveðið að tækni-
maður frá Póst- og símamála-
stofnun myndi vera á Skaga-
strönd um helgina og hafa auga
með útsendingum.
Útsendingu mun Ijúka á
sunnudagskvöld, en útvarpað
er í FM steríó. Og að sjálfsögðu
verður aðeins leikin kántrítón-
list.
Akranes:
Ekið á dreng
■ Tólf ára drengur var
fluttur á Sjúkrahúsið á
Akranesi í gærdag eftir að
hafa orðið fyrir bíl á
Skagabraut.
Talið er að einhverjir
hafi orðið vitni að slysinu
og eru þeir beðnir að hafa
samband við lögregluna á
Akranesi.
Drengurinn var á reið-
hjóli er hann lenti framan
á bifreið sem á móti kom.
Við áreksturinn brotn-
aði framrúða bílsins og
flaug drengurinn síðan
-aftur fyrir bílinn og skall í
götuna.
Hann hlaut höfuðá-
verka og lærbrotnaði. að
því er talið var.
Bílstjóri bílsins telur sig
hafa farið framúr annarri
bifreið framan við verslun
Einars Ólafssonar, rétt
áður en slysið varð, og vill
lögreglan biðja þann bíl-
stjóra að hafa samband.
Slysið varð klukkan 3 í
gær.
\
Maður úr Grindavík lætur fylla bfl sinn af ódýra bensíninu í Botnsskálanum um hádegisbilið í gær. Aðrir bíða þolinmóðir eftir afgreiðslu.
NT-mynd G.E.
Enn lækkar bensín
í Botnsskálanum
■ Það er ekki á hverjum degi,
að bensínverð á fslandi lækkar,
og allra síst þegar verðhækkun
er tilkynnt. Samt varð nú raunin
sú um síðustu helgi í Botnsskál-
anum í Hvalfirði, þegar verðið
var lækkað um 70 aura á meðan
það hækkaði um 40 aura annars
staðar á landinu.
Þetta er ekki í fyrsta skipti,
sem verðlækkun verður á bens-
íni í Botnsskálanum. í byrjun
júlí var bað lækkað um 50 aura
og um hvítasunnuna var í gildi
tímabundin lækkun. Núverandi
verðlækkun mun standa út
þennan mánuð til að byrja með.
Jón Pétursson í Botnsskálan-
um sagði í samtali við NT í gær,
að hann gerði þetta m.a. vegna
óánægju með fyrirgreiðslu frá
olíufélögunum, sem að hans
áliti hafa látið sjálfstæða dreif-
endur sitja á hakanum.
„Við fáum 70 aura fyrir hvern
seldan lítra, sem hingað til hefur
ekki dugað fyrir kostnaði, og
við höfum verið að leita eftir
leiðréttingu á því,“ sagði Jón.
Jón sagði, að viðskiptavinirn-
ir kynnu vel að meta verðlækk-
unina og hefði hann orðið var
við töluvert meiri sölu en áður.
í gær kom m.a. að Botnsskálan-
um bifreið úr Grindavík með
hálffullan tank og lét fylla fyrir
langferðina.
En hvernig skyldu olíufélögin
líta á málið?
„Þau tóku þessu afar illa,“
sagði Jón. „Pau hótuðu að loka
á okkur eftir hvítasunnuna, en
þau hafa ekki sýnt nein við-
brögð eftir síðustu lækkun.
Olíufélagið skeljungur á dæl-
urnar við Botnsskáfann og NT
spurði Indriða Pálsson forstjóra
Skeljungs hvað honum fyndist
um verðlækkunina.
„Ég hef ekkert um þetta að
segja,“ sagði Indriði.
Þegar verðlækkunin spurðist
út, linnti ekki símhringingum á
skrifstofu Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda og í gærmorgun
sendi félagið menn upp í Hval-
fjörð til að fá staðfestingu á
lækkuninni. Opinbera verðið er
skráð á dælurnar, en afgreiðslu-
mennirnir endurreikna það með
aðstoð vasareiknivéla.
Rækjuveiðisvæðið fært út:
Rækjuveiði-
svæðið
stækkað
norðanlands
vegna hafíss
■ Svæðið sem rækjuveiði er
leyfð á hefur nú verið stækkað
og var það gert að hluta til
vegna hafíss fyrir Norðurlandi.
Jón B. Jónasson, skrifstofu-
stjóri í Sjávarútvegsráðuneyt-
inu, sagði NT í gærkvöld að
nýja svæðið afmarkaðist af línu
sem dregin væri frá Gjögri að
Kálfshamarsvita.
Jón sagði að menn hefðu
verið sammála um að reyna
þetta svæði, en það hefði ekki
verið veidd rækja þar áður.
Stórir rækjubátar munu geta
haldið áfram veiðum en þeir
minni gætu leitað á Breiða-
fjarðarmið eða út fyrir Snæ-
fellsnes.
Á meðfylgjandi mynd sést
hvar ísinn liggur, en hann er
ekki mjög þéttur á miðunum.
I i I i I i i i i I i -I' i ' i' -i -
A
■ A þessu korti
Veðurstofu íslands
sést dreifíng íss fyrir
norðanverðu land-
*
inu. Isinn hefur nú
þegar truflað rækju-
veiðar. Á innfelldu
myndinni sést hvern-
ig ísinn er flokkaður
eftir þéttleika.
Kort: Veðnrstofa Islunds.
m/to SAMFROSTA 'lS
7.9/lO ÞÉTTUR ÍS
4-6/lO GISINN ÍS
1-3/10 MJOG GISINN is
<j/ÍO ÍSDREIFAR
ÍS i MYNDUN
borgarÍsjaki
000
00
»>:
**
A
Bl:
Saga félagsins
fannst á Lands-
bókasafninu
■ Það rak heldur betur
á fjörurnar hjá Blaða-
mannafélagi Islands á
dögunum þegar tíu
öskjur, fullar af gömlum
fundargerðum og alls kyns
skjölum, fundust í Lands-
bókasafni íslands. Töldu
menn þessa pappíra, sem
sumir eru mikilvæg heim-
ild um sögu félagsins, að
eilífu glataða.
Lúðvík Geirsson,
blaðamaður á Þjóðviljan-
um, rakti slóð skjalanna í
Landsbókasafnið. Hann
sagðist í samtali við NT
hafa frétt fyrir nokkru að
Jón Bjarnason, fyrrum
fréttastjóri á Þjóðviljan-
um, sem eitt sinn var for-
maður BÍ, hefði haft skjöl-
in í sinni vörslu til dauða-
dags, en Jón er dáinn fyrir
allmörgum árum. „Það
vildi þannig til að ég þekki
dótturdóttur Jóns og ég
fór að forvitnast um þetta
hjá henni og hún sagðist
muna eftir einhverjum
pappakössum, sem ætt-
ingjar Jóns hefðu farið
með í handritadeild
Landsbókasafnsins. Þegar
ég fór að athuga málið_
fundust skjölin fljótlega
vel geymd í tíu öskjurn."
„Meðal pappíranna sem
hér um ræðir, er fundar:
gerð frá stofnfundi BÍ
1934. Einnig eru í öskjun-
um félagatöl og ýmislegt
fleira allt aftur til ársins
1956. Þessar heimildir
geta komið að miklu gagni
ef einhven tíma verður
ráðist í að gefa út blaða-
mannatal, sem nokkuð
hefur verið rætt um, og
jafnvel sögu félagsins.