NT - 02.08.1984, Blaðsíða 7
I
k
priojuaogum, timmtudcgum og'lsuo- ardögumkl. 14-16 til 15 sept ok j ! Hásí'
Eden j 4 3V ' 'ri Q - ■ Band; stjórn Nolte
Hveragerði
Fimmtudagmn 26. júlí opnaði Jóna
Rúna Kvaran málverkasýningu í Eden
Hveragerði. Þar eru til sýnis 40 mál-
verk unnin með akrýllitum. Þetta er
fyrsta sýning Jónu Rúnu en hún stend-
urtil 7. ágúst. ekK,..
Gallerí Borg Orðljc
Pósthússtræti 9 leikur
I dag, fimmtudaginn 26. júlí kl. 17, op.o- hn rc
ar frú Ingibjörg Eggerz málverkasýn- br;gð;
ingu í Gallerí Borg við Austurvöll. Ingi- sinn þ
björg sýnir um 20 olíumálverk, flest legas;
unnin á árunum 1955-‘70. Hún lagði Sýnd
stund á listnám í Washington og Bonn Aust Ég fc
og hefur haldið einkasýningar í Vínar-
borg og Bonn og tekið þátt í samsýn-
ingum austan hafs og vestan, m a. i (Natio
alþjóðlegri sýningu i París þar sem Ameri.
hún hlaut viðurkenningu fyrir verk sín. Leikst
Þetta er fyrsta einkasýning Inqibiarqar verk: C
Eg^erz hér á landi og stendur hún til 8. Ein rai
águst. Sýningin er opin frá kl. 10-18 ar um 1
virkadagaog kl. 14 -18umhelgar. skorði.
Einnig eru í Gallerí Borg til sýnis og sínum
sölu grafik, gler, keramik, vefnaður Sýnd í
o.fl. verk eftir ýmsa listamenn. Gallerí Djúpið Bestu (Seetí Bandai
Ólafur Sveinsson myndiistarmadur heldur sýningu á verkum sínum í Djúp-
inu. Þau eru 15 að tölu; ýmist unnin Barry l
með vatnslitum, pastel eða vaxlitum. stjóri: f
Svninqin nefnist ..Snúninaur" oo er Rurt Ri
I.
Ófullnægja manneskjunnar er
aflvaki hennar, það sem dregur
hana áfram, hvetur hana til dáða,
brýnir hana í baráttunni, hún er
undirrót listarinnar. Ef lesandinn
skoðaði hug sinn gæti hann kom-
ist að þeirri niðurstöðu að í
listinni fái hann fullnægingu fyrir
eitthvað sem að öðrum kosti væri
ófullnægt,án hennar væri eins
konar gat á hennar stað í tilver-
unni. Líf mannsins er stríð á
hendur ófullnægjunni, meðan
ekki hefur tekist að uppræta alla
ófullnægju lifir fylgifiskur
hennar, listin.
Listin er nautn. Hún útheimtir
því bæði tíma til að njóta hennar
eða til að læra að njóta hennar og
fjármuni til að greiða fyrir hana.
Að þessu leyti lýtur hún sömu
lögmálum og aðrar nautnir og
ávanalyf. Tökum til dæmis áfengi
og kynlíf, það útheimtir tíma, það
þarf að læra á það og það kostar
peninga. Þess vegna er það í
réttu hlutfalli við tíma og fjár-
muni manneskjunnar hversu vel
henni tekst að fullnægja listþörf
sinni. Sá sem er í mikilli tíma-
þröng og hefur úr litlu að spila á
litla möguleika á að sökkva sér
uppfyrir haus í listnautn. Samfé-
lag sem þjáist af tímaskorti þjáist
að sama skapi af listskorti. Og
fyrst listnautnin útheimtir tíma
og fólkið hefur lítinn tíma, leitast
það við að fullnægja þessari ófull-
Þegar
ófullnægjan
blómstrar
nægðu þörf í einhverju sem lítur
út fyrir að vera sama meðalið, en
er allt miklu auðmeltara og ein-
faldara. Þetta er „afþreyingarlist-
in.“ Fyrirbæri sem ekki glímir
við nein raunveruleg vandamál
og veitir því ekki raunverulega
fullnægingu, heldur pirrar neyt-
andann og platar hann. Sá sem á
í þráföldu tímahraki er auðplat-
aður og borgar meira að segja
stundum stórfé fyrir, og til að
geta sannfært sig um stund að
hann hafi ekki keypt köttinn í
sekknum kaupir hann helgar-
blöðin þar sem listin er einmitt
svo einföld og létt leikandi; þar
sem afþreyingarlistin ræður ríkj-
um því „almenningur" hefur ekki
tíma fyrir raunverulega listnautn
og sem verra er, ef hann hefði
tíma þá eru listamennirnir búnir
„að slá í gegn“ í afþreyingunni og
enginn eftir sem má lengur vera
að því að búa til „alvöru list“ sem
raunverulega fullnægir bæði
skapara og skoðanda. Þannig
leiðir þetta hvað af öðru. I
þessari einkennilegu spennb
treyju er íslenskt listalíf í dag. í
hverri viku hafa dagblöð og tíma-
rit viðtöl við „listamennina" sem
hafa runnið á rassinn inní afþrey-
inguna, sumir renna oft á ári
innum þessar stærstu dyr afþrey-
ingarinnar, dagblöðin, á nýjan
og,nýjan hátt.
I íslensku menningarlífi hefur
það gleymst æ oftar uppá síðkast-
■ Úr litla galleríi dag-
blaðanna, „frettatilkynn-
ingunum“, sem listamenn
senda frá sér. í þeim er
oftast að finna Ijóðrænar
sjálfslýsingar og hnyttnar
staðreyndir. Flestir les-
endur dagblaða fylgjast
með því sem er „að
gerast“ í íslensku mynd-
listark'fi eingöngu í gegn-
um samsýningarnar (sem
að vísu eru opnar öllum) í
þessu „litla galleríi“ dag-
blaðanna.
■ Úr stóra galleríi dag-
blaðanna, „listkynningun-
um.“ Dagblöðin; skilgetið
afkvæmi tímahraks, „af-
þreyingar“ og neyslu-
hyggju, það eru sýning-
arnar í þessu galleríi einn-
ig. Það stórkostlega við
þessi „gallerí“ dagblað-
anna er, að allir sem ná-
lægt þeim koma græða;
þ.e.a.s. „almenningur“
setur sýningarnar upp í
eigin galleríum og kaupir
þær svo aftur sjálfur.
ið að þegar menn hafa runnið á
rassinn oní gröfina bíður þeirra
eilíf afþreying. Hérna megin er
það hin heiðarlega list sem hjálp-
ar til við að leysa vandamál
þessarar tilveru, sú eina sem
raunverulega getur fullnægt list-
þörfinni. (og veitir því um leið
raunverulega afþreyingu.) Fyrir
handan eru önnur vandamál. -
Og hvar er svo þessi „heiðarlega
list“ niður komin? Að hefja leit-
ina er upphafið að alvöru lista-
nautn, að gleypa listapopp dag-
blaða og tímarita hrátt er hins
vegar að skemmta skrattanum í
sjálfum sér.
II.
Fyrir síðustu helgi tilkynntu 18
staðir um að þeir hefðu eitthvað
til sýnis. (Þar af fimm utan
Reykjavíkur.) Sex staðanna voru
Galleríbúðir sem einbeita sér að
sölulist á viðráðanlegu verði,
fjórir staðirnir voru veitingahús
sem hafa á boðstólum dinner-
list, oft ásamt ýmsum öðrum
uppákomum til að hjálpa veiting-
unum niður í gestina, þrír stað-
irnir voru söfn kringum verk
þriggja af gömlu íslensku meist-
urunum, Einar, Ásmund og
Ásgrím, tveir voru bókasöfn,
einn banki en þrír staðanna voru
leigðir út „fyrir fólkið listarinnar
vegna“.
Vegna smæðar þjóðarinnar er
sú óvenjulega leið opin til að
skoða myndlistarlífið, þ.e.a.s.
sú að skoða allar sýningarnar í
landinu. Er þá hægt að meta
útkomu hverrar viku í fjölda
verka, stærð, þyngd, litum,
verði, viðfangsefni o.s.frv. og
með því að útbúa línurit yfir
niðurstöður má þannig fylgjast
með ástandinu í myndlistinni frá
einni viku til annarrar. Einnig
má kanna fjölda seldra verka
miðað við framboð og fá þannig
upplýsingar um almenna vel-
megun og kaupgetu, $íðan má
kanna aldur, menntun, atvinnu
o.s.frv. sýningargesta og fá þar
athyglisverðar upplýsingar, og
þannig má taka allt listalífið í
gegn. Ef það yrði gert kæmi í ljós
að myndlistalífið í landinu væri í
vexti og raunar að allt sköpunar-
starf blómstraði í auknum mæli.
En „almenningur" fer yfirleitt
ekki á neina staði til að skoða
myndlist, heldur sækir galleríin
sem hann rekur sjálfur fram í
gang eða útí sjoppu. Dagblöðin.
Til að fylgjast með því sem er „að
gerast" er nægilegt fyrir almenn-
ing að fara í „litla gallerí" dag-
blaðanna, „fréttatilkynningar";
þessar litlu og Ijóðrænu sjálfslýs-
ingar og hnyttnu staðreyndir sem
listamenn senda frá sér. „Fyrsta
sýning hérlendis." „Málar undir
sterkum andlegum áhrifum.“
„Myndirnar eru til sölu á við-
ráðanlegu verði.“ „Hefur tekið
þátt í mörgum sýningum bæði
hér heima og erlendis." Með
þessu vill safnið gefa sýningunni
ákveðið fræðandi gildi, auk þess
sem listunnendur geta notið feg-
urðar verkanna." „Þar getur að
líta um 20 myndir unnar með
vatns- og vaxlitum (blönduð
tækni)“. „Á þessum stað er allt
lagt uppúr að segja sem mest á
sem einfaldastan og snjallastan
hátt og ef listamönnum vefst
tunga um tönn í pistlum sínum
snara blaðamenn öllu í stílinn,
þjappa saman, meitla, fága. Út-
koman er svo aktívasta gallerí
landsins, gallerí almennings, og
er þannig úr garði gert að þú
getur ekki keypt eitt verk á
sýningunni heldur verðurðu að
kaupa þau öll um leiö og blaðið.
En „almenningur" starfrækir
annað gallerí í blöðum sínum,
„hið stóra". Þar er andinn allt
annar en í því litla, miklu opnari,
enginn skortur á rými og allt
þannig útbúið að andinn geti
flogið um óheftur og leikið sér.
„Listkynningarnar." Vikulega,
og einnig um þá helgi sem nú er
framundan, er stór sýning á
einhverjum listamanni í dag-
blöðunum. Þar er mynd af hon-
um sjálfum ásamt völdum
verkum, þar opnar hann hug
sinn, gefur almenningi innsýn
inní hugarheim sinn, og til að
draga allt niður á „sammannlega
planið", þá segir hann dálítið frá
syndum sínum eða fyrri erfið-
leikum. Og svo elskar almenn-
ingur listiiia, að stór hluti blaða
hans er um hverja helgi lagður
undirsýningar. Fjörugarsamsýn-
ingar (sem allir geta tekið þátt í)
í „fréttatilkynningunum", en
vandaðar einkasýningar „úrvals"
listamanna í „listkynningunum“.
Og það stórkostlega er, að þetta
eru einu gallerí landsins þar sem
allir sem nálægt koma græða.
Þ.e.a.s. almenningur sér um að
setja sýningarnar upp og kaupir
þær svo aftur sjálfur.
Hannes Lárusson skrifar um myndlist
GOODWYEAR
GEFUR 0'RÉTTA GRIPIÐ
Heíuröu gert þér grein íyrir því aö milli bíls og
vegar eru aöeins íjórir lóíastórir íletir. Aktu því
aöeins á viöurkenndum hjólböröum.
Sértu aö hugsa um nýja
sumarhjólbaröa á íólks-
bílinn œttiröu aö haía
samband viö nœsta
umboösmann okkar.
HUGSIÐ UM
EIGID ÖRYGGI
OG ANNARRA
FULLKOMIN HJOLBARÐAPJONUSTA
TÖLVUSTÝRÐ JAFNVÆGISSTILLING
GOODýVEAR