NT - 09.11.1984, Blaðsíða 4

NT - 09.11.1984, Blaðsíða 4
_ ITÍ7 Föstudagur 9. nóvember 1984 4 _ LlU Fréttir Vesturland: Revíuleikhúsið í Hafnarfirði: Barnaleikritið Litli Kláus og Stóri Kláus ■ Revíuleikhúsið frumsýndi barnaleikritið Litli Kláus og Stóri Kláus eftir H.C. Andersen í Bæjarbíói í Hafnarfirði í Ríkissáttasemjari: Býdurtil veislu ■ Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari, varð 60 ára þann 13. október síðastliðinn. í tilefni afmælisins hefur hann ákveðið að taka á móti gestum í veitingahúsinu Hrafninum að Skipholti 37 kl. 16-19 á sunnu- dag 11. nóvember, sjálfan vopnahlésdaginn. gær við góðar undirtekt- ir. Með helstu hlutverk fara Júlíus Brjánsson, Þórir Steingrímsson, Guðrún Alfreðsdóttir, Margrét Ákadóttir, Sól- veig Pálsdóttir, Guðrún Þórðardóttir, Bjarni Ing- varsson og Ólafur Örn Thoroddsen. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir. Baldvin Björnsson sér um leikmynd. Jón Ólafs- son annast tónlist og leiktextar eru gerðir af Karli Ágústi Úlfssyni. Uppselt á Megas! ■ Magnús Þór Jónsson, alias Megas, er með sína fyrstu opinberu tónleika, eftir margra ára hlé frá sviðsljósinu, í Austurbæjarbíói í kvöld og er þegar uppselt á þá. Enn er ekki vitað hvort sjóið verður endurtekið, en Ijóst er að það verður ekki þessa helgina. 11 bjargað úr brennandi húsi í samæfingu björgunarsveitanna menn, sem höfðu verið á 10 daga námskeiði í björgun úr sjó í Skotlandi. Loks var haldið erindi um skyndihjálp. Guðmundur Finnsson, um- dæmisstjóri SVFÍ á Vestur- landi, sagði í lok samæfingar- innar, að hann væri mjög ánægður með framkvæmd hennar, sem var undir stjórn björgunarsveitanna Oks og Heiðars. Taldi Guðmundur, að æfing sem þessi væri starfi Slysavarnafélagsins til fram- dráttar. Alls tóku um 100 manns frá björgunarsveitunum 12 þátt í samæfingunni og auk Guð- mundar Finnssonar stjórnuðu henni þeir Þorvaldur Jónsson og Sigurjón Valdimarsson. ■ Guðmundur Finnsson og Þorvaldur Jónsson, framkvæmda- stjórar samæfíngar björgunarsveitanna á Vesturlandi. NT-myndir: Magnús Magnússon Um þrjú hundruð hross réttuð í Laufskálarétt ■ Þórir Steingrímsson (Stóri Kláus) og Júlíus Brjánsson (Litli Kláus) fara með aðalhlutverkin í uppsetningu Revíuleikhússins á þessu þekkta verki H.C. Andersen. nt mynd: Svcmr. Frá Magnúsi Magnússyni í Birkihlíð, fréttaríl- ara NT í Borgarfirði: II Tólf björgunarsveitir á Vesturlandi, frá Hvalfjarðarbotni til Gilsfjarðar, komu til samæf- ingar að Varmalandi í Borgar- firði dagana 2. og 3. nóvember sl. Eitt aðal verkefni æfingarinn- ar var björgun úr húsi, þar sem orðið hafði gassprenging. í hús- inu voru 11 manns og tókst að bjarga þeim út og koma í læknishendur. Þá voru einnig æfingar í köfun og fóru þær fram í sundlauginni á Varmalandi og sýndur var búnaður báta. Einnig var kennd fjallamennska og sjúkraflutn- ingar voru sýndir og kenndir. Erindi voru flutt um fjar- skiptamál og einnig um sjó- björgun. Um það fjölluðu fjórir Frá Emi Þórarínssyni, fréttarítara NT í Skagafiröi: ■ Laufskálarétt í Skagafirði var haldin fyrir nokkru, en þá voru réttuð hross sem ganga í Kolbeinsdal og íbúar í Hóla- og Viðvíkurhreppum eiga. Að þessu sinni komu í rétt um 315 hross veturgömul og eldri og til Leiðrétting Þau mistök urðu í frétt á bak- síðu NT í gær að fyrirtæki Jóns Magnússonar að Funahöfða 8 var sagt heita Áferð. Það er ekki rétt. Fyrirtækið heitir Borgarsprautun-bílamálun og er hlutaðeigandi beðinn velvirð- ingar á mistökunum. viðbótar allmörg folöld. Þess skal getið að leyfilegt var að .rétta 360 hross í Kolbeinsdal í vor, en ekki nýttu allir bændur sér heimild til upprekstrar. Prýðisgott veður var meðan stóðréttin stóð yfir og dreif að mikinn mannfjölda til að fylgj- ast með því sem fram fór. Voru þar Skagfirðingar í miklum meirihluta en einnig var þar talsvert um fólk úr öðrum hér- uðum og jafnvel af Suðurlandi. Til að mynda kom rúta full af fólki sunnan úr Árnessýslu. Fréttaritari NT brá sér í rétt- ina og tók nokkrar myndir til að lesendur gætu séð nokkuð af þeirri stemmningu sem ávallt fylgir hrossarétt í Skagafirði. ■ Björgunarsveitafélagar æfa sig í sprangi í klettunum fyrír ofan Varmaland. Brautskráning kandídata frá Háskóla islands ■ Afhending próf- skírteina til kandídata fer fram við athöfn í Háskólabíói laugardag- inn 10. nóvember kl. 14. Rektor háskólans, prófessor dr. Guð- mundur Magnússon, ávarpar kandídata en síðan afhenda deildar- forsetar prófskírteini. Að lokum syngur Há- skólakórinn nokkur lög undir stjórn Árna Harðarsonar. Að þessu sinni verða brautskráðir 85 kand-, ídatar og skiptast þeir þannig: Embættispróf í guðfræði 4, í læknis- fræði 1, aðstoðarlyfja- fræðingspróf 1, B.S.- próf í hjúkrunarfræði 3, B.S.-próf í sjúkra- þjálfun 1, embættispróf í lögfræði 2, kand- idatspróf í íslensku 1, í sagnfræði 2, í ensku 1, B.A.-próf í heimspeki- deild 11, lokapróf í raf- magnsverkfræði 2, B.S.-próf í raungrein- um 16, kandídatspróf í viðskiptafræðum 29, kandídatspróf í tann- lækningum 1, B.A.- próf í félagsvísinda- deild 10.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.