NT - 09.11.1984, Blaðsíða 16

NT - 09.11.1984, Blaðsíða 16
■ í sýningunni á Carmen taka þátt á annað hundrað manns með hljómsveitinni, þar af 15 börn sem setja skemmtilegan svip á sýninguna með galsa og glaðværð. Islenska óperan: Carmen tvisvar um helgina ■ íslenskaóperansýniróper- una Carmen eftir Bizet tvisvar um helgina, á föstudags- og sunnudagskvöld, bæði skiptin kl. 20.00 og er uppselt á báðar sýningarnar. Föstudagssýning- in er sú þriðja, en frumsýning var 2. þ.m. við feikigóðar undirtektir. í aðalhlutverkum eru Sigríður Ella Magnúsdótt- ir, Garðar Cortes, Simon Vaughan og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Óperan fjallar um tvo ólíka heima og barátt- una þeirra á milli, um sígauna- stúikuna Carmen sem kýs fremur að láta líf sitt en að fórna frelsinu. Blómarósirá Flateyri ■ Leikfélag Flateyrar frum- sýnir leikritið „Blómarósir" eftir Ólaf Hauk Símonarson í Félagsheimilinu á Flateyri, laugardaginn 10. nóvemberkl. 21. Leikstjóri er Jón Júlíusson. Onnur sýning verður á sunnu- dag. Leikfélagið áætlar að sýna „Blómarósir" víðs vegar um Vestfirði. Alþýðuleikhúsið að Kjarvalsstöðum ■ Beisk tár Petru von Kant eftir Fassbinder verður sýnt að Kjarvalsstöðum föstudags- kvöld kl. 20.30, laugardag og sunnudag kl. 16.00 og kl. 20.30 á mánudagskvöld. Þetta er önnur sýningarhelgin. „Spenntir gikkir“ á Akranesi ■ Skagaleikflokkurinn á Akranesi hefur sýnt „Spennta gikki“ við góða aðsókn. Hús- fyllir var á frumsýningu og leikstjóranum, Guðrúnu Ás- mundsdóttur, Jónasi Árnasyni - sem samdi söngtexta og öðrum þátttakendum sýning- arinnar var vel fagnað. Næstu sýningar verða föstudag 9. nóvember kl. 20.30, sunnudag 11. nóv. kl. 14.30, mánudags- og þriðjudagckvöld kl. 20.30 í Bíóhöllinni. Ellilífeyrisþegar fá afslátt á sunnudagssýning- unni. Föstudagur 9. nóvember 1984 1 6 ■ Ævintýralegir búningar og grímur setja svip á leiksýningu Nemendaleikhússins. NT-raynd: Sverrir Grænfjöðrungur í Lindarbæ ■ Nemendaleikhúsið sýnir Grænfjöðrung í Lindarbæ föstudaginn 9. nóvember, sunnudaginn 11. nóvember og mánudaginn 12. nóvember kl. 20.00 öll kvöldin. Grænfjöðrungur er ævin- týralegur skopleikur eftir Carlo Gozzi í leikgerð Benno Besson, í þýðingu Karls Guðmundssonar. Leikstjóri er Haukur J. Gunnarsson. Fundir 15. ársfundur Menningar- og fræðslusam- bands alþýðu ■ í dag, föstud. 9. nóv. verð- ur haldinn 15. ársfundur Menningar- og fræðslusam- bands alþýðu. Ársfundurinn verður í Hreyfilssalnum við Fellsmúla og hefst kl. 14.00. Á ársfundinum mun Helgi Guðmundsson, formaður MFA flytja skýrslu um starf MFA, Sigfinnur Sigurðsson gjaldkeri skýrir reikninga og Ingjaldur Hannibalsson, for- stjóri Iðntæknistofnunar íslands, mun flytja erindi um tækniþróun og atvinnulífið, sem er höfuðefni ársfundarins að þessu sinni. Að loknu erind- inu verða almennar umræður. Til ársfundar MFA eru boð- aðir fulltrúar frá samböndum og verkalýðsfélögum innan ASÍ, samtökum og stofnunum, sem MFA á samstarf við, auk sambandsstjórnar Alþýðu- sambands fslands. Ráðstefna um kaupskip - á vegum Det norske Veritas ■ Laugardaginn 10. nóv. verður haldin á Hótel Sögu eins dags ráðstefna á vegum Det norske Veritas á íslandi. Umræðuefnið verður flokkun- arféiagsmál skipa og rekstur farmskipa. Tveir af sérfræð- ingum Det norske Veritas í Oslo, Jan Telle yfirverkfræð- ingur og Ola Ramton, forstjóri skipaeftirlitsdeildar, koma til landsins og flytja erindi. Inn- gangsorð og kynningu flytur Agnar Erlingsson yfirverk- fræðingur Det norske Veritas á íslandi. Einnig verða um- ■ Gunnar Björnsson og David Knowles Tónleikar Gunnars Björnssonar og David Knowles á Egilsstöðum Tónlist Rokkbræður í Klúbbnum ■ Um síðustu helgi tróðu upp í Klúbbnum skemmti- kraftarnir „Rokkbræður“ en það eru þeir Stefán Jónsson, forsprakki Lúdó-sextettsins, Þorsteinn Eggertsson teiknari og textahöfundur, (sem Danir kölluðu Den islandske Presl- ey) og Garðar Guðmundsson, sem stundum hefur verið kall- aður íslenskur Ciiff Richard. Þeir syngja lög frá upphafsár- um rokksins. Þeir munu koma fram í klúbbnum um helgar út þennan mánuð. Klúbburinn er nú starfrækt- ur á fjórum hæðum. í kjallar- anum leikur Sigfús E. á raf- magnspíanó og á miðhæðun- um eru diskótek. Á efstu hæð- inni er svo komin ný hljóm- sveit, er nefnist Babadú. Rokkbræður koma næst fram í Klúbbnum upp úr mið- nætti á föstudagskvöldið. ■ Rokkbræður ■ Laugardaginn 10. nóvem- ber kl. 17.00 halda Gunnar Björnsson og David Knowles tónleika í Valaskjálf á Egils- stöðum. Á efnisskránni eru eftirtalin verk: Samstæða fyrir einsamla knéfiðlu nr. 3 í C-dúr, Sónasta fyrir píanó og selló nr. 2 í g-moll eftir Beethoven og Sónata Arpegg- ione í a-moll eftir Franz Schubert. Auk þess er á efn- isskránni íslenskt tónverk, „Úr dagbók hafmeyjunnar“ fyrir selló og píanó eftir Sigurð Egil Garðarsson, sem samið er í sept. 1978 og frumflutt af Gunnari Björnssyni og Sigríði Ragnarsdóttur á ísafirði sama haust. David Knowles fæddist 1958 í Bath í Somerset á Englandi. Hann hóf ungur nám í píanó- leik en lagði síðar stund á meðleik sem aðalnámsgrein og harpsíkordleik sem aukagrein. Knowles brautskráðist frá Royal Northern College of Music í Manchester árið 1980 og vann til tveggja verðlauna. Hann réðist 1982 til Tónlistar- skóla Fljótsdalshéraðs, þar sem hann hefur starfað síðan sem kennari og kirkjuorgan- isti. David Knowles kom fram á Listahátíð í Reykjavík á liðnu sumri. Gunnar Björnsson fæddist í Reykjavík 1944. Hann nam sellóleik hjá dr. Heinz Edelste- in og Einari Vigfússyni og lauk einleiksprófi frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík árið 1967. Hann hefur stundað fram- haldsnám við Franz Liszt-tón- listarháskólann í Weimar á sumarnámskeiðum. Hann hef- ur haldið tónleika víða um land og í Reykjavík. Ferðalðg „Haustblót“ Útivistar á Snæfellsnesi ■ Nú um helgina heldur Útivist haustblót á Snæfells- nesi til heiðurs Hallgrími Jón- assyni, rithöfundi og ferða- garpi, en Hallgrímur varð ní- ræður 30. október síðastliðinn. Lagt verður af stað kl. 20.00 á föstudagskvöld og gist verður að Lýsuhóli. Sunnudaginn 11. nóvember kl. 13.00 verður dagsganga að Staðarborg á Vatnsleysu- strönd. Útivist Dagsferð Ferðafélags islands ■ Sunnudaginn 11. nóvem- ber kl. 13 fer Ferðafélag ís- lands í dagsferð á Vífilsfell (656m). í góðu skyggni er mjög gott útsýni af Vífilsfelli. Gangan á fellið er auðveld. Brottför veðrur frá Umferðar- miðstöðinni, austanmegin. Farmiðar seldir við bílinn. ræður eftir flutning erindanna. Ráðstefnan hefst kl. 10 og lýkur væntanlega um kl. 17. Det norske Veritas er eitt af fimm stærstu skipaflokkunarfé- lögum heims, stofnað árið 1864 í Osló. Fundur í Kvenna- deild Barðstrend- ingafélagsins ■ Kvennadeild Barðstrend- ingafélagsins verður með fund í Safnaðarheimili Bústaða- kirkju þriðjudaginn 13. nóv- ember kl. 20.30. Basar Húnvetninga- félagið heldur basar ■ Sunnud. 11. nóvember kl. 14.00 efnir Húnvetningafélag- ið í Reykjavík til basars og kaffisölu í Domus Medica. Félagsmenn eru vinsamlega beðnir að gefa kökur og muni á basarinn. Tekið verðUr á móti gjöfum í Domus Medica frá kl. 10 sama dag. Hittumst í Domus Medica og fáum okkur kaffi og kökur. Allar upplýs- ingar veita: Guðrún 36137, Brynhildur 75211, Lára 33803 og Halldóra 23088.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.