NT - 09.11.1984, Blaðsíða 9

NT - 09.11.1984, Blaðsíða 9
 (TÍ7 Föstudagur 9. nóvember 1984 9 LlL Neytendasíðan ■ Bilaðar vatnsæðar eru ekki óalgengar í Reykjavík, þótt ekki myndist alltaf jafn myndarlegur gosbrunnur og á þessari mynd. Undanfarið hefur verið kalt í Fossvoginum vegna bilana í stofnlögnum Hitaveitunnar þar. Hitaveita Reykjavíkur: Bilanirekkibættar Hvers konar þjónusta er þetta eiginlega? - siíkar kröfur þó athugaðar ■ Hitaveita Reykjavíkur sér ekki ástæðu til að lækka hita- veitureikninga borgarbúa, sem verða fyrir óþægindum og jafn- vel beinu peningatapi vegna bil- ana í hitaveitukerfinu. Að undanförnu hafa íbúar í Fossvogshverfi í Reykjavík mátt þola býsna lágt hitastig í húsum sínum. Astæðan mun hafa verið bilun eða bilanir í stofnleiðslum. Gunnar Kristinsson hjá Hita- veitu Reykjavíkur sagði að þetta gerðist svo oft að varla ■ í þá góðu gömlu daga var tíl bensínsjálfsali á Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík. Sífelld skemmdarverkastarfsemi varð honum að aldurtila. H Hvernig í ósköpunum stendur á því að ekki er hægt að kaupa sér far með strætisvagni í Reykjavík án þess að eiga sérstaka miða eða þá að eiga fyrir farinu upp á krónu. Þú stígur um borð í strætisvagn og tínir upp úr vösunum 13 krónur og 75 aura í klinki. Það er ekki nóg og þú ferð í seðlavesk- ið. Þar er því miður ekki að finna neitt smærra en fímmtíukall. Þú verður annað hvort að fóma fímmtíukall- inum eða labba! Sveinn Bjömsson, forstjóri SVR Þú sérð það í hendi þér að ef maður þyrfti að standa þvf að skipta fyrir þriðjung eða fjórðung farþega, þá mundi það valda alvegfeikilegum töfum. Allarokkartímaáætlanir eru miðaðar við það að þetta gangi mjög fljótt oggreiðlega fyrir sig. Ástæðan fyrir þessu er því fyrst og fremst tímasparnaður. - Þetta er nú samt gert erlendis. Ja, ég get nú sagt þér að t.d. úti í Osló er staðgreiðslu- gjaldið núna 9 kr. norskar og þeir hafa vfsvitandi spennt það upp úr öllu valdi, því þeir vilja umfram allt losna við þessi staðgreiðslu viðskipti. væri unnt að fylgjast með því. Gunnar kvað stofnleiðslurnar þarna orðnar mjög lélegar og væru þær sífellt að bila. Nú stæði því til að taka þetta allt í gegn og skipta um þær meira eða minna á næsta ári. Gunnar viðurkenndi að með- an á viðgerðum stæði gæti fólk orðið fyrir beinu peningatapi, þar eð kaldara vatn streymdi þá inn í gegnum hitaveitumæla. Hann kvað þó fyrirtækið ekki hafa séð ástæðu til að lækka hitaveitureikninga hjá fólki sem yrði fyrir bilunum. Gunnar sagði þó að ef fólk kæmi af eigin frumkvæði og krefðist afsláttar vegna bilana, yrðu slík mál tekin til athugun- ar. Fiskur er ódýr og fjölbreyttur matur Fiskkynning á Seltjarnarnesi ■ Pað eru ekki ýkja mörg ár síðan þeir íslendingar voru auð- veldlega teljandi, sem þekktu dæmi þess að fiskur væri öðru vísi fram borinn en soðinn eða steiktur. Á síðari árum hefur þetta breyst verulega og ýmiss konar gómsætir fiskréttir verða nú æ algengari bæði á veitinga- húsum og eldhúsborðinu heima. Úrval meira og minna tilbú- inna fiskrétta hefur líka farið sívaxandi í verslunum og þeim tegundum hefur fjölgað að mun sem landinn þorir að leggja sér til munns. Ein þeirra verslana sem lagt hafa áherslu á að hafa jafnan á boðstólum fjölbreytilegt úrval fiskjar í ýmsum myndum, er hið rúmlega ársgamla útibú Vöru- markaðarins á Seltjarnarnesi. Á sunnudag og mánudag verður þar haldin sérstök fisk- hátíð að því er segir í fréttatil- kynningu frá Vörumarkaðnum. „Útbúið verður 18 metra langt afgreiðsluborð, sem verður troðfullt af fiski í öllum stærðum og gerðum og tilbúnum fiskrétt- um ýmiss konar,“ segir enn- fremur í fréttatilkynningunni. Tilgangur fiskhátíðarinnar er sagður annars vegar að kynna fyrir fólki hversu mikið úrval af fiski og fiskafurðum er til á markaðnum, en hins vegar að gera grein fyrir þeim mögu- leikum sem bjóðast í matreiðslu þessara afurða, jafnt hversdags sem til hátíðabrigða. ■ Fiskúrvalið í Vörumarkaðnum á Seltjarnarnesi. Sjálfsögð þjónusta í útlöndum óþekkt hér: Bensínsjálfsali hvað er nú það? ■ Pað hefur um langan aldur verið nokkurt vandamál ís- lenskra nátthrafna, að erfitt eða nánast ómögulegt er að fá ben- sín að næturlagi. í Reykjavík loka bensínstöðvar almennt kl. 9.15 en eftir það er að vísu hægt að fá bensín á Umferðarmið- stöðinni fram til kl. eitt og allt til kl. tvö á föstudags- og laugar- dagskvöldum. Víða annars staðar á landinu er ástandið enn verra. Eins og mörgum þeim íslend- ingum er kunnugt sem ferðast hafa erlendis stafar þessi nætur- lokun tæpast af neinni nauðsyn. Það er nefnilega löngu búið að finna upp sjálfsala sem gleypa sjálfkrafa seðlana úr veski ferðalangsins og láta í té bensín í staðinn. Með tilkomu krítarkorta jókst þessi þjónusta enn nokkuð og má nú víða erlendis sjá sjálfsala sem veita slíkum kort- um viðtöku. Þessi nætursala á bensíni þyk- ir sjálfsögð þjónusta í ýmsum löndum og má nefna sem dæmi að á Norðurlöndum eru bensín- sjálfsalar á hartnær hverri ben- sínstöð og jafnvel má nú orðið finna ómannaðar bensínstöðv- ar. Þótt bensínsjálfsalar þyki þannig fyrir löngu sjálfsögð þjónusta í mörgum löndum, er éngu líkara en hérlendum dreif- ingaraðilum hafi ekki dottið í hug að til kynni að vera fólk hérlendis sem gæti haft áhuga fyrir bensínkaupum á náttar- þeli. Það er út af fyrir sig athyglisvert að ekkert olíufélag- anna þriggja skuli hafa gripið til þessa ráðs í samkeppninni við hin, ekki síst með tilliti til þess að kostnaðarauki af þessu mun enginn vera, þvert á móti sýnir erlend reynsla að bensín er á lægra verði í sjálfsölum. Samkvæmt upplýsingum frá olíufélögunum mun hafa verið gerð tilraun með einn sjálfsala á Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík fyrir allnokkrum árum. í þann sjálfsala gengu þó ekki venjulegir seðlar, heldur aðeins mynt sem kaupa þurfti sérstaklega. Þessi tilraun varþó gefinn upp á bátinn vegna síend- urtekinnar skemmdarstarfsemi.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.