NT - 09.11.1984, Blaðsíða 23

NT - 09.11.1984, Blaðsíða 23
jlt ísrael: Föstudagur 9. nóvember 11984 Ógnun við lýðræðið Kynþáttahatari tekinn á Jerúsalem-Reuter ■ „Hann er ótvíræð ógnun við lýðræðið og lýðræðið verður að gera ráðstafanir til að verja sig.“ Svo hljóðuðu ummæli Yitzhaks Shamirs, sem fer með embætti dómsmálaráðherra í Israel, um hinn öfgasinnaða rabbía og þingmann Meir Kahane í vikunni. Kahane, sem var kosinn á þing í kosningunum í sumar, er leiðtogi hinna öfgasinnuðu og heittrúuðu Kack-samtaka, sem berjast meðal annars fyrir því að 680 þúsund arabar sem búa í Israel flytjist á brott. beinið Til að leggja áherslu á þessar kröfur sínar hafa samtökin farið í göngur um byggðir araba og í ágúst kom til harðra átaka í arabaþorpi þegar samtökin fóru þar um með ólátum. ísraelskir stjórnmálamenn hafa hingað til fordæmt skoðan- Indland: 130 börn drukkna Nýja Delhi-Reuter ■ Um 150 indversk skólaböm féllu niður í straumþunga á þegar hengibrú, sem þau voru á, lét undan þunga þeirra. Það tókst að bjarga fimmtán bömum, sumum illa slösuðum upp úr ánni en óttast er að flest hinna barnanna hafí látist. Lík tólf barna höfðu fundist í gærkvöldi en þá leitaði lögregl- an að börnunum með aðstoð kafara. Börnin höfðu þyrpst út á brúna til að sjá betur þyrlu sem var að lenda. Slvs þetta átti sér stað í litlu fjallaþorpi í Kerala-rtki í Suður- Indlandi. ■ ísraelska þingið hyggst nú reyna að koma einhverjum lögum yfir hinn ofstækisfulla Meir Kahane og stuðningsmenn hans. Myndin er tekin eftir að Kahane vann þingsæti í kosningunum í júlí. ir Kahane, en hafa varið rétt hans til að tala máli sínu. En nú vilja bæði hægri og vinstri menn í ísrael grípa til ráðstafana gegn Kahane, einkum vegna ýmissa ummæla hans í þinginu sem þykja mjög lituð af kynþátta- hatri og kúgun. Fyrir nokkru lýsti Kahane ánægju sinni með eldflaugaárás á strætisvagn þar sem í voru arabar. Einn lést í árásinni. „Ef arabar vilja vera öruggir í ísra- elskum strætisvögnum, þá ættu þeir að taka sér far með vagnin- um beint út úr landinu," sagði Kahane. Shamír hefur fyrirskipað lög- reglunni að rannsaka hvort á- stæða sé til að lögsækja Kahane vegna þessara ummæla, en hing- að til hefur hann getað skýlt sér á bak við þinghelgi sína. Nú hafa verið gerðar breyt- ingar á þingsköpum í ísrael sem gefa forseta þingsins rétt til að vísa út hverjum þeim þingmanni sem gefur yfirlýsingar í anda kynþáttahaturs. Dómsmála- ráðuneytið er einnig að vinna að lögum um kynþáttahatur, sem myndu gera Kahane ókleift að boða ýmsar hugmyndir sínar. Þingmenn úr nær öllum ísra- elskum stjórnmálaflokkum hafa gagnrýnt Iögregluna harðlega fyrir linkind við samtök Kahan- es, og heimta að fastar verði tekið á þeim í framtíðinni. Jens Evensen kosinn dómari Samcinuðu þjóðirnar-Reutcr ■ Jens Evensen, fyrrum hafréttarmálaráðherra Noregs, var í fyrradag kjör- inn dómari í Alþjóðadóm- stólnum í Haag. Atkvæða- greiðslan fór fram á Allsherj- arþingi Sameinuðu þjóðanna og hlaut Evensen 133 at- kvæði. Dómararnir eru kosnir til níu ára í senn, en alls sitja fimmtán dómarar í dómstólnum. Jens Evensen, verka- mannaflokksmaður, hefur löngum verið áhrifamaður í norskum stjórnmálum og þykir einn helsti sérfræð- ingur heimsins í hafréttar- málum. Hann gegndi lykil- hlutverki í tilurð hins nýja alþjóðahafréttarsáttmála, sem gekk í gildi fyrir nokkr- um árum. Upp á síðkastið hefur Evensen hins vegar átt nokk- uð erfitt uppdráttar vegna þess að einn helsti samstarfs- maður hans um langt árabil var Arne Treholt, njósnarinn sem nú situr í fangelsi í Osló. Á útnefninguna má því sennilega líta sem nokkra endurreisn fyrir Evensen. ■ Jens Evensen hefur átt í vök að verjast vegna tengsla sinna við Arne Treholt. Með dómarasætinu í Haag hefur hann nú fengið nokkra uppreisn æru. Myndina af þeim Treholt og Evensen tók Ijósmyndari Tímans, Guðjón Einarsson, hér á íslandi árið 1975. Robert Redford næsti forseti? ■ Breskar veðmálastofur eru strax farnar að bjóða viðskiptavinum sín- um veðmál um það hver taki við af Ronald Reagan í kosningunum áríð 1988. Þær telja George Bush vara- forseta langlíklegasta forsetaefnið og um helmingslíkur á því að hann verði forseti. Líkurnar á því að Gary Hart verði forseti segja veðstofurnar að séu þrjár á móti einum og á því að Edward Kennedy verði forseti fjórar á móti einum. Tilnefndur er einnig Robert Redford, frægur kvikmyndaleikari og hjartaknosari. Lfkurnar á því að hann verði næsti forseti Bandaríkj- anna eru taldar þrjátíu og þrjár á móti einum. Nú hafa repúblikanar getað státað af kvikmyndastjörnu á forsetastóli í, fjögur ár. Ef til vill sjá demókratar sér nú leik á borði og bjóða fram miklu frægari kvikmyndastjörnu - sem R. Redford óneitanlega er. ■ Robert Redford hjartaknosarí; ■æsti forseti Baadaríkjaama? Ha? Bardagar í Thailandi: Víetnamskir hermenn elta Khmera inn í Thailand Bangkok-Reuter ■ Thailenski herinn hefur að undanförnu lent í átökum við víetnamska herflokka sem hafa faríð yfir landamærin á milli Thailands og Kambódíu. Víet- namarnir hafa veríð að eltast við Khmerskæruliða sem eiga bæki- stöðvar í Thailandi og halda uppi skæruárásum á víetnamska setuliðið í Kambódíu. Hingað til hafa Víetnamar að mestu reynt að forðast átök við thailenska herinn sem gætir landamæranna. En thailensk yfirvöld segja að fyrr í þessari viku hafi um 100 manna her- flokkur Víetnama tekið thai- lenska landamærastöð sem er á hæð um tvo kílómetra fyrir inn- an landamærin. Síðan hafaThai- lendingar reynt að ná hæðinni aftur. Bæði Víetnamar og Thailend- ingar hafa beitt stórskotaliði í átökunum í þessari viku. Thai- lenski hershöfðinginn, Pichit Kullavanit, segir að Thailend- ingar hafi misst að minnsta kosti fimm manns, sex sé saknað og 42 hafi særst. I t HILDUR í sjónvarpi og útvarpi. Nú er tækitæri lil að hressa uppádönskukunnáttuna. Endur- flutningur á dönskuefninu um Hildi er nú hafinn í sjónvarþi og útvarpi og í tilefni þess minnir Námsgagnastofnun á.eftir- farandi hjálpargögn: 1) Námsbókin Ilildur „ et kursus í dansk l'or voksne". Katlar úr nýjum og gömlum vcrkum danskra höfunda um Danmörku og dönsk málefni ásamt mörgum Ijós- mvndum og teikningum. Málfræði o.fl.. Kr. 436.00. 2) Hildur-bandudskrift. Fjölritað hefti með afriti af hljóð- varpsþáttunum tuttugu. Handhægt hjálparefni. Kr. 325.00. DANSKA FYRIR HEIMANÁM 3) Hildur - Hljóðvarpsþættir á hljómböndum. Fimm hljóm- snældur með 20 hljóðvarpsþáttum. Kr. 840.00. Efnið um HlLDl fæst í Skólavörðubúdinni, Laugavegi 166, s. 28088. _________________________________________________________y

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.