NT - 09.11.1984, Blaðsíða 8

NT - 09.11.1984, Blaðsíða 8
Föstudagur 9. nóvember 1984 ndur haf „Stælar“ í manninum? Þurfa strætóstjórar að fjármagna miðasöluna? ■ Ég hef áhuga á því að vita hvernig háttað er sölu strætis- vagnamiða í vögnunum hjá Strætisvögnum Reykjavíkur. Einn daginn nú eftir að verk- fallið leystist tók ég mér ferð með vagni úr Breiðholti og niður í bæ, og ætlaði að kaupa afsláttarmiða. Þá sagði bifreiða- stjórinnað hann seldi ekki neina miða, og mundi ekki selja neina miða fyrr en hann fengi útborgað. Að svo búnu máli bauð hann mér að setjast inn í vagninn og borga fargjaldið næst. í framhaldi af þessu er mér spurn. Þurfa vagnstjórar að taka afsláttarmiða í umboðs- sölu og greiða þá við úttekt en fá síðan uppgert þegar sölu- tímabili lýkur, eða voru þetta stælar í manninum? SVR-unnandi Svar um hæl Við bárum þetta undir Svein Björnsson, forstjóra SVR. Sveinn kvað þetta mundu vera „stæla“ í manninum, því vagnstjórar SVR fengju pen- inga til þessara miðakaupa þegar þeir byrjuðu að vinna hjá fyrirtækinu. Sveinn sagði hins vegar að SVR hefði eiginlega verið uppi- skroppa með afsláttarmiða vegna prentaraverkfallsins og ef til vill gæti skýringarinnar verið að leita þar. ■ Á ekki að vera hægt að kaupa afsláttarmiða inni í vögnunum? Séra Þorbjöm Hlynur Árnason: Athugasemd við slúðurdálk ■ Prestaníð er gömul íþrótt á íslandi. Og þótt það sé hvimleitt, leiðinlegt og laust við að vera þroskandi á nokk- urn hátt, þá er það ekki óskiljanlegt í sjálfu sér. Starf prestsins er fyrst og fremst starf með fólki, í kringum fólk og fyrir fólk. Fáar aðrar stéttir manna hafa jafn mikið af fólki að segja og eru þá sömuleiðis með jafn viðkvæma þjónustu með höndum; þjónsutu sem hlýtur að lúta lögmálum krist- innar kenningar og kirkjulegr- ar hefðar. Neikvæðar athuga- semdir um presta og störf þeirra geta því hæglega sprott- ið af misskilningi á eðli þeirrar þjónustu sem þeir hafa með höndum, fitnað svo líkt og púkinn á fjósbitanum og lifað ágætu lífi sent hinn margfrægi en óáreiðanlegi almannaróm- ur. í síðastliðinni viku birtist í slúðurdálki þessa blaðs frásaga sem hafði að geyma ómaklegar aðdróttanir í minn garð og var í raun ásökun um, að ég sinnti ekki þeirri þjónustu sem ég er lögum samkvæmt skyldugur að gefið „afsvar" um slíka þjón- ustu, eins og sagt er í greinar- korninu.í þau örfáu skipti sem heimaskírn hefur verið ámálg- uð við mig, þá hef ég bent fólki á, að kirkjan sé eðlilegri staður fyrir skírnina en heimahús, útskýrt hvers vegna, og mælst til þess að skírnin fari fram í kirkju; á það hefur ávallt verið fallist í góðum friði og allir verið ánægðir. Og af hverju? Hvað mælir með kirkjunni í þessu efni? Öll guðfræðileg rök mæla með því að skírn fari fram í kirkju, sé þess kostur. Skírnin er fyrst og fremst kirkjuleg athöfn, því að hún merkir framar öðru, að einstaklingur, ungbarn, er tek- inn inní söfnuð Jesú Krists. Og kirkjuhúsið er byggt, helgað og frátekið fyrir samveru krist- ins safnaðar; það er staður fyrir bæn, lofgjörð, helgihald og athafnir kristinna manna. Skírn í heimahúsi er síður en svo forkastanleg, og er sjálfsögð ef aðstæður knýja á um; raunar má skíra barn hvar sem er, þess vegna upp á Vatnajökli, eða á ritstjórnar- skrifstofum nýja tímans, ef þyrfti. En í samfélagi þar sem veglegt og vel upphitað kirkju- hús er fyrir hendi er sjálfsagt að stuðla að þeirri venju eða meginreglu að skírn fari fram í kirkju. Því þykja mér ummælin í NT í síðustu viku ónotaleg. Þau geta í besta falli talist hálfur sannleikur, í versta falli hrein ósannindi, og í öllu falli rangfærsla sem er kirkjulífi og starfi til skaða. Það er ntiður, að sú nafn- lausa persóna sem skrifaði þessi orð skuli ekki hafa notað þá frumreglu sem blaðamenn þurfa að kunna, að leita glöggra upplýsinga og hafa sanngirni að leiðarljósi. Þorbjörn Hlynur Árnason. ■ í samfélagi þar sem vel upphitað kirkjuhús er fyrir hendi er sjálfsagt að stuðla að þeirri venju eða meginreglu að skírn fari fram í kirkju. Myndin er af Borgarneskirkju. sinna. Þar var bókstaflega fullyrt, að presturinn í Borgar- prestakalli neitaði að skíra börn í heimahúsum. Þetta er einfaldlega ósatt; ég hef engum ■ Þorbjörn Hlynur Árnason. ■ Ja, þetta er nú greiðfarin leið, segir maður kannski. Ef maður segir þá ekki: „Það er nú svo margt ólöglegt...“ Lögbrjótar og heilagir menn ■ Um daginn var ég á ferð í bifreið rninni á frekar greiðfar- inni götu hér í borginni. Þar sem gatan var sem sagt greið- farin ók ég kannski allgreitt en þó ekki hraðar en fólk er almennt vant að gera á þessum slóðum og öðrum svipuðum. Svo óheppilega vildi þó til að einmitt þennan dag höfðu þeir lögreglumenn ákveðið að rétt mundi að afla nú nokkurra fjármuna í ríkisgatið mikla og höfðu lagst í leyni við þessa götu. Það var náttúrlega ekki að sökum að spyrja, ég var staðinn þarna að verki í óða- önn að fremja ólöglegt athæfi og náttúrlega margbrotlegur þótt fyrr hefði verið. Var mér aðlyktumgert að greiða fjár- sekt nokkra upp í blessað gatið. Við þessu er nú kannski ekki margt að segja. Gat er gat og gat í fjárlögum er gat í fjárlögum og gat í fjárlögum þarf náttúrlega að fylla og það sem fyrst. Það skilur hver maður og ekki vorkenni ég mér fremur en öðrum að leggja ar nokkuð af mörkum. Auk ess er náttúrlega erfitt að hafa á móti því að manni beri að hlíða lögum þeim sem hin- að vísu landsfeðrum hefur þótt við hæfi að láta ganga yfir landslýðinn. Samt er það nú svo, að jafnvel þótt nýbúið sé að standa mann að afbroti og maður hafi orðið að gjalda það dýru verði, er einhvern veginn eins og maður taki ekki meira mark á slíkum atburði en svo að daginn eftir renndi ég mér inn í umferðina á greiðfarinni götu sem áður er umtöluð í þessu skrifi og á sama ólöglega hrað- anum og daginn áður og rey nd- ar alla aðra daga. Vel má vera að þessi atburð- ur væri ekki í frásögur færandi ef ekki hefði það borið við sem nú skal greina. Eftir stuttan akstur sé ég í baksýnisspeglin- um hvar lögreglubifreið nálgast. Óneitanlega fór um mig nokkur hrollur þarna und- ir stýrinu og atburðir gærdags- ins rifjuðust upp fyrir mér. Ég sá fyrir mér sviptingu ökuréttinda fyrir ítrekað brot og gott ef ekki tukthús upp á vatn og brauð og það jafnvel yfir hájólin. Hægði ég að sjálfsögðu þeg- ar ferðina þar til löggiltum hraðamörkum var náð og bar þá lögreglubifreiðina óðar nær og áður en varði var bilið á milli okkar orðið ískyggilega stutt. Ekki varð mér rórra þegar svo skammt var orðið á milli að vel mátti greina andlit lög- reglumannanna í baksýnis- speglinum. Þarna voru sem sé komnir sömu lögreglumenn og daginn áður höfðu sektað mig fyrir of hraðan akstur með ábúðarmiklum alvörusvip. Þessu næst var lögreglubif- reiðinni sveiflað yfir á vinstri akrein og sveif hún síðan há- tignarlega fram hjá mér. Ekki var mér þó gefið stöðvunar- merki og að þessu sinni var ég hvorki dæmdur í fésektir eða fangelsi. Þeir lögreglumenn héldu einfaldlega áfram ferð sinni eins og ekkert hefði í skorist og virtu mig ekki viðlits. Þegar þeir löggæslumenn voru horfnir út í buskann á bifreið sinni læddist hins vegar að mér skelfilegur grunur. Gat það verið að þessir geðþekku ungu menn meðráðvendnislega umvöndunarsvipinn frá í gær, séu sjálfir lögbrjótar þegar allt kemur til alls og engu betri en ég sjálfur, margsekur maður- inn og dæmdur í þokkabót. - Og þó, því trúi ég ekki. Því get ég hreint ekki fengið mig ti! að trúa. Dæmdur maður Skrifíð tit: NT Lesendasíðan Síðumúla 15108 Reykjavík ...eda hringið í síma 686300 milli kl. 13og 14

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.