NT - 09.11.1984, Side 12
Föstudagur 9. nóvember 1984 12
liL Cttvarp — — Sjónvarp
Ástandið í Saigon í
stríðslok og breska konan
nam í grimmilegu gríni, þar sem
hann hafði gengið í leyniþjón-
ustuna einmitt í þeim tilgangi
að komast hjá því að gegna
herþjónustu í þessu stríðs-
hrjáða landi.
En enn sem komið er skynj-
ar Barbara varla hið rétta ást-
and í landinu og að kvöldi
fyrsta fundar hennar og Amer-
íkanans skrifar hún móður sinni
bréf, þar sem hún ræðir um að
lífið í Saigon haldi sínu striki
um áramótin, þegar ár tígurs-
ins er kvatt og við tekur ár
kattarins.
Eftir því, sem kynni Bar-
böru og leyniþjónustumanns-
ins verða nánari, kemst hún
ekki hjá því að kynnast skugga-
hliðum hins raunverulega á-
stands í Víetnam á þessum
tírna.
Með hlutverk Barböru fer
Judy Dench og önnur stór
hlutverk leika Frederic Forrest
og E.G. Marshall.
Þýðandi myndarinnar er
Kristrún Pórðardóttir.
■ Kvöldvökuþættir útvarps-
ins eiga sér-langa sögu og
tryggan hlustendahóp. Við
leituðum til Helgu Ágústsdótt-
ur, núverandi umsjónarmanns
kvöldvöku, til að fá eilitlar
upplýsingar um þáttinn.
Því hefur oft verið haldið
fram, að hlustendur Kvöld-
vöku væri nokkuð einlitur hóp-
ur og nær eingöngu aldrað
fólk. Undir það vill Helga ekki
taka.Að vísu sé erfitt að full-
yrða nokkuð um hlustendur
útvarps, því að það sé líkast
því að standa við opinn glugga,
sem vísar út í garð að ræða við
útvarpshlustendur. Hins vegar
segir hún þau viðbrögð hlust-
enda, sem hún verður vör við,
benda til þess að hópurinn fari
síbreikkandi, henni til mikillar
ánægju. En þó þykir henni
líklegt að tryggastur við þátt-
inn sé aldurshópurinn frá fim-
tugu og upp úr. Enda segir
hún efnisvalið mjög fjölbreytt
og eiga erindi við alla aldurs-
hópa. Þar er að finna frásagnir
af allt frá spaugilegum atvikum
til hádramatískra hetjukvæða,
sagt er frá húsdýrum, svaðil-
förum, fundahöldum, fyrstu
verkföllum á Islandi og þannig'
mætti lengi telja. „íslendingar
eru mjög sagnaglaðir enn þann
dag í dag,“ segir Helga.
Og í framhaldi af því spyrj-
um við, hvernig efnis til þátt-
anna sé aflað. „Það má skipta
þessu niður í nokkra megin-
þætti,“ segir Helga. „Það er
fólk, sem gefur sig fram með
frumsamið efni og flytur það
yfirleitt sjálft. Reyndar kemur
það fyrir að fólk kemur með
áægtis frumsamið efni, en get-
ur ekki flutt það sjálft, og þá er
fenginn annar flytjandi. Mér
er líka oft sagt frá fólki, sem
lúrir á efni, og þá reyni ég að
kría það út úr því. Síðan er
það fólk, sem ég fæ til að flytja
efni, sem ég hef fundið til,
jafnt í bundnu máli sem
óbundnu. Þá má líka nefna
fólk, sem kemur óskum á
framfæri um að fá að flytja
eitthvert tiltekið efni.“
I framhaldi af þessum upp-
lýsingum segir Helga okkur
frá því, að hún hafi aldrei vitað
aðra eins ásókn hjá nokkurri
annarri þjóð í að fá að lesa eitt
kvæði á öldum ljósvakans. Það
er kvæðið Messan á Mosfelli
eftir Einar Benediktsson, sem
svona margir bjóðast til að lesa
í útvarpið.
I
Helga vill endilega koma á
framfæri þakklæti til þess
fólks, sem sýnir Kvöldvökunni
mikla ræktarsemi með því að
færa henni efni og koma með
ábendingar.
■ Helga Agústsdóttir, um-
sjónarmaður Kvöldvöku, vill
koma á framfæri þakklæti til
þess fólks, sem sýnir Kvöld-
vökunni ræktarsemi með því
að færa henni efni og koma
með ábendingar.
Kvöldvaka verður tvisvar í
viku á vetrardagskrá útvarps-
ins, á þriðjudögum og föstu-
dögum, og stendur hvor þáttur
í 50 mínútur.
■ Sjónvarpsmyndin í kvöld
nefnist Saigon á ári kattarins
og er bresk. Sögusvið hennar
er Saigon á lokastigi styrjaldar-
innar í Víetnam.
Aðapersónan er bresk
kona á fimmtugsaldri, sem
starfar í erlendum banka í
Saigon. Samstarfsmenn henn-
ar eru ýmist landar hennar,
sem hún blandar mest geði
við, eða innfæddir. Lífið innan
veggja bankans virðist ganga
sinn vanagang, þrátt fyrir ólg-
una, sem geisar úti fyrir.
Konan, Barbara Dean, hittir
ungan bandarískan leyniþjón-
ustumann, sem hrærist í allt
öðrum heimi en hún og hafði
reyndar verið sendur til Víet-
■ Breska konan Barbara Dean hefur lifað vernduðu lífi í Saigon
og lítið gert sér grein fyrir raunverulegu ástandi í borginni. En svo
kynnist hún bandarískum leyniþjónustumanni.
„Klarinettuleikari ársins“
kemur til landsins um helgina
kynntur í jazzþætti Vernharðs
■ Umhelginaervæntanlegur
hingað til lands bandaríski
jazzleikarinn Anthony Brax-
ton og heldur hann tónleika í
Félagsstofnun stúdenta á
sunnudagaskvöidið. Vern-
harður Linnet ætlar að kynna
þennan mikla saxófónleikara í
þætti sínumáRás2ídagkl. 16.
„Það má segja að Anthony
Braxton leiki á flesta saxófóna
og klarinett, en það er altó-
saxófónninn, sem er aðalhljóð-
færið hans. Þó hefur hann.
verið kosinn klarinettuleikari
ársins undanfarin ár í Down
Beat,“ segir Vernharður.
„Braxton leikur ekki beint í
anda Bennys Goodman, þó
hefur hann ekki ósvipaðan
tón,“ segir Vernharður.
„Hann hefur dálítið klassískan
tón á klarinettið.“
Sennilega er Braxton ekki
mjög þekktur hér á landi, en
hann er einna fremstur í flokki
yngri kynslóðarinar. Hann hef-
ur samið mikið af verkum í
nútíma evrópskum stíl, sem
sagt heldur ómstrítt (atonal).
Ekki ætlar Vernharður að
einskorða sig við að leika tón-
list Braxtons, heldur ætlar
hann líka að segja frá ýmsu,
sem tengist honum. T.d. var
sá, sem kom honum á jazzspor-
ið enginn annar en Poul Des-
mond í Dave Brubeck kvart-
ettinum, sá hinn sami og samdi
hið fræga lag Take Five.
■ Anthony Braxton hefur
margoft verið kosinn „Klarin-
ettuleikari ársins", en aðal-
hljóðfæri hans er þó saxófónn.
Útvarp föstudag kl. 20.40:
Hlustendahópur Kvöldvöku
ekki bara aldrað fólk
Sjónvarp föstudag kl. 22.10:
■ Þessu fólki fáum við að kynnast í sjónvarpinu í kvöld kl. 19.25. Þetta eru þau Buster og mamma
hans.
Sjónvarp föstudag kl. 19.25:
Danskur framhaldsmynda
flokkur hefur göngu sína
■ Nú gefst okkur heldur bet-
ur kostur á að rifja upp dön-
skukunnáttuna og bæta við
hana á þann einfalda hátt að
sitja fyrir framan sjónvarpið
og halda augum og eyrum
opnum. Síðastliðin laugardag
hófust endursýningar á þáttun-
um um Hildi, íslensku stúlk-
una, sem lendir í hinum og
þessum ævintýrum í sumardvöl
sinni í Danmörku. Og í kvöld
kl. 19.25 hefur göngu sína nýr
danskur framhaldsmynda-
flokkur, Veröld Busters.
Veröld Busters er gerð eftir
samnefndri barnabók eftir
Bjarne Reuter og Bille Aug-
ust. Bókin hefur komið út í
íslenskri þýðingu Ólafs Hauks
Símonarsonar og myndi trú-
lega létta dönskunámið að hafa
hana við höndina.
Rás 2 föstudag kl. 16.
Föstudagur
9. nóvember
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55
Daglegt mál. Endurt. þáttur Sigurð-
ar G. Tómassonar frá kvöldinu
áöur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorö - Jón Ól. •
Bjarnason talar.
9.00 Fréttir.
9.00 Morgunstund barnanna:
„Breiöholtsstrákur fer i sveit“
eftir Dóru Stefánsdóttur Jóna Þ.
Vernharðsdóttir les (8).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.)
10.45 „Það er svo margt aö mlnn-
ast á“ Torfi Jónsson sér um
þáttinn.
11.15 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 „A íslandsmiðum" eftir
Pierre Loti Séra Páll Pálsson á
Bergþórshvoli les þýðingu Páls
Sveinssonar (12).
14.30 Miödegistónleikar. Scherzo
op. 25 eftir Josef Suk. Tékkneska
Fílharmóniusveitin leikur, Zdenék
Mácal stj.
14.45 Á léttu nótunum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar a. Brand-
enborgarkonsert rir. 4 í G-dúr eftir
Bach. Concentus Musicus hljóm-
sveitin í Vínarborg leikur, Nikolaus
Harnoncourt stj. b. Píanókonsert
í D-dúr eftir Leopold Kozeluck.
Felicja Blumental leikur með Nýju
kammersveitinni í Prag, Alberto
Zedda stjórnar.
17.10 Síödegisútvarp Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg
Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Fyrirbærl á fjöll-
um Guðmundur Sæmundsson
frá Neðra-Haganesi tekur saman
og flytur frásöguþátt um Sæluhús-
ið í Hvítárnesi. b. Vökunætur
Guðmundur Þórðarson sér um
visnaþátt. c. Sigling Gullmávsins
Sigurlaug M. Jónasdóttir les frá-
sögn er Andrés Björnsson skráði.
Umsjón: Helga Ágústsdóttir.
21.35 Framhaldsleikrit: „Drauma-
ströndin" eftir Andrés Indriða-
son V. og síðasti þáttur endur-
tekinn: „Sólarmegin í lífinu“
Leikstjóri: Stefán Baldursson Leik-
endur: Arnar Jónsson, Kristbjörg
Kjeld, Tinna Gunnlaugsdóttir,
Steinunn Jóhannesdóttir, Hjalti
Röngvaldsson og Baltasar
Samper.
22.15 Veðurfregnir. Fróttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Brot frá bernskuslóðum"
Baldur Pálmason les úr minning-
um Hallgríms Jónassonar rithöf-
undar.
23.00 Djassþáttur - Tómas Einars-
son.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá Rás 2 til kl.
Föstudagur
9. nóvember
10:00-12:00 Morgunþáttur. Fjörug
danstónlist. Viðtal, gullaldarlög,
ný lög og vinsældalisti. Stjórnend-
ur: Jón Ólafsson og Siguröur
Sverrisson.
14:00-16:00 Pósthólfið. Lesin bréf
frá hlustendum og spiluð óskalög
þeirra ásamt annarri léttri tónlist.
Stjórnandi: Valdís Gunnarsdóttir.
16:00-17:00 Jazzþáttur. Þjóðleg lög
og jazzsöngvar. Stjórnandi: Vern-
harður Linnet.
17:00-18:001 föstudagsskapi.
Þægilegur músikþáttur í lok vik-
unnar. Stjórnandi: Helgi Már
Baröason.
23:15-03:00 Næturvakt á Rás 2.
Stjórnendur: Vignir Sveinsson og
Pétur Steinn Guðmundsson.
(Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24:00 og
heyrist þá í Rás 2 um allt land.)
Föstudagur
9. nóvember
19.15 A döfinni. Umsjónarmaður t
Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
19.25 Veröld Busters Nýrflokkur-
Fyrsti þáttur. Danskur framhalds-
myndaflokkur í sex þáttum, gerður
eftir samnefndri barnabók eftir
Bjarne Reuter og Bille August sem
komið héfur út í íslenskri þýðingu 1
Ólafs Hauks Simonarsonar. <
(Nordvision - Danska sjónvarpið).
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós. Þáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður Helgi E.
Helgason.
21.10 Skonrokk. Umsjónarmenn
Anna Hinriksdóttir og Anna Kristin
Hjartardóttir.
21.40 Hláturinn lengir lífið. Annar
þáttur. Breskur myndaflokkur í
þrettán þáttum um gamansemi og
gamanleikara í fjölmiðlum fyrr og
síðar. Þýðandi Guðni Kolbeins-
son.
22.10 Saigon á ári kattarins. Ný
bresk sjónvarpsmynd. Leikstjóri
Stephen Frears. Aðalhlutverk:
Judy Dench, Fredericd Forrest og
E.G. Marshall. Myndin gerist á
lokastigi styrjaldarinnar i Víetnam.
Bresk kona, sem starfar í banka í
Saigon, kynnist bandarískum leyn-
iþjónustumanni og þau leika bæði
nokkurt hlutverk í brottflutningi
Vesturlandabúa frá borginni. Þýð-
andi Kristrún Þórðardóttir.
00.00 Fréttir í dagskrárlok.